RAGNAR Jónasson, dúx Verzlunarskóla Íslands í ár, segist ánægður með aðaleinkunn sína, 9,62, en á prófunum var hann með tíu í einkunn í sjö fögum, 9,5 í átta fögum, 9,0 í einu fagi og 7,5 í leikfimi. Ragnar kveðst seint vilja viðurkenna að hann sé kúristi, en hann læri hins vegar eins mikið og þurfi til að hafa hreina samvisku.
Meira