NIÐURSTÖÐUR umfangsmikillar, bandarískrar rannsóknar sýna að lítilvægar breytingar á lífsmáta, svo sem minni fituneysla, tveggja og hálfrar klukkustundar líkamsrækt á viku og að léttast hóflega, fækki sykursýkitilfellum um helming meðal þeirra sem eiga...
Meira
BRESKA stjórnin svipti heimastjórn N-Írlands völdum í gær til að veita n-írskum stjórnmálamönnum sex vikna svigrúm til samninga um stjórnarmyndun.
Meira
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Ísraelar hefðu tekið svonefnt Austurlandahús, óopinberar höfuðstöðvar Frelsissamtaka Palestínu (PLO), á sitt vald til frambúðar.
Meira
SVASÍLENSKIR öldungar og almenningur í þjóðbúningum koma til þjóðfundar sem haldinn var á landareign konungsfjölskyldu landsins utan við höfuðborgina Mbabane í gær.
Meira
GUÐMUNDUR Karl Snæbjörnsson, formaður Félags heimilislækna í Skandinavíu, segir tölur sem nefndar hafa verið í fjölmiðlum um skort á heimilislæknum og fjölda heimilislæknalausra á höfuðborgarsvæðinu rangar.
Meira
SUMARIÐ er útivistartími kúnna og kærkomin tilbreyting fyrir þær frá því að vera lokaðar inni í fjósum. Oft bera þær í haganum og leita þá út úr kúahópnum til þess að vera einar hjá kálfunum í háu grasi eða næstu laut þar sem fáir sjá til.
Meira
BÍLVELTA varð á Bjarnarfjarðarhálsi í gær. Að sögn lögreglunnar voru ökumaður og farþegi fluttir á heilsugæsluna á Hólmavík. Ekki var talið að um alvarleg meiðsl væri að ræða. Bíllinn er...
Meira
MÆÐGUR voru fluttar á slysadeild eftir bílveltu á Kjalarnesi síðdegis í gær. Þær kenndu eymsla í mjöðmum en reyndust áverkar þeirra vera minni háttar og voru þær útskrifaðar eftir rannsókn. Tveir til viðbótar voru í bílnum og sakaði þá ekki.
Meira
BÍLVELTA varð á Mývatnsheiði í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Húsavík slapp ökumaður, sem var einn í bílnum, með skrámur og hafa bílbeltin bjargað því hversu vel hann slapp. Bíllinn er mikið...
Meira
STJÓRN Blaðamannafélgs Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er hneykslun á framgöngu lögregluþjóna við eftirlit með mótmælum vegna kjaramála sjómanna í Reykjavíkurhöfn nýverið.
Meira
Sú ákvörðun George W. Bush Bandaríkjaforseta, að ríkið kosti einungis rannsóknir á stofnfrumubirgðum sem fyrir liggja á rannsóknarstofum, virðist hvorki hafa uppfyllt allar vonir evrópskra fylgjenda stofnfrumurannsókna né andstæðinga þeirra.
Meira
SVEITARFÉLAGIÐ Dalabyggð lagði síðdegis í gær inn kæru til Samkeppnisstofnunar fyrir hönd sauðfjárbænda í Dalabyggð. Kæruefnið er fyrirhuguð lokun sláturhúss Goða hf.
Meira
Rúna Hilmarsdóttir fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1987 og BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1991. Hún stundaði nám um tíma í kerfisfræði í Tölvuháskólanum. Rúna hefur starfað víða, m.a. var hún við ferðamálastörf í sjö ár en núna vinnur hún við upplýsingatæknisvið á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Rúna á einn son.
Meira
11. ágúst 2001
| Akureyri og nágrenni
| 368 orð
| 1 mynd
STEFNT er að því að hefja kjúklingaslátrun hjá Íslandsfugli í Dalvíkurbyggð í næstu viku og koma fyrstu afurðum fyrirtækisins á markað í kjölfarið.
Meira
VIÐHORFSVAKT Vímulausrar æsku hefur sent formönnum allra þingflokka bréf þar sem þess er farið á leit að Alþingi skipi sérstaka rannsóknarnefnd til að rannsaka til hlítar allt sem viðkemur Eldborgarhátíðinni um verslunarmannahelgina.
Meira
SJÁLFVIRKT brunaboðunarkerfi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli fór í gang í gærmorgun og var fólk beðið um að yfirgefa bygginguna. Fljótlega kom í ljós að ekki hafði kviknað í.
Meira
ÁSGEIR Ólafsson átti góða ferð í Eyjafjarðará á dögunum. Eyjafjarðará er ein af betri sjóbleikjuveiðiám landsins, en ávallt veiðast í henni enn fremur fáeinir laxar á sumri hverju. Ásgeir hafði heppnina með sér. "Ég var fyrir miðju neðsta svæðinu.
Meira
NÆSTKOMANDI mánudag heldur Fídel Kastró, forseti Kúbu, upp á 75 ára afmælið. Kastró hefur verið einræðisherra á Kúbu samfleytt í 42 ár og í forsetatíð hans hafa 10 menn gegnt embætti forseta Bandaríkjanna.
Meira
Í GÆR fór fram hátíðleg athöfn í fundarsal Reykjanesbæjar í Kjarna þar sem Ellert Eiríksson, bæjarstjóri, og Mark Anthony, kafteinn í flotastöð bandaríska sjóhersins á Keflavíkurflugvelli, undirrituðu yfirlýsingu um vináttusamband á milli Reykjanesbæjar...
Meira
UM helgina verður 50 ára afmæli Þorlákshafnar minnst með fjölbreyttri dagskrá. Dagskráin í dag hefst á hafnarsvæðinu þar sem bæjarbúum, gestum og gangandi verður boðið til morgunverðar. Hátíðarmessa veður í kirkjunni kl. 10.
Meira
SAGA Simons Alberts Norling sem var sænskur að uppruna, en bjó lengst af hér á landi hefur verið afkomendum hans mikil ráðgáta og eru nýjar upplýsingar um ferðir hans og afdrif í upphafi síðustu aldar, enn að koma í ljós.
Meira
Tengja á sjálfvirkan leitarhugbúnað, sem getur borið kennsl á fólk, við eftirlitsmyndavélar flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli í haust. Fram kemur í grein Ómars Friðrikssonar að Leifsstöð er fyrsta flugstöðin í heiminum sem tekur þessa nýju tækni í notkun.
Meira
SAMKOMUHÚSIÐ í Flatey á Skjálfanda var fullt út úr dyrum þegar tónleikar söngsveitanna Fjórar klassískar og Út í vorið voru haldnir sl. laugardag. Formlegt tónleikahald hefur ekki verið í samkomuhúsinu síðan eyjan fór í eyði árið 1967.
Meira
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrr í sumar með göngu um Reykjaveginn, gönguleiðina sem liggur eftir endilöngum Reykjanesskaganum frá Reykjanestá til Þingvalla. Sunnudaginn 12. ágúst verður gengin 6.
Meira
REYKJAVÍKURBORG og Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) hafa gert með sér samning til þriggja ára sem felur í sér að Reykjavíkurborg greiðir GR 80 milljónir á samningstímanum. Greiddar verða 30 milljónir 1.
Meira
GUÐMUNDUR Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóri, er heiðurslistamaður Borgarbyggðar árið 2001 og fékk þá útnefningu í upphafi sumars á setningu Borgarfjarðarhátíðar í Reykholti.
Meira
VATÍKANIÐ hefur sakað gyðingasagnfræðinga um að hindra framgang tímamótarannsóknar sex kaþólskra og gyðinglegra sagnfræðinga á aðild kaþólsku kirkjunnar að helförinni.
Meira
NÚ er Otto haust- og vetrarlistinn kominn út, tæplega 1.400 blaðsíður að stærð. Vöruúrvalið í stóra listanum er tískufatnaður á alla fjölskylduna í öllum stærðum, vefnaðarvara og úrval af húsgögnum og borðbúnaði auk margs konar gjafavöru.
Meira
HLJÓMSVEITIN Hot and Sweet og Helga Möller sem slógu í gegn á kántrýhátíð á Skagaströnd um verslunarmannahelgina verða á Players-Sportbar í Kópavogi föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa Helga Möller, Birgir J. Birgisson og Hermann I.
Meira
UM helgina verður ýmislegt í boði fyrir gesti þjóðgarðsins á Þingvöllum. Laugardaginn klukkan 13 verður gengið í Skógarkot og fjallað um daglegt líf Íslendinga á nítjándu öld. Gangan tekur rúmlega tvo tíma og safnast verður saman við Flosagjá.
Meira
BRESKUM leigubílstjóra brá heldur betur í brún á dögunum þegar hann uppgötvaði að farþegi sem hann tók upp í bílinn var sonur hans, en hann hafði leigubílstjórinn ekki séð í 34 ár. Bílstjórinn, Barry Bagshaw, sagðist hafa orðið hvumsa við endurfundina.
Meira
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verður í Hóladómkirkju næstkomandi sunnudag, 12. ágúst, kl. 14. Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands predikar. Að lokinni guðsþjónustu leggur Davíð Oddsson forsætisráðherra hornstein að Auðunarstofu.
Meira
KAFFISALA verður í sumarbúðum KFUM og KFUK við Hólavatn sunnudaginn 12. ágúst og hefst hún kl. 14.30 og stendur til kl. 18. Í sumar hafa 5 hópar drengja og stúlkna verið á Hólavatni undir stjórn Önnu Elísu Hreiðarsdóttur, Hannesar Guðrúnarsonar og sr.
Meira
UM helgina verður haldið Landsmót Fornbílaklúbbsins. Mótið fer fram í Laugarási í Biskupstungum og er von á fjölmörgum fornbílum og eigendum þeirra. Varahlutamarkaður verður á staðnum auk þess sem fornbílakeppni mun fara...
Meira
FLUGNANET, filmur, spil, plástur, kavíar, ostur og smokkar eru meðal þess sem fæst í Fjallafangi, sem er án efa ein óvenjulegasta verslun landsins. Skötuhjúin Smári Kristinsson og hin rússneska Nína Ivanova reka verslunina og hafa gert bráðum í áratug.
Meira
MAGNÚS Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, telur líklegt að við útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir Kárahnjúkavirkjun verði að fylgja endanlegum úrskurði umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Meira
SKIPTAR skoðanir eru um hvort sá sem veitir leyfi til framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun sé bundinn af endanlegum úrskurði um mat á umhverfisáhrifum. Í 16.
Meira
MERKAR nýjungar sem flýtt gætu greiningu og aukið batahorfur þeirra sem fá lungnakrabbamein hafa verið kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík um forvarnir og greiningu lungnakrabbameins.
Meira
EIRÍKUR Bragason, framkvæmdastjóri Línu.net, segir að ákveðið hafi verið að bíða með næstu áfanga við að tengja ljósleiðara inn á heimili þar sem þjónusta fyrir heimatengingar var ekki fullmótuð.
Meira
ÚRSKURÐARNEFND fjarskipta- og póstmála hefur staðfest þá ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar að Lína.Net hafi ekki formlega heimild til notkunar á tíðnisviði sem Gagnaveitan ehf., sem sameinaðist Línu.Neti, hafði.
Meira
HLÍF Ásgrímsdóttir opnar einkasýningu sína, Innhorn, í Slunkaríki á Ísafirði, í dag, laugardag. Hún sýnir þrjú ljósmyndaverk sem fjalla um horn í lofti, veggjum og gólfi í kjallara Slunkaríkis.
Meira
NÝ röðun og uppbygging launakerfis grunnskólakennara tók gildi 1. ágúst samkvæmt kjarasamningi grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga sl. vetur.
Meira
UM helgina verður haldin norræn ráðstefna um fjölmiðla- og boðskiptarannsóknir á vegum félagsvísindadeildar Háskóla Íslands. Ráðstefnan verður sett í Háskólabíói kl. 9:30 í dag með setningarávarpi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.
Meira
RANNVEIG Helgadóttir opnar myndlistarsýningu í Ketilhúsinu, neðri hæð, í dag laugardaginn 11. ágúst kl. 16.00 og mun sýningin standa til 26. ágúst.
Meira
GUÐMUNDUR Guðmundsson, forstöðumaður hjá Búnaðarbankanum-Verðbréf og starfandi stjórnarformaður Reykjagarðs, segist reikna með að Reykjagarður verði boðinn til sölu síðar í þessum mánuði en bankinn á fyrirtækið sem stendur.
Meira
FJÖLSKYLDUDAGUR í Vogum hefst með dorgveiðikeppni á smábátabryggjunni klukkan 11 í dag. Síðan rekur einn atburðurinn annan fram á nótt. Eftir hádegið verða opin leiktæki á tjaldstæðinu og á sama stað verður andlitsmálun.
Meira
NÝLEGA hafa verið gerðar tvær skoðanakannanir á viðhorfi landsmanna gagnvart Kárahnjúkavirkjun þar sem niðurstöðurnar eru mjög svipaðar. Fyrri könnunina gerði Gallup fyrir Landsvirkjun í byrjun júní sl.
Meira
GUNNAR Hamnöy, starfsmaður norska lúterska kristniboðssambandsins, og Helgi Hróbjartsson kristniboði verða aðalræðumenn á samkomuþrennu sem Samband íslenskra kristniboðsfélaga gengst fyrir dagana 13. til 15.
Meira
SEX fyrirtæki sendu inn tilboð í ráðgjöf vegna fyrirhugaðrar sölu ríkisins á hlutabréfum í Landsbanka Íslands hf., en tilboðin voru opnuð síðdegis í gær.
Meira
HEIÐRÚN Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landssímans, segir að GSM-kerfið hafi aldrei verið hugsað sem öryggiskerfi. Hins vegar hafi verið lagður mikill metnaður í að byggja upp kerfið í þéttbýli.
Meira
VEÐRIÐ lék við Akureyringa í gær og á slíkum stundum leggst fólk fáklætt út undir vegg og lætur sólina skína á kroppinn, hvort sem er heima við hús eða í sundlaugum bæjarins. Þá hefur sundlaugargarðurinn aðdráttarafl og þar var hópur ungs fólks við leik.
Meira
ÖLLUM starfsmönnum Skjávarpsins, tólf talsins, hefur verið sagt upp störfum, en Íslenska sjónvarpsfélagið, sem á og rekur Skjá Einn, hefur keypt öll hlutabréf Gagnvirkrar miðlunar í Skjávarpinu.
Meira
VIÐARSTAUR sem settur var upp í vor við hlið þar sem ekið er inn á skjólbeltissvæði við Sætún á Kjalarnesi hefur sýnt og sannað að hann er ekki dauður úr öllum æðum, enda tók hann upp á því að laufgast eins og hvert annað lifandi tré.
Meira
250 ár eru liðin frá því íslenskir embættismenn komu saman á Þingvöllum til að stofna með sér félag um viðreisn atvinnuvega á Íslandi, Hið íslenska hlutafélag. Danakonungur lagði framtakinu lið sem lengst af hefur gengið undir nafninu Innréttingar. Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað starfsemi Innréttinganna og er henni lýst í nýrri bók hennar Landsins forbetran. Elva Björk Sverrisdóttir ræddi við Hrefnu um starfsemi Innréttinganna.
Meira
"STJÓRN Sambands ungra sjálfstæðismanna skorar á ríkisstjórn Íslands og menntamálaráðherra að breyta rekstrarfyrirkomulagi Ríkisútvarpsins tafarlaust.
Meira
SVÍÞJÓÐ gæti gerzt aðili að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) og tekið upp evruna fyrir árið 2005 að því er haft er eftir Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, í blaðaviðtali í gær.
Meira
SÆMUNDUR Gunnarsson myndlistarmaður, sem búsettur er í Njarðvík, opnar í dag sýningu í Gallery Hringlist í Keflavík. Á sýningunni verða tíu landslagsmyndir, unnar með akrýlmálningu. Sýningin í Gallery Hringlist er fjórða einkasýning Sæmundar.
Meira
MENNINGARMIÐSTÖÐ Hornafjarðar stendur fyrir fjölskylduferð um söguslóðir Þórbergs og Steinþórs Þórðarsona á Hala sunnudaginn 12. ágúst nk. Farið verður í ratleik sem tengist útiveru og fræðslu um sögu og mannlíf.
Meira
MENNINGAR- og fjölskylduhátíðin "Galdrastef á Ströndum" verður haldin þessa helgi á Hólmavík. Undanfarin ár hafa Strandamenn unnið að uppbyggingu galdrasýningar á Ströndum, en sýningin var fyrst opnuð á Jónsmessunótt árið 2000.
Meira
TÍÐAGJÖRÐ og staðarskoðun verður daglega í Strandarkirkju í Selvogi 11.-17. ágúst. Morgunbænir verða kl. 9 og aftansöngur kl. 18 og staðarskoðun kl. 14.
Meira
Fjölbreytt dagskrá verður á Árbæjarsafni um helgina. Herdís Jónsdóttir og Steef van Oosterhout leika saman á víólu og marimbu í safninu í dag, laugardag, kl. 14. Efnisskráin samanstendur af íslenskum þjóðlögum og öðrum kunnum lögum.
Meira
ÞRJÁTÍU og átta óbreyttir borgarar voru drepnir í fyrradag í Aceh-héraði í Indónesíu en þar hefur verið mjög ófriðlegt um langa hríð og ofbeldisverk tíð. Kenna stjórnarherinn og skæruliðar, sem berjast fyrir sjálfstæði héraðsins, hvorir öðrum um.
Meira
TVÆR umsóknir bárust um stöðu sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli við Fáskrúðsfjörð en umsóknarfrestur rann út um mánaðamótin. Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu kemur valnefnd saman um eða eftir helgi til að fjalla um umsóknirnar.
Meira
Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum er sífellt að verða alvarlegra, að sögn forstöðumanns tölvuafbrotadeildar norsku lögreglunnar. Netið á þátt í að útbreiða glæpina.
Meira
Ljósmyndari Morgunblaðsins rakst nýverið á þennan unga ökuþór í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í Austurstrætinu. Aron Bessi heitir ungi maðurinn sem var á rúntinum. Ekki fylgdi þó sögunni hvert ferðinni var heitið á fína gula...
Meira
FRAMKVÆMDIR við um 7 þúsund fermetra útivistarsvæði við Hörðuvelli í Hafnarfirði standa nú sem hæst og eru áætluð verklok 1. nóvember. Eins og sést á greinargóðri yfirlitsmynd af svæðinu, sem fékkst frá landslagsarkitektum á teiknistofunni Landmótun ehf.
Meira
NÚ stendur yfir sýning á leirverkum Kristínar Sigfríðar Garðarsdóttur í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Þetta er önnur einkasýning Kristínar. Verkin eru úr postulíni steyptu í gifsmót, einnig handmótuð form úr postulíni og grófum steinleir.
Meira
LAUGARDAGINN 11. ágúst mun Evró hf., umboðsaðili Piaggio-vespa á Íslandi, standa fyrir svokölluðum vespudegi. Öllum eigendum vespa á Íslandi er boðin þátttaka. Samkvæmt bifreiðaskrám er enn þó nokkuð af vespum árgerða fyrir 1970 skráðar.
Meira
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær þá tillögu iðnaðar- og viðskiptaráðherra að fela ráðuneytisstjórum forsætis-, fjármála- og iðnaðarráðuneyta að leita lausna á vandkvæðum sem upp hafa risið vegna kröfulýsingar ríkisins um þjóðlendumörk í...
Meira
FLUGMÁLASTJÓRN Íslands sendi í gær frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: "Í ljósi þeirrar umræðu, sem fram hefur farið undanfarna daga um björgunaraðgerðirnar í Skerjafirði í kjölfar hins hörmulega flugslyss fyrir rúmu ári, er óhjákvæmilegt að...
Meira
RANNSÓKNARNEFND flugslysa hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu varðandi flugslysið í Skerjafirði: "Þótt Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) sé óljúft að fjalla opinberlega um rannsóknaratriði skýrslu sinnar um flugslysið í Skerjafirði hinn 7.
Meira
ÞÓREY Eyþórsdóttir opnar myndlistarsýningu í Deiglunni, "Frá þræði til heildar" í dag, laugardaginn 11. ágúst, kl. 16.00. Þórey hefur dvalið langtímum í Noregi, síðast sem uppeldis- og sálfræðiráðgjafi í Vestfold.
Meira
LANDHELGISGÆSLAN og björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli komu saman til æfinga í ytri höfninni í Keflavík í gær. Tilgangur æfingarinnar var að sveitirnar gætu skipst á hugmyndum og aðferðum og stillt saman strengi sína.
Meira
UM 100 manns hafa verið handteknir í Bandaríkjunum vegna rannsóknar á stærsta barnaklámshring, sem um getur. Var forsprakki hans dæmdur í lífstíðarfangelsi sl. mánudag og eiginkona hans í 14 ára fangelsi.
Meira
STÆRSTA iðnaðarfyrirtækið í Ólafsfirði, Tréver ehf., hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu. Að sögn Önnu Rósu Vigfúsdóttur hjá Tréveri er verkefnastaða fyrirtækisins það slæm að eigendurnir telja ekki lengur grundvöll fyrir rekstri þess að óbreyttu.
Meira
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra kynntu í fyrradag áform ríkisstjórnarinnar um að gera á grundvelli hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna kröfu til yfirráða á landgrunninu á Reykjaneshrygg, í Síldarsmugunni...
Meira
LAUST fyrir hina umræddu útihátíð Eldborg var gefinn út hljómdiskur með lögum valinna listamanna sem þar tróðu upp, eins og t.d. Skítamóral, Geirfuglunum og XXX Rottweilerhundum.
Meira
ÞAÐ VERÐUR mikið um dýrðir í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar Hinsegin dagarnir, Gay Pride, verða haldnir hátíðlegir í þriðja sinn. Hátíðahöldin hefjast með heljarinnar skrúðgöngu sem verður, að sögn aðstandenda, hin skrautlegasta til þessa.
Meira
Helgi Hrafn Jónsson og Hörður Áskelsson fluttu verk eftir J.S. Bach, Pergolesi, Clérambault, Loeillet og frumfluttu verk eftir Huga Guðmundsson. Sunnud. 5. ágúst, 2001.
Meira
"ÞETTA er einstök upplifun," segir Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg í Kanada, um hátíðarhöldin í kringum Íslendingadaginn í Gimli, sem fóru fram um nýliðna helgi.
Meira
HINN árlegi sparidansleikur Milljónamæringanna verður haldinn í kvöld á Broadway en hann hefur verið fastur liður í skemmtanaflóru landsins allt síðan sveitin var stofnuð fyrir níu árum.
Meira
ÓKRÝNDIR konungar hins svokallaða dauðarokkstímabils, þegar maðurinn með ljáinn tók sér gítar í hönd og sveif yfir vötnum hér á landi á ögn vinalegri máta en hann gerði á tímum svarta dauða, er án efa hljómsveitin Strigaskór nr. 42.
Meira
ÆTLI það sé hin glæsilega útivistaraðstaða í Nauthólsvíkinni - hvar hægt er að sleikja sól og liggja í gulum sandi - sem gerir það að verkum að öldnu og sólbökuðu kempurnar í Beach Boys banka á dyr Tónlistans? Maður spyr sig!
Meira
ÞÓTT halla fari að hausti er sumarið enn á blússandi stími, a.m.k. í tónlistarlegum skilningi. Það ætti að sjást berlega er horft er til toppsætis Tónlistans, hvar safnplatan Svona er sumarið 2001 , trónir.
Meira
ÞAÐ er ekkert smávegis, stökkið sem þeir rappbræður í Outkast, Dré og Big Boi, taka undir sig í Tónlistalandi þessa vikuna - fara úr 168. sæti í það 20.!
Meira
MYNDLISTAMAÐURINN Díana Hrafnsdóttir hefur opnað sína fyrstu einkasýningu og er hún í Selinu, Gallerí Reykjavík, Óðinsgötumegin. Sýningin ber yfirskriftina Undir niðri og eru verkin tréristur unnar á þessu ári.
Meira
Í dag er laugardagur 11. ágúst, 223. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama.
Meira
ÁGÚST Einarsson, prófessor og varaþingmaður, heldur því fram á vefsíðu sinni í þessari viku að samningsdrög Reyðaráls hf. við Hydro Aluminium séu fáránleg, svo notað sé hans eigið orðalag.
Meira
Þegar hann bogann bendir, birtir að hjartakró. Örvarnar, sem hann sendir, særa´ eigi´, en hæfa þó. Heyri´ eg, er Hrosshársgrani hræra fer strengjabjóð, dauðvona syngja svani, sjávar og klukkna hljóð. Úr gígjunni hregg hann hristir, hríðir og þrumu sköll.
Meira
Það blasir við, segir Jón Steinar Gunnlaugsson, að hér var gerð tilraun til að afhenda þessum stóra hluthafa í LÍ fjármuni út úr félaginu, sem nema sýnilega meira en 700 milljónum króna, fyrir ekki neitt.
Meira
SÍÐASTLIÐNA verslunarmannahelgi fór ég með fjölskyldu minni og tjaldaði við Laugarvatn. Þetta er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi enda fleiri á faraldsfæti þessa helgi.
Meira
Þessar duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til stuðnings Rauða krossi Íslands og söfnuðust 1.699 krónur. Þær heita Anna Kristín Einarsdóttir og Þóra Katrín...
Meira
Þessar glaðlegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til stuðnings Rauða krossi Íslands og söfnuðust 6.917 krónur. Þær heita Hjördís Sveinbjörnsdóttir, Björg Finnbogadóttir, Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, og Kristel Finnbogadóttir...
Meira
Ég hvet þá sem vilja sporna gegn þeirri þróun sem er að verða á þjónustu á landsbyggðinni, segir Björgvin Valur Guðmundsson, að sniðganga verslanir Lyfju sé þess nokkur kostur.
Meira
Alma Hermína Eggertsdóttir fæddist í Keflavík 15. mars 1905. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 30. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 8. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Ástmar Ólafsson fæddist í Keflavík hinn 18. desember 1980. Hann fórst með m.b. Unu í Garði 17. júlí síðastliðinn og minningarathöfn um hann var í Ytri-Njarðvíkurkirkju 10. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Dagbjört Jóna Jónsdóttir fæddist í Bæjum á Snæfjallaströnd 17. ágúst 1912. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 1. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík 10. júlí.
MeiraKaupa minningabók
Helga Einarsdóttir fæddist í Selhaga í Stafholtstungum 27. desember 1915. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 16. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Blönduóskirkju 22. júlí. Pálmi Sigurður Gíslason fæddist á Bergsstöðum í Svartárdal í A-Húnavatnssýslu 2. júlí 1938. Hann lést af slysförum 22. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 30. júlí.
MeiraKaupa minningabók
Henný Martha Emmi Frímannsson fæddist í Lubeck í Þýskalandi 26. febrúar 1930. Hún lést 10. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kettinge í Danmörku 14. júlí.
MeiraKaupa minningabók
Jakobína Jóhannesdóttir fæddist á Syðra-Hóli í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði 7. mars 1912. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 27. júlí.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Pétursdóttir fæddist í Gröf í Lundarreykjadal 28. desember 1925. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Pétur Þorsteinsson og Guðfinna Guðmundsdóttir á Mið-Fossum í Andakíl. Systkini hennar eru Sigrún, f.
MeiraKaupa minningabók
Mikael Jóhannesson fæddist á Akureyri hinn 16. júlí 1927. Hann andaðist á heimili sínu hinn 28. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 10. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Ottó Geir Þorvaldsson bóndi í Víðimýrarseli og Viðvík í Skagafirði fæddist á Sauðárkróki 18. febrúar 1922. Hann lést 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorvaldur Þorvaldsson og Helga Jóhannesdótttir á Sauðárkróki. Systkini Ottós eru: Jóhannes, f.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Ólafsson fæddist í Háagerði á Skagaströnd 24. maí 1905. Hann lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 4. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson í Háagerði, f. 1856, d. 1906, og Helga Árnadóttir, f. í Eyjafirði 6. júní 1879, d. 25.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Halldórsdóttir frá Orrahóli fæddist 12. september 1906 í Magnússkógum í Hvammssveit í Dalasýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Halldór Guðmundsson bóndi þar, f. 3. okt. 1875, d. 13. júlí 1962, og Ingibjörg Sigríður Jensdóttir, f. 19. okt. 1876,...
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Þóra Guðbrandsdóttir fæddist á Siglufirði 13. október 1919. Hún lést í Sjúkrahúsi Siglufjarðar 5. ágúst 2001. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Flóventsdóttir, f. 31. júlí 1886 á Kálfsskinni á Árskógsströnd, d. 3.
MeiraKaupa minningabók
Tómas Ingi Márusson fæddist á Ystu-Grund í Blönduhlíð í Skagafirði 26. júlí 1937. Hann lést á heimili sínu 4. ágúst síðastliðinn. Tómas var sonur Márusar Guðmundssonar bónda á Bjarnastöðum, f. 25.7. 1902 á Illugastöðum í Flókadal í Fljótum, d. 18.11.
MeiraKaupa minningabók
Þorvarður Sigurðsson frá Teigaseli fæddist í Fremraseli í Tungu 10. 9. 1942. Hann lést 25. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Þorsteinsson, f. 10. 9. 1907, og kona hans Margrét Ingibjörg Stefánsdóttir, f. 1. 5. 1912.
MeiraKaupa minningabók
Í LJÓSI aukinnar samkeppni á sementsmarkaði í landinu telur iðnaðarráðherra að endurskoða megi áform um einkavæðingu Sementverksmiðjunnar hf. á Akranesi.
Meira
HAGNAÐUR og umsvif írska flugfélagsins Ryanair, sem þekkt er fyrir lág flugfargjöld, hafa aukist talsvert á síðustu mánuðum á meðan þýska flugfélagið Lufthansa stendur frammi fyrir samdrætti.
Meira
MEÐALVEXTIR SKULDABRÉFA OG DRÁTTARVEXTIR Dráttar Vxt. alm. Vísitölub. vextir skbr. lán Mars '00 21,0 16,1 9,0 Apríl '00 21,5 16,2 9,0 Maí ‘00 21,5 16,2 9,0 Júní '00 22,0 16,2 9,1 Júlí '00 22,5 16,8 9,8 Ágúst '00 23,0 17,0 9,8 Sept.
Meira
ÍSLANDSSÍMI skilaði frekari skýringum varðandi afkomuviðvörun sem fyrirtækið sendi frá sér 12. júlí síðastliðinn til Verðbréfaþings Íslands í gær. Máli Íslandssíma verður tekið fyrir á stjórnarfundi Verðbréfaþings á þriðjudag í næstu viku.
Meira
HAGNAÐUR Kaupþings hf. eftir skatta á fyrri hluta ársins 2001 dróst saman um tæp 37% frá sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn í ár var 322 milljónir króna en 516 milljónir árið áður.
Meira
VÍSITÖLUR Neysluv. Byggingar Launa- Eldri lánskj. til verðtr vísitala vísitala Mars '00 3,848 194,9 238,9 189,6 Apríl '00 3,878 196,4 239,4 191,1 Maí '00 3,902 197,6 244,1 194,5 Júní '00 3,917 198,4 244,4 195,7 Júlí '00 3.
Meira
Óhóflegt sykurát íslenskra barna og unglinga þykir mikið áhyggjuefni, en fimmtán ára unglingar fá að meðaltali 100 grömm af sykri á dag, eða sem samsvarar 44 sykurmolum.
Meira
Komnar eru á markað nýjar náttúruvörur frá danska fyrirtækinu Eurovita. Vörurnar eru unnar úr engiferrót. Þær vörutegundir sem komnar eru á markað hér eru fimm, þrennskonar töflur ásamt húðkremi og fótakremi. Það er Thorarensen Lyf sem flytur...
Meira
GEITUNGAR virðast vera mun fleiri í ár en í fyrra, en nú fer sá tími í hönd þegar þeir fara úr búum sínum og gerast ágengir, að sögn Erlings Ólafssonar skordýrafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Meira
VEITINGASTAÐURINN Sticks'n Sushi mun opna sushi-bar í Kringlunni um miðjan mánuðinn og verður hann staðsettur í Nýkaup þar sem kaffihúsið Rómarkaffi var áður, að sögn Snorra Birgis Snorrasonar eiganda Sticks'n Sushi.
Meira
Í dag, 11. ágúst, er Vigdís Ferdinandsdóttir vinkona mín 80 ára. Hún dvelst nú á Náttúrulækningahælinu í Hveragerði í fallegu og kyrrlátu umhverfi laufgaðra trjá og garða og er þar að ná sér eftir mjaðmagrindarbrot.
Meira
ÞEIR, sem búa í þéttbýlum borgum, virðast viðkvæmari fyrir geðsjúkdómum en þeir sem búa til sveita. Þeim er hættara við því að einangrast félagslega. Félagsleg einangrun getur kynt undir óraunsæjum hugmyndum sem síðar þróast yfir í sjúklega andlega...
Meira
Allt frá því danskan var hreinsuð úr íslenskunni hefur stoltið lýst af Íslendingum yfir þeirri stefnu að smíða nýyrði yfir ný fyrirbæri sem fram koma. Við segjum þyrla og tölva með glampa í augum.
Meira
Lesandi, sem er kona um áttrætt, hafði farið í skoðunarferð til slökkviliðsins með sínu kvenfélagi. Þessir indælu menn mældu hjá þeim blóðþrýstinginn og sitthvað fleira.
Meira
HÓLAHÁTÍÐ verður á morgun, sunnudaginn 12. ágúst. Guðsþjónusta verður í Hólakirkju kl. 14. Karl Sigurbjörnsson biskup predikar, fyrir altari þjóna sr. Hannes Blandon, sr. Gísli Gunnarsson og Karl Sigurbjörnsson, organisti verður Rögnvaldur Valbergsson.
Meira
KARLAR leita síður en konur til læknis samkvæmt nýrri skýrslu sem gefin var út í Bandaríkjunum af þeirri stofnun þar í landi sem sér um varnir gegn sjúkdómum og um forvarnir ( Center for Disease Control and Prevention ).
Meira
LANGTUM fleiri börn slasast á leikvellinum en í umferðinni, segir í grein sem barnalæknar við barnaspítalann Children's Hospital & Medical Center í Cincinnati í Bandaríkjunum skrifa í júlíhefti tímaritsins Ambulatory Pediatrics .
Meira
ÞÁ tekur til máls Víkingur Guðmundsson á Grænhóli: "Kæri Gísli! Ég þakka þér alla þættina í Morgunblaðinu og öll okkar samskipti. Ég óttast svolítið um íslenskuna, þegar Megas verður tekinn við varðveislunni á tungunni.
Meira
STAÐAN kom upp í A-flokki skákhátíðarinnar í Pardubice er lauk fyrir skömmu. Tékkneski alþjóðlegi meistarinn Michal Konopka (2.481) hafði hvítt gegn Andrey Ubushiev (2.265) 34. Rf3! Re8 35. Re5+ Kf8 36. Dd7 og svartur gafst upp.
Meira
ÞÓTT keppt hafi verið í stangarstökki karla á öllum heimsmeistaramótunum átta þá hafa aðeins þrír menn unnið gullverðlaunin í greininni. Heimsmethafinn Sergei Bubka frá Úkraínu vann stangarstökkið á sex fyrstu mótunum, sem er einstakur árangur.
Meira
* ATLI Eðvaldsson gerði eina breytingu á landsliðshópnum í knattspyrnu sem mætir Pólverjum í vináttuleik 15. ágúst. Brynjar Björn Gunnarsson dró sig út úr hópnum vegna meiðsla og valdi Atli Helga Kolviðsson, Kärnten, í hans stað.
Meira
Í VIÐTALI við enska blaðið Bolton Evening News sagði knattspyrnumaðurinn Guðni Bergsson reynsluna skipta miklu máli þegar kæmi að því að ná árangri í úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Meira
FORSVARSMENN Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, IAAF, eru ekkert alltof ánægðir með aðsókn áhorfenda á heimsmeistaramótið í Edmonton, þótt framkvæmd mótsins þyki ágæt. Áhorfendur hafa að jafnaði verið um 35.
Meira
KNATTSPYRNA 1. deild karla Stjarnan - Víkingur R. 4:1 Adolf Sveinsson 18., 70., Garðar Jóhannsson 31. vítasp., 67. vítasp. - Stefán Ö. Arnarsson 56. Dalvík - ÍR 1:0 Jón Örvar Eiríksson 32.
Meira
PHILADELPHIA, lið Margrétar Ólafsdóttur og Rakelar Ögmundsdóttur, tryggði sér sæti í úrslitum bandarísku atvinnumannadeildarinnar í knattspyrnu á fimmtudag þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við San Diego Spirit. Tara Koelski kom San Diego yfir með marki á 47. mínútu en þegar 15 mínútur voru til leiksloka jafnaði enska landsliðskonan Kelly Smith leikinn fyrir Philadelphia og tryggði þeim þar með sæti í úrslitum deildarinnar.
Meira
ÁSTRALAR fögnuðu sínum fyrstu gullverðlaunum á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum þegar Dímítrí Markov vann öruggan sigur í stangarstökki karla, stökk 6,05 metra og bætti mótsmet Rússans, Maksíms Tarasovs, frá síðasta heimsmeistaramóti um 3...
Meira
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, telur að nýliðarnir,sem hann valdi í hópinn sem mætir Pólverjum í vináttuleik 15. ágúst,veiti honum nýja möguleika. Nýliðarnir eru þeir Jóhannes Karl Guðjónsson og Marel Baldvinsson og að auki kemur Jóhann B. Guðmundsson inn í liðið á nýjan leik eftir þónokkurt hlé. "Við erum alltaf að leita að nýjum möguleikum í þessu," sagði Atli í samtali við Morgunblaðið.
Meira
JERZY Engel, landsliðsþjálfari Póllands í knattspyrnu, hefur tilkynnt sveit sína, sem hann kemur með til Íslands - til að etja kappi við Íslendinga í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn kemur. Pólverjar koma með öflugt lið, en Ísland tapaði síðast fyrir þeim í fyrra í Varsjá, 1:0.
Meira
STJÖRNUMENN eru enn með í baráttunni um sæti í efstu deild eftir, 4:1, sigur á Víkingi á Stjörnuvelli í Garðabæ í gærkvöldi. Garðbæingar komust þar með upp að hlið Þórsara, sem eru í öðru sæti deildarinnar en Akureyrarliðið á leik til góða gegn Þrótti í dag. Víkingar hafa hins vegar sogast niður í fallbaráttuna og eru aðeins fjórum stigum á undan Tindastóli sem er í næst neðsta sæti deildarinnar.
Meira
MIKLAR sviptingar urðu í kvennaflokki á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik í Grafarholti í gær. Ólöf María Jónsdóttir, GK, og Þórdís Geirsdóttir léku vel og eru í tveimur efstu sætunum en Kristín Elsa Erlendsdóttir er í því þriðja.
Meira
Á ÞINGI Alþjóða frjálsíþróttasambandsins á dögunum var samþykkt að tekin yrði upp keppni í tugþraut kvenna árið 2003 og stefnt að því gera greinina að fullgildri keppnisgrein á stórmótum á næstu árum þar á eftir eins og gert var þegar kvenfólk tók að keppa í sleggjukasti og stangarstökki á síðasta áratug.
Meira
FISKUR og aðrar sjávarafurðir njóta æ vaxandi vinsælda meðal yngri kynslóðarinnar í Noregi . Á síðasta ári fóru 75.000 tonn af sjávarafurðum til neyzlu á heimilunum, en það er um 3% aukning frá árinu áður.
Meira
SÓKNARDÖGUM krókabáta fækkar úr 23 í 21 um næstu fiskveiðiáramót, að óbreyttum lögum um fiskveiðar krókabáta. Þá verða sóknardagarnir auk þess framseljanlegir en á því verða þó ýmsir annmarkar. Bátum sem reru á sóknardögum eftir 1.
Meira
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Heinaberg ehf. á Hornafirði hefur keypt togbátinn Víði Trausta EA af Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. Að sögn Ólafs Vilhjálmssonar, útgerðarmanns á Hornafirði, verður báturinn gerður út á net til að byrja með.
Meira
Á SÍÐASTA mánuði hafa Íslendingar orðið vitni að mörgum dramatískum augnablikum í lífi Árna Johnsen. Þegar fer að hitna undir þingmanninum flýr hann heim til Heimaeyjar þar sem hann reynir að standa af sér áhlaupið.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 1261 orð
| 3 myndir
Þorsteinn Helgason, Hjálmtýr Heiðdal og Guðmundur Bjartmarsson eru að vinna að heimildarmynd um Tyrkjaránið. Heiða Jóhannsdóttir tók þá fyrrnefndu tali og forvitnaðist um verkefnið.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 410 orð
| 1 mynd
nefnist grein Lindu Vilhjálmsdóttur skálds þar sem hún fjallar um íslensk samtímastjórnmál, stöðu vinstrimanna, kosningalöggjöfina, Evrópusambandsmálin, fiskveiðistjórnunarkerfið, gagnagrunn á heilbrigðissviði, hálendismál, kristnihátíðina og...
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 5081 orð
| 1 mynd
Við eigum ansi langt í land Ef orðin í orðabókinni segja satt ætti hún að vera vafningsklukka á daginn undrablóm um nætur Fegurðinni verður ekki þinglýst Hvorki nýrri né gamalli fegurð né heldur aðferðunum að ákvarða hana Við eigum ansi langt í land að...
Meira
Since brass, nor stone, nor earth, nor boundless sea But sad mortality o'er-sways their power, How with this rage shall beauty hold a plea, Whose action is no stronger than a flower?
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 2529 orð
| 1 mynd
Í Noregi er deilt um það hvar og hvernig Gokstad-skipinu, Tune-skipinu og Oseberg-skipinu verði best fyrir komið. Húsnæði Víkingaskipasafnsins í Bygdøy stenst ekki lengur kröfur um rétt rakastig, sýningaraðstöðu og fleira. Liggja hlutar skipanna undir skemmdum verði ekkert að gert. Hafa sumir lagt til að skipin verði flutt í nýtt safn en aðrir halda því fram að þau myndu ekki þola flutninginn.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 1300 orð
| 2 myndir
FÆREYINGAR efna nú í ágúst til nýrrar listahátíðar, Listastefnu, sem ráðgert er að verði haldin árlega í eyjunum. Undirtitill eða vinnuheiti hátíðarinnar í fyrsta sinn er Tólf brimsaltir sumardagar.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 2467 orð
| 2 myndir
"Í spjalli við þýðendur og þýðingafræðinga erlendis hef ég stundum reynt að lýsa viðfangsefnum og afköstum Helga Hálfdanarsonar í bókmenntaþýðingum. Lyftast þá brúnir mjög í undrun. Þegar ég bæti við að Helgi hafi lokið fullri starfsævi á öðru sviði sé ég að menn eru hættir að trúa mér og ég reyni jafnvel ekki að bæta því við að Helgi sé samt með afbrigðum vandvirkur þýðandi og raunar með mestu völundum íslenskrar tungu á tuttugustu öld og einn fremsti rithöfundur landsins."
Meira
er án vafa mikilvirkasti þýðandi landsins. Á meðal þeirra verka sem hann hefur snúið á íslenska tungu eru öll leikrit Williams Shakespears, 37 að tölu, og 32 grískir harmleikir eftir Æskilos, Sófókles og Evrípídes.
Meira
STRÍÐ Vesturveldanna gegn kínversku þjóðinni á 19. öld, Breta, Frakka, Bandaríkjamanna, Rússa, einnig Norðurlanda, hafa einkum orðið minnisstæð fyrir grimmdarverk Kínverja í þessum styrjöldum, kenndum við ópíum.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 588 orð
| 6 myndir
SKYLT er hér í upphafi þáttar að benda á villur úr fyrri þáttum. Í fyrsta þætti er þriðja bragmynd af ferskeyttri hringhendu en dæmið hringhent stikluvik. Þá er tályklun (frumaukrímað) ekki sýnd á fjórðu bragmynd.
Meira
Að brjóta upp; hugbrot, haugbrot...Sárafáum kvikmyndahöfundum hefur tekist að rjúfa sjálfvirk tengsl áhorfandans við sína eigin þekkingu, enda útheimtir það hneyksli í ákveðnum skilningi, - eitthvað sem fleiðrar hugann líkt og við snöggvakta blöskrun.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 906 orð
| 1 mynd
Á Vísindavefnum í vikunni sem er að líða var meðal annars fjallað um tunglmyrkva, hvort genið sem veldur rauðu hári komi frá Neanderdalsmanninum, hvað hreint gull er mörg karöt og hvað lausnarsteinn sé.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 1713 orð
| 2 myndir
Steingrímur Þórhallsson hefur verið við nám í kirkjutónlist í Róm í þrjú ár. Fyrir hans tilstilli koma hingað í þessari viku tónlistarmenn úr Páfagarði og syngja gregorssöng í Skálholti um helgina. Í samtali við Bergþóru Jónsdóttur segir Steingrímur frá rannsóknum sínum á íslensku miðaldahandriti, sem gæti verið elsta nótnahandrit á Norðurlöndunum, og einn gestanna, munkurinn Dom Daniel Saulnier, segir frá endurreisn gregorssöngsins á 20. öld.
Meira
Hljóðnuð eru hlátrasköllin er lundinn fylltu forðum Þornuð er lindin sem aldrei þvarr Enginn sýpur þann mjöð er Ölkofri seiddi fyrrum Hér stendur tíminn kyrr og fátt um...
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 405 orð
| 1 mynd
HUGBÚNAÐARFRÖMUÐURINN Bill Gates er nú í hópi stærri safnara á 19. og 20. aldar bandarískri myndlist að því er greint var frá í fréttabréfinu ARTnewsletter á dögunum.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 275 orð
| 1 mynd
EX LIBRIS" er titill myndlistarsýningar Margrétar Reykdal sem verður opnuð í Hafnarborg, Sverrissal í dag, laugardag, kl. 15. Þar sýnir hún 31 mynd og myndaraðir sem að mestu leyti eru unnar í olíulit á striga.
Meira
I Börn eru að verða æ sýnilegri framleiðsluvara í tónlistariðnaði Vesturlanda. Framleiðendur og útgefendur róa á þessi mið, og á síðustu misserum hefur fjöldinn allur af krakkagrúppum litið dagsins ljós.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 415 orð
| 1 mynd
NÝ SKÁLDSAGA eftir suður-afríska rithöfundinn Nadine Gordimer er væntanleg í byrjun september. Hún heitir The Pickup (Kynni) og segir frá sambandi hvítrar yfirstéttarstúlku og fátæks blökkumanns í Suður-Afríku, sem er ólöglegur innflytjandi í landinu.
Meira
MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar. Til 31.8. Árnastofnun: Handritasýning opin 11-16 mánudaga-laugardaga. Til 25.8. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug vígaferli og götulíf víkinganna í York. Til 1. okt. Galleri@hlemmur.
Meira
SKYNSEMIN hefur ómetanlega þýðingu fyrir manninn. Í fortíðinni sögðu menn oft að það væri hún sem greindi okkur frá dýrum. Hún hefur verið ómetanleg í allri baráttu okkar við að lifa af í þessum heimi. En skynsemin er aðeins hluti mannsins.
Meira
í Vestmannaeyjum árið 1627 er einn af áhrifamestu viðburðunum sem enn lifa í þjóðarvitundinni. Nú er í vinnslu ítarleg heimildarmynd um þennan atburð og fara tökur fram bæði á slóðum ránsins og heimaslóðum ræningjanna sjálfra í Norður-Afríku.
Meira
11. ágúst 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 1425 orð
| 1 mynd
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.