Reykjavíkurhöfn | Ný hafnaraðstaða Landhelgisgæslu Íslands við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn var tekin í notkun í vikunni, en þá var varðskipið Óðinn flutt að Faxagarði frá Ingólfsgarði, þar sem Landhelgisgæslan hefur haft aðstöðu í u.þ.b 50 ár.
Meira
Mosfellsbær | Allt andvirði vistheimilisins Tjaldaness í Mosfellsdal sem nú hefur verið auglýst til sölu mun renna í Framkvæmdasjóð fatlaðra, og hljóðar hæsta tilboðið sem barst í landið upp á 135 milljónir króna.
Meira
GERT er ráð fyrir að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, verði fluttur á sjúkrahús í París í dag en talið er að hann þjáist af blóðsjúkdómi. Ísraelar segja að þeir muni heimila Arafat að snúa aftur til Vesturbakkans verði hann fluttur til Parísar.
Meira
Áfrýjað | Íbúarnir tólf sem kærðu Norður-Hérað vegna sameiningar Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs í kjölfar þess að sameining þessara sveitarfélaga og Fljótsdalshrepps var felld, hafa áfrýjað frávísunardómi Héraðsdóms Austurlands til...
Meira
BAUGUR Group hf. verður stærsti hluthafinn í Og Vodafone með um 30% hlut eftir kaup félagsins á Norðurljósum sem tilkynnt var um í gær. Kaupverð Norðurljósa er 3.620 milljónir og fá hluthafar í Norðurljósum greitt með nýju hlutafé í Og Vodafone.
Meira
EIN af hugmyndum þeim sem Árni Johnsen setur fram í tillögum um átak í ferðaþjónustu og atvinnumálum Vesturbyggðar, er að brjóstmynd af John F. Kennedy yngri verði komið fyrir við Flókalund á Barðaströnd. Kennedy yngri var sonur Johns F.
Meira
*HEKLA Sigmundsdóttir líffræðingur varði nýlega doktorsritgerð sem nefnist Hlutverk viðloðunarsameinda í meingerð psoriasis. Vörnin fór fram við læknadeild Háskóla Íslands 8. október sl.
Meira
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær fertugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur en maðurinn hefur fimmtán sinnum áður verið dæmdur fyrir ölvun við akstur og 14 sinnum fyrir akstur sviptur ökurétti, auk fleiri brota.
Meira
Eyjamaður kaupir skólahús | Þröstur Johnsen í Vestmannaeyjum átti hæsta tilboð í hús grunnskólans á Núpi í Dýrafirði, en Ríkiskaup auglýstu húsið til sölu á dögunum. Alls bárust 7 tilboð og var tilboð Þrastar að upphæð 8,85 milljónir króna.
Meira
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna, SUS, hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna sameiningar Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík: "Stjórn SUS fagnar frumkvæði og áræðni menntamálaráðherra við að sameina Tækniháskóla Íslands og Háskólann...
Meira
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIN fimm sem skráð eru í Kauphöll Íslands og eru meðal fimmtán fyrirtækja í Úrvalsvísitölu skiluðu samanlagt 51,5 milljarða króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins.
Meira
SIGURÐUR G. Guðjónsson fyrrverandi forstjóri Norðurljósa er hættur störfum hjá félaginu en honum var sagt upp í kjölfar kaupa Og Vodafone á Norðurljósum.
Meira
ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra skýrði frá því í ávarpi við setningu ársfundar Alþýðusambands Íslands, að lokið hafi verið við gerð frumvarps um breytingu á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
Meira
VÍSINDAMENN segjast hafa fundið bein áður óþekktra, dvergvaxinna manna eða mannapa í helli á afskekktri indónesískri eyju og er talið að þeir hafi lifað þar fyrir um það bil 12.000 árum.
Meira
ÞRÍR Íslendingar munu fylgjast með forsetakosningum, sem fara fram í Úkraínu á sunnudag. Það er íslenska friðargæslan sem sendir þremenningana að beiðni Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE).
Meira
Stykkishólmur | Líklegt er að íbúar að minnsta kosti tveggja sveitarfélaga af sautján á Vesturlandi felli tillögu um sameiningu við önnur í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan gæti orðið sú að sveitarfélögunum fækkaði úr sautján í tíu.
Meira
GRÍÐARLEG árekstrarhrina reið yfir höfuðborgarsvæðið í gærmorgun en ekki urðu alvarleg slys á fólki. Svo virðist sem mikil hálka hafi komið ökumönnum illilega á óvart á leið til vinnu því mest var um óhöppin milli klukkan 7 og 9.
Meira
HALLDÓR Björnsson hefur óskað eftir því að láta af störfum í miðstjórn Alþýðusambands Íslands en kjósa á fulltrúa til miðstjórnar á ársfundi ASÍ í dag. Halldór lét fyrir skömmu af formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands.
Meira
Heimavist MÍ breytt | Ríkiskaup hafa samið við Ágúst og Flosa ehf. um breytingar á einni álmu heimavistar Menntaskólans á Ísafirði á grundvelli tilboðs fyrirtækisins í verkið að upphæð rúmar 16,2 milljónir króna.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að sýkna beri sendibílstjóra af ákæru um brot á umferðarlögum með því að hafa ekið sendibíl yfir sjö daga tímabil án þess að taka sér "lögboðna vikuhvíld", eins og það var...
Meira
NÝLEG augnrannsókn sem unnin var í samvinnu Háskóla Íslands, Læknaháskólans í Kanazawa og Alþjóðastofnunar umhverfisfræðirannsókna hefur sýnt fram á að fylgni er með hóflegri rauðvínsdrykkju og hverfandi líkum á skýi á augasteini.
Meira
ÍSLAND er í 5. sæti í A-riðli á ólympíumótinu í brids þegar tveimur umferðum er ólokið en fjórar efstu sveitirnar í hverjum riðli komast áfram í úrslitakeppni. Ísland vann í gær Taívan 17:13, Marokkó 25:5 og Bangladesh 23:7 og hafði þá 271 stig.
Meira
ÍSLENSKU sveitirnar á Ólympíuskákmótinu á Mallorka gerðu báðar jafntefli í gær í 13. og næstsíðustu umferðinni. Karlaliðið tefldi við Bangladesh sem er svipað og styrkleika og kvennaliðið tefldi við Kirgistan.
Meira
BJÖRGUNARMENN fundu í gær þriggja ára stúlku í flaki bifreiðar sem hún var farþegi í þegar mikill landskjálfti reið yfir Japan á laugardag. Stúlkan var látin.
Meira
RÍKISSÁTTASEMJARI greindi frá því laust eftir miðnætti í nótt að hann hefði ákveðið að leggja fram miðlunartillögu í launadeilu Kennarasambandsins og launanefndar sveitarfélaganna.
Meira
Miðlunartillaga telst felld í atkvæðagreiðslu ef meira en helmingur greiddra atkvæða er á móti henni og ef mótatkvæði eru fleiri en fjórðungur atkvæða samkvæmt atkvæða- eða félagaskrá. Niðurstaða hjá hvorum hópnum fyrir sig, óháð niðurstöðu hins, ræður úrslitum um samþykkt eða synjun.
Meira
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur (OR), gefur lítið fyrir svör Alfreðs Þorsteinssonar, stjórnarformanns OR, í Morgunblaðinu í gær, varðandi afhendingu endurskoðunarskýrslna Línu.nets.
Meira
OG VODAFONE mun kaupa öll hlutabréf í Norðurljósum, sem verður dótturfélag Og Vodafone, á 3.620 milljónir króna. Nú þegar hafa um 90% hluthafa í Norðurljósum samþykkt sölu til Og Vodafone.
Meira
NÝTT vefrit hefur hafið göngu sína á slóðinni www.ihald.is. Um er að ræða pólitískt vefrit en tilgangur þess er að stuðla að og taka þátt í frjálsri og opinberri umræðu um málefni samtímans.
Meira
Alþjóðlegur psoriasis-dagur er haldinn í dag, 29. október, og er þetta í fyrsta sinn sem alþjóða psoriasis-dagurinn er haldinn. Í tilefni dagsins verður opið hús í Bláa lóninu laugardaginn 30. október, kl.
Meira
SAMTÖK fólks sem glímir við offitu hefur opnað upplýsingasíma, síminn er 824-6622. Ætlunin er að hjálpa fólki sem þarf hjálp með offituvandamálin, leiðbeina fólki og vísa því á réttan stað innan heilbrigðiskerfisins.
Meira
KOSNINGAYFIRVÖLD í Broward-sýslu í Flórída hyggjast senda tugum þúsunda kjósenda aftur kjörseðla sem týndust en fólk sem kýs utankjörstaða vegna ferðalaga á kjördag fær seðlana senda til sín í pósti. Alls voru sendir út liðlega 127.
Meira
ARABÍSKA sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gær mynd þar sem hópur manna í Írak kveðst hafa tekið pólska konu í gíslingu. Konan mun hafa pólskt og íraskt ríkisfang.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra sagði á ársfundi Hafnasambands sveitarfélaga að hann gæti ekki stutt þær leiðir sem kæmu til greina að fara vilji menn stuðla að því að strandsiglingar hæfust að nýju.
Meira
Útlit er fyrir vaxandi verðbólgu og áframhaldandi atvinnuleysi þrátt fyrir mikinn hagvöxt á næstu árum. Áhyggjur af þróun efnahagsmála settu m.a. mark sitt á umræður á ársfundi ASÍ í gær. Fundarmönnum var einnig tíðrætt um skattalækkanir og innflutning erlends verkafólks á lágmarkskjörum.
Meira
FIMMTÁN félagasamtök og aðilar, sem láta sig hagsmuni kvenna og kynjajafnrétti varða, efndu til athafnar á Arnarhóli síðdegis í gær þar sem ofbeldi gagnvart konum var mótmælt.
Meira
UNDIRRITAÐUR hefur verið samstarfssamningur milli Krafts - Stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, aðstandenda hugmyndar um endurhæfingarstöð fyrir fólk sem greinist með krabbamein og IMG Deloitte ehf.
Meira
Semja við Rekstrarvörur | Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur gert þriggja ára samning við Rekstrarvörur um heildarþjónustu varðandi allar hreinlætisvörur og almennar rekstrar- og hjúkrunarvörur er fást hjá RV. Frá þessu greinir í fréttatilkynningu.
Meira
Ef verðbólga þróast á næstunni í samræmi við glænýja spá hagdeildar Alþýðusambands Íslands er verulega hætta á að allt fari á versta veg og kjarasamningum verði sagt upp í lok næsta árs.
Meira
Keflavík | "Það er í mörg horn að líta þegar kemur að sýningu, ég þarf að sjá til þess að allir geri sitt," segir Anna Þóra Þórhallsdóttir sem er að hefja sitt fyrsta starfsár sem formaður Leikfélags Keflavíkur.
Meira
ÞREMUR erlendum kosningastarfsmönnum var rænt í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær. Hópur, sem nefnir sig Her múslima, hefur lýst yfir ábyrgð á ráninu.
Meira
Laugarneshverfi | Framkvæmdir við stækkun á íþróttasölum líkamsræktarstöðvarinnar World Class í Laugum eru nú hafnar, og verður bætt við þremur íþróttasölum á efri hæð og tækjasalur á neðri hæð stækkaður talsvert.
Meira
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli hefur verið þrefaldaður að stærð og er nú orðinn stærsti þjóðgarður Evrópu. Skaftafellsþjóðgarður nær nú meðal annars til svæðis sem nemur um 57% af Vatnajökli auk Lakagígasvæðisins.
Meira
HAFT var í gær eftir einum lækna Yassers Arafats, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, að hann yrði fluttur á sjúkrahús í Frakklandi en fréttir voru um, að hann hefði neitað að fara úr landi.
Meira
ALMYRKVI varð á tungli í fyrrinótt og sást hann víða frá landinu. Á höfuðborgarsvæðinu var fremur skýjað en inn á milli náðu stjörnuáhugamenn myndum af tunglmyrkvanum Sömu sögu var að segja víðar af landinu, m.a.
Meira
SKUGGASUND 1 í Reykjavík verður nýtt aðsetur umhverfisráðuneytisins frá og með næsta þriðjudegi. Vegna flutninganna verða skrifstofur ráðuneytisins í Vonarstræti 4 lokaðar í dag, 29. október, og mánudaginn 1. nóvember.
Meira
NEYTENDASAMTÖKIN hafa komið upp upplýsingasíðu um verð á eldsneyti á heimasíðu samtakanna, www.ns.is. Þar er að finna hlekk með upplýsingum um eldsneytisverð hjá olíufélögunum.
Meira
ÚTLÁN KB banka þrefölduðust frá áramótum til septemberloka og voru þá komin yfir eitt þúsund milljarða króna. Aukningin nemur 703 milljörðum í krónum talið en þar af eru útlán danska bankans FIH, sem nú er hluti af samstæðu KB banka, 643 milljarðar.
Meira
Á AUKAFUNDI fræðsluráðs Reykjavíkur sem hefst kl. 13.30 í dag mun formaður ráðsins, Stefán Jón Hafstein, leggja það til að vetrarfríi í grunnskólum, sem hefjast á eftir helgi, verði aflýst.
Meira
UMSKIPTI urðu á rekstri Leikfélags Reykjavíkur á síðasta ári, og í fyrsta sinn um árabil varð hagnaður af rekstri þess. Aðalfundur félagsins var haldinn í vikunni, en stjórnarformaður þess er Inga Jóna Þórðardóttir.
Meira
BYGGÐ verða þrettán fjölbýlishús, allt að fimm hæðir, með samtals um 460 íbúðum á Norðurbakkanum í Hafnarfirði ef tillögur að deiliskipulagi sem nú eru í kynningu verða samþykktar. Hægt verður að hefja framkvæmdir næsta vor ef áætlanir ganga eftir.
Meira
Vinstri grænir | Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri og nágrenni verður haldinn í Gróðrarstöðinni við Krókeyri á laugard., 30. október og hefst hann klukkan 14.
Meira
Er holtasóley var valin þjóðarblóm Íslendinga barst ábending um að í Grasasögum í Þjóðsögum og ævintýrum Jóns Árnasonar hefði holtasóley verið nefnd þjófarót.
Meira
TILLAGA til þingsályktunar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og umsókn um að þau verði sett á heimsminjaskrá var lögð fram á Alþingi í síðustu viku. Fyrsti flutningsmaður er Katrín Fjeldsted.
Meira
Egilsstaðir | Þrjátíu skógarbændur mættu á fyrsta námskeið Grænni skóga á Austurlandi, sem hófst um síðustu helgi með námskeiðinu "Skógur og landnýting".
Meira
Þungar áhyggjur | Bæjarstjórn Húsavíkurbæjar hefur lýst yfir lýsir þungum áhyggjum vegna þeirrar erfiðu stöðu sem uppi er í málefnum grunnskólans og telur að málsaðilar nái vart saman við óbreyttar aðstæður, að því er fram kemur í samþykkt frá fundi...
Meira
ÚTLIT er fyrir að erlendir ferðamenn með flugi og Norrænu verði að minnsta kosti 360 þúsund á árinu í stað 320 þúsunda í fyrra og nemur aukningin væntanlega um 12-13%.
Meira
NÍTJÁN nemendur stunda nú nám í nýrri sviðslistadeild í Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Skólinn tók til starfa 12. október sl. og er um að ræða fjögurra anna kvöldnám en stefnt er að því að stofna dagdeild og síðar nám til lánshæfs BA-prófs.
Meira
Vestur-Sahara hefur verið kölluð síðasta nýlendan í Afríku. Landið var spænsk nýlenda, en árið 1975 slepptu Spánverjar hendinni af því og fólu í hendur Marokkó og Máritaníu.
Meira
Heimilisofbeldi er grafalvarlegt samfélagsvandamál sem teygir anga sína víðar en marga grunar. Af ýmsum sökum getur fórnarlömbum þess reynst torvelt að komast út úr aðstæðum sínum, og þau upplifa gjarnan mikla skömm og jafnvel sjálfsásökun.
Meira
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er hreint ekki öfundsverður. Honum er gert mjög erfitt fyrir að stjórna fyrirtækinu með eilífum fyrirspurnum frá fulltrúum minnihlutans í borgarstjórn í stjórn OR.
Meira
Þátturinn Guinness World Records - Heimsmetaþáttur Guinness - er eins og nafnið bendir til byggður á heimsmetabók Guinness og kennir þar margra grasa. Þetta er skemmtiþáttur sem í senn er forvitnilegur og stundum ákaflega undarlegur.
Meira
FRANSKI kvikmyndaleikstjórinn Jean-Jacques Annaud sýnir öll sín höfuðeinkenni í nýjustu mynd sinni Bræður tveir sem svipar um margt til hinnar rómuðu myndar hans Bjarnarins .
Meira
NORÐUR er heiti nýs leikrits Hrafnhildar Hagalín, sem verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld. Leikritið segir frá fólki sem statt er á flugvelli og er á leiðinni norður, þegar seinkun verður á fluginu.
Meira
HALLI Reynis hefur verið starfandi tónlistarmaður um langt skeið en fyrsta plata hans, Undir hömrunum háu , kom út 1993. Halli var búsettur um langa hríð í Danmörku en flutti heim aftur fyrir tveimur árum.
Meira
Í næsta mánuði kemur út mynddiskur með öllum myndböndum Britney Spears . Þar verður víst allnokkrar bombur að finna, eins og t.d. myndbönd og skot, sem ekki þóttu boðleg til sýningar á sjónvarpsstöðvum.
Meira
Slagharpan verður í öndvegi í Salnum í Kópavogi um helgina en í kvöld og á sunnudag sækja húsið heim tveir virtir bandarískir píanóleikarar, Nicholas Zumbro og Barry Snyder. Það er Zumbro sem stígur á svið í kvöld.
Meira
eftir Hrafnhildi Hagalín Leikstjóri: Viðar Eggertsson Leikmynd: Rebekka A. Ingimundardóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Páll Ragnarsson Hljóðmynd: Jón Hallur Stefánsson Leikendur: Guðrún S.
Meira
ÞETTA virkar eins og einhver hugmynd sem 12 ára gutti hefði getað fengið eftir að hafa stolist í hrollvekjusafnið hans pabba: "Hei vá, hvað ef Alien og Predator myndu mætast? Geggjað marr!
Meira
HLJÓMSVEIT trommuleikarans Jim Black, AlasNoAxis, heldur tónleika hér á landi næsta þriðjudag í Austurbæ. Sveitin er einnig skipuð þeim Hilmari Jenssyni (gítar), Skúla Sverrissyni (bassi) og Chris Speed (saxafónn).
Meira
SÆNSKI djasstónlistarmaðurinn Lisa Ekdahl heldur tónleika hér á landi um helgina. Ekdhal er einn þekktasti djassari Norðurlanda og er jafnvíg á djass og popp.
Meira
MYNDIN Sky Captain and the World of Tomorrow gerist í New York árið 1939. Hún segir frá hugaðri blaðakonu, Polly Perkins, sem Gwyneth Paltrow leikur, er fær til liðs við sig Höfuðsmann háloftanna, eins og persóna Judes Law er kölluð.
Meira
Frá Guðvarði Jónssyni:: "ÁSMUNDUR Stefánsson lét gamminn geisa á opinberum vettvangi um kjör aldraðra fyrir stuttu og var auðheyrt að hann ætlaði sér að öðlast virðingu einræðisstjórnar Íslands."
Meira
Sigurður Oddsson fjallar um álframleiðslu: "Sömu rök og áður mæltu með álvinnslu í viðbót við fiskvinnslu mæla nú með annarri framleiðslu en álframleiðslu."
Meira
Af hverju vill Geir Haarde ekki þiggja boð Þórólfs Árnasonar um fund með þingmönnum og borgarfulltrúum Reykvíkinga? Borgarstjóri bauð til fundarins miðvikudaginn 27. október og sendi fundarboð sitt viku áður.
Meira
Eggert Haukdal fjallar um veginn austur yfir fjall: "Fyrir löngu er orðið mál að takast á ný á við að fullkomna upphafleg markmið um veginn austur yfir fjall..."
Meira
Þórir Stephensen skrifar um kennaradeiluna: "Það er ekki nóg að þvinga kennara til að hefja störf á ný fyrir laun, sem verða kannski bara hluti af því sem þeir eiga fullan rétt á samanborið við aðra með álíka menntun."
Meira
Sigurbjörg Ármannsdóttir skrifar f.h. stjórnar MS-félags Íslands: "Við hvetjum félagsmenn eindregið til að mæta á aðalfundinn og styðja okkur áfram til góðra verka í þágu okkar MS-sjúklinga."
Meira
Björgum Gljúfrabúa, setjum á stall LENGI hefi ég hugsað til þessa máls, en nú les maður í Morgunblaðinu, að eyðingaröfl náttúrunnar séu að grafa undan hinum stóra haus gljúfursins, er fer í Hálslón.
Meira
Áslaug Oddsdóttir var fædd á Akri á Akranesi 16. ágúst 1902. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. febrúar 1992. Foreldrar hennar voru Oddur Kristjánsson og Þórunn Jónsdóttir. Oddur var fæddur 15. ágúst 1864 að Fossi á Suðurfjörðum í Barðastrandarsýslu, d.
MeiraKaupa minningabók
Bergþóra Benediktsdóttir fæddist 7. ágúst 1927 á Barkarstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Hún lést á Borgarspítalanum 13. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grafarvogskirkju 25. október.
MeiraKaupa minningabók
Fjóla Jóelsdóttir fæddist í Laxárdal á Skógarströnd hinn 21. júní 1914. Hún lést á hjúkrunardeild Hrafnistu á Hraunvangi 7 í Hafnarfirði 18. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau hjónin Halldóra Einarsdóttir frá Borgum á Skógarströnd, f.
MeiraKaupa minningabók
Guðni Jón Guðbjartsson fæddist í vesturbænum í Reykjavík 29. júní 1916. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. okt. síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðbjartur Guðbjartsson vélstjóri og Halldóra Salóme Sigmundsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Helga Leifsdóttir fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1951. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 20. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 28. september.
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Salóme Danivalsdóttir (Lóa) fæddist 29. desember 1913. Hún lést 21. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Danival Kristjánsson, bóndi á Litla-Vatnsskarði í Laxárdal í A-Húnavatnssýslu, f. 15.2. 1842, d. 25.8.
MeiraKaupa minningabók
Jón Þorvaldur Ingjaldsson fæddist í Reykjavík 28. mars 1967. Hann lést í Bergen í Noregi 27. apríl og var útför hans gerð frá Akraneskirkju 7. maí. Háskólinn í Bergen gengst fyrir minningarathöfn í safnaðarheimili Storetveit-kirkju í Bergen í dag og hefst hún kl. 14.
MeiraKaupa minningabók
Katrín Gísladóttir fæddist í Hafnarfirði 25. maí 1921. Hún andaðist á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði 23. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, f. 13.10. 1894, d. 17.7. 1973, og Gísli Gíslason bakari, f.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Kristján Ragnarsson fæddist á Reykjum v/Sundlaugaveg í Reykjavík 3. september 1929. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 21. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ragnar Kristjánsson vörubifreiðastjóri, f.
MeiraKaupa minningabók
Snorri Laxdal Karlsson fæddist á Bakka á Skagaströnd 1. október 1915. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 14. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Karl Valdemar Laxdal Björnsson frá Mjóadal í Bólstaðarhlíðarhreppi, f. 2. apríl 1886, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Stefán Hafsteinn Ingólfsson fæddist í Reykjavík 9. september 1946. Hann lést í Reykjavík 21. október síðastliðinn. Móðir hans er Una Guðrún Jónsdóttir, f. á Steinnýjarstöðum í Skagahreppi í A-Húnavatnssýslu 1926.
MeiraKaupa minningabók
"ÞAÐ hefur verið stefna okkar að ekki sé ástæða til að rýmka heimildir til fjárfestinga erlendra aðila í sjávarútvegi á Íslandi enda er sú heimild í dag allt að 49,9% eignarhlut í einstökum sjávarútvegsfyrirtækjum.
Meira
ÞAÐ er ekki nóg að skrá fyrirtæki í Kauphöll, heldur verður að hleypa öðrum fjárfestum að rekstrinum og sinna upplýsingagjöf til hluthafa. Þetta kom fram í erindi Hreiðars Más Sigurðssonar, bankastjóra KB banka, sem hann hélt á aðalfundi LÍÚ í gær.
Meira
ACTAVIS var í gær valið markaðsfyrirtæki ársins og Björgólfur Thor Björgólfsson var valinn markaðsmaður ársins af ÍMARK, félagi íslensks markaðsfólks.
Meira
Á FYRSTU níu mánuðum ársins jók Og Vodafone hagnað sinn um 674 milljónir króna í samanburði við sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrir skatta jókst þó enn meira, eða um 824 milljónir.
Meira
ÚRVALSVÍSITALA Aðallista Kauphallar Íslands hélt áfram að lækka í gær. Lækkaði vísitalan um 0,75% og var 3.467,51 stig í lok dagsins. Mest varð lækkunin á bréfum HB Granda eða 6,3%, þá lækkaði Bakkavör um 3,9% og Burðarás um 3,4%.
Meira
HAGNAÐUR Landsbanka Íslands á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 11,7 milljörðum króna eftir skatta. Þar af var hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi tæplega helmingurinn af heildarhagnaðinum, eða 5,7 milljarðar.
Meira
KAUP KB banka á danska bankanum FIH Erhvervsbank setja mark sitt á uppgjör bankans en FI-Holding, sem á FIH, er hluti af samstæðu KB banka frá 1. júlí sl.
Meira
NÍU bjóða sig fram til setu í bankaráði Íslandsbanka, þar sem sjö sitja. Framboðsfrestur rann út í gær. Nýtt bankaráð verður kosið á hluthafafundi hinn 3. nóvember næstkomandi.
Meira
TAP Medcare Flögu hf. á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 1.187 þúsund Bandaríkjadölum, eða liðlega 80 milljónum íslenskra króna. Á sama tímabili í fyrra var tapið 358 þúsund dalir, eða um 25 milljónir króna.
Meira
Starfsfólk Intrum innheimtuþjónustu ákvað í sumar að hefja heilsuátak. Einkaþjálfari mætti hinn 1. september og fitumældi og vigtaði starfsfólkið og allt bendir til þess að mörg kíló muni fjúka og vöðvar styrkjast þar til hann kemur aftur 1.
Meira
75 ÁRA afmæli . Sjötíu og fimm ára er í dag, föstudaginn 29. október, Ragnheiður Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ofanleiti 5 . Af því tilefni taka hún og eiginmaður hennar, Hannes G. Jónsson , á móti gestum í Húnabúð, Skeifunni 11, kl....
Meira
90 ÁRA afmæli . Á morgun, laugardaginn 30. október, er níræður Stefán Þórðarson, Reykjahlíð 10, Reykjavík. Hann tekur á móti ættingjum og vinum í Félagsheimili Seltjarnarness milli kl. 14 og 17 á...
Meira
Bengt W. Johansson er fæddur í Lundi í Svíþjóð árið 1930. Hann lauk læknisfræðinámi frá Háskólanum í Lundi árið 1957 og hlaut doktorsnafnbót í læknisfræði árið 1966.
Meira
Hlutavelta | Þær Hilda Björk Friðriksdóttir og Björk Steinunn Barðdal, færðu Barnaspítala Hringsins 2.665 kr. sem þeir söfnuðu með því að halda tombólu á Eiðistorgi...
Meira
Hlutavelta | Þær Lindey D. Elvarsdóttir, Guðný Bernhard og Alexandra H. Zarioh héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu þær 1.602...
Meira
Laugavegur | Rappsveitin MidiJokers flutti rímur sínar á nýafstaðinni Airwaves-hátíð og fékk þar góðar viðtökur. Í kvöld mætir hún aftur til leiks á skemmtistaðnum 22 með samsuðu sína af electro- og hip-hop-tónlist.
Meira
...að þakka, fyrirgefa, vera heiðarlegur, hugrakkur og glaður. Leggja stund á virðingu, samlíðan og gjafmildi. Iðka gagnrýni, ást, trú og trufla vanann. Njóta fegurðar og leita hamingjunnar.
Meira
BOSTON Red Sox vann bandaríska meistaratitilinn í hafnabolta á þriðjudag eftir 3:0-sigur gegn St. Louis Cardinals. Sox vann alla fjóra úrslitaleikina og þar með sinn fyrsta titil í 86 ár.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik mætir Tékkum í upphafsleik sínum á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem hefst í Túnis sunnudaginn 23. janúar á næsta ári. Viðureign Íslands og Tékka verður fyrstur á dagskrá í B-riðli keppninnar og verður flautað til leiks klukkan 17 að staðartíma en Túnis er einni klukkustund á undan Íslandi.
Meira
ENN ríkir óvissa um þjálfaramálin hjá úrvalsdeildarliði Grindavíkur í knattspyrnu. Eins og fram hefur komið hafa Grindvíkingar gert Guðjóni Þórðarsyni samningstilboð en Guðjón hefur ekki tekið ákvörðun hvort hann ætli að taka starfið að sér eða ekki.
Meira
ANTHONY Lackey, bandarískur körfuknattleiksmaður, er væntanlegur til Njarðvíkinga á næstu dögum. Hann kemur í staðinn fyrir Troy Wiley sem fékk sig lausan undan samningi við félagið í síðustu viku.
Meira
* RAGNAR Óskarsson , leikstjórnandi Skjern , var að mati Århus Stiftstidende besti maður leiksins þegar Skjern tapaði fyrir Århus GF , 31:30, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í fyrrakvöld.
Meira
RÚRIK Gíslason, drengjalandsliðsmaður í knattspyrnu, hefur rift samningi sínum við belgíska meistaraliðið Anderlecht. Hann gekk í gær til liðs við HK á nýjan leik og skrifaði undir þriggja ára samning við Kópavogsfélagið.
Meira
SIGMUNDUR Einar Másson úr GKG lék á fjórum höggum undir pari, 68 höggum, á fyrsta keppnisdegi heimsmeistaramóts áhugamanna í golfi í gær í Púertó Ríkó og var á fimmta besta skori dagsins.
Meira
SKALLAGRÍMSMENN lögðu Snæfellinga í Vesturlandsorrustunni í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Intersportdeildinni, þegar fylkingarnar mættust í Íþróttahúsinu í Borgarnesi í gærkvöldi, 79:71. Húsið var troðfullt af áhorfendum og eru Skallagrímsmenn með fullt hús stiga á heimavelli og til alls líklegir. Þessi sigur var sigur liðsheildarinnar og góðs varnarleiks. Árangur Skallagríms var allgóður því verulegur stærðarmunur er á liðunum.
Meira
SÆVAR Þór Gíslason skrifaði í gær undir nýjan samning við knattspyrnudeild Fylkis til tveggja ára. Á dögunum slitnaði upp úr samningaviðræðum hans við félagið og þá benti allt til þess að Sævar myndi leita á önnur mið, enda sagði hann þá m.a.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.