Greinar miðvikudaginn 30. maí 2007

Fréttir

30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 197 orð

250 þúsund króna sekt fyrir barnaklám

KARLMAÐUR hefur í Héraðsdómi Norðurlands vestra verið dæmdur í 250 þúsund króna sekt fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Einnig voru tölva og harður diskur gerð upptæk auk þess sem maðurinn þurfti að greiða sakarkostnað. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

AIM hátíðin að hefjast

ALÞJÓÐLEGA tónlistarhátíðin á Akureyri – AIM Festival – verður haldin um helgina. Hátíðin, sem hefst á morgun, er nú haldin í annað sinn. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 40 orð | 1 mynd

Aurgosið heldur áfram

Í HEILT ár hefur aur og leðja streymt upp úr gíg við bæinn Sidoarjo í Indónesíu og fært í kaf nálæg þorp. Talið er hugsanlegt að borun eftir olíu hafi komið hamförunum af stað en enginn veit hvenær þeim... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 63 orð

Árekstur í Kópavogi

ÁREKSTUR fólksbifreiðar og jeppa varð skömmu eftir klukkan 21 í gærkvöldi á mótum Hafnarfjarðarvegar og Kársnesbrautar í Kópavogi. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 323 orð

Bush herðir á refsiaðgerðum gegn Súdan

Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær um nýjar refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Súdan vegna átakanna í Darfur-héraði. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 266 orð | 1 mynd

Century í íslensku kauphöllina

MÓÐURFÉLAG Norðuráls á Grundartanga, Century Aluminum Company, hefur óskað eftir því við kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi að hlutir félagsins verði skráðir á First North-hlutabréfamarkaðinn hér á landi. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 103 orð | 1 mynd

Dýralæknir til Straums

TILKYNNT var um nýjan forstjóra Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka í gær. Við stöðu Friðriks Jóhannssonar tekur William Fall, sem síðast var forstjóri alþjóðasviðs Bank of America, annars stærsta banka heims. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 53 orð | 1 mynd

Einar Karl aðstoðar Össur

ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið Einar Karl Haraldsson sem aðstoðarmann sinn. Einar Karl er fæddur 17. desember 1947. Hann hefur undanfarin ár starfað sem ráðgjafi, en var áður blaðamaður og ritstjóri. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 52 orð

Eldur í feitipotti

ELDUR kviknaði í feiti í potti á eldavél í íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi á Eiðismýri 30 á Seltjarnarnesi klukkan ellefu í gærmorgun. Tvennt var í íbúðinni er eldurinn kom upp. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Endurbætur

NÚ standa yfir endurbætur á slysa- og bráðadeild á Landspítala í Fossvogi. Sjúklingar og aðrir verða fyrir óþægindum á meðan á framkvæmdunum stendur mestan hluta ársins 2007. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 358 orð | 2 myndir

Féhirðirinn dúxaði og sópaði til sín verðlaunum

VERZLUNARSKÓLA Íslands var slitið í hundraðasta og annað sinn laugardaginn 26. maí. Að þessu sinni voru brautskráðir 233 stúdentar. Dux scholae var Jóhanna Margrét Gísladóttir á hagfræðibraut. Fékk hún 9,5 í aðaleinkunn. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 535 orð | 1 mynd

Fær alþjóðlega gæðavottun

NEMENDUR í Verkmenntaskólanum á Akureyri voru um 2.000 á skólaárinu sem lauk um helgina. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 359 orð | 1 mynd

Ganga á fimm tinda um eina helgi

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is "Við viljum sýna fram á að það er hægt að reyna á sig á annan hátt en að vera í svitabaði á hlaupabretti. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 62 orð | 1 mynd

Garðar stýrir Garðari

GARÐAR Thor Cortes tenórsöngvari kemur fram á stórtónleikum á vegum breska ríkisútvarpsins BBC í Birmingham 13. júní næstkomandi. Svo skemmtilega vill til að faðir Garðars og nafni hans, Garðar Cortes, verður hljómsveitarstjóri á tónleikunum. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Gaskútar eins og hráviði á Vesturlandsvegi

UM 20 stórir gaskútar féllu af flutningabifreið þegar bifreiðinni var ekið um hringtorg á Vesturlandsvegi til móts við Úlfarsfell í gærmorgun. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 438 orð | 1 mynd

Getur haft viðsjárverð áhrif á fuglavarpið

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 76 orð | 1 mynd

Glæstur sigur hjá al-Assad

BASHAR al-Assad, forseti Sýrlands, fékk 97% atkvæða í forsetakosningunum í landinu á sunnudag og mun því gegna embættinu áfram næstu sjö árin. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 43 orð

Grænn markaður á Álftanesi

HINN árlegi Græni markaður Kvenfélags Álftaness verður haldinn laugardaginn 2. júní frá kl. 11:00 til kl. 16:00 við Náttúruleikskólann Krakkakot. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 188 orð | 1 mynd

Halda tónleika í hlöðunni í Þrándarholti

HLÖÐUTÓNLEIKAR við Kálfastíuna í Þrándarholti í Gnúpverjahreppi verða haldnir fyrir gesti og gangandi fimmtudagskvöldið 31. maí og hefjast þeir klukkan 20 um kvöldið. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 103 orð | 1 mynd

Hugleiðsla á nýrri öld

VON er á Pierre Stimpflings til Íslands og mun hann halda hugleiðslunámskeið. Hann hefur komið til Íslands undanfarin ár og haldið námskeið þar sem hann hefur kennt annars konar hugleiðsluaðferð en flestir eiga að venjast, segir í fréttatilkynningu. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 50 orð | 1 mynd

Hver fær nýrun?

HART er nú deilt á hollenska sjónvarpsstöð fyrir að ætla að senda út þátt þar sem 37 ára gömul kona með banvænan sjúkdóm mun ákveða hver af þremur sjúklingum fái nýrun úr henni. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 262 orð

Íslandshátíð í Stokkhólmi

SENDIRÁÐ Íslands í Svíþjóð, í samstarfi við Glitni, Símann/Sirius IT, Baug Group, Útflutningsráð Íslands/utanríkisráðuneytið og Icelandair, efnir til hátíðar í Stokkhólmi þriðjudaginn 5. júní nk. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 108 orð

Japanir munu veiða hnúfubak

FULLTRÚAR Japana á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC, í borginni Anchorage í Alaska í Bandaríkjunum skýrðu frá því í gær að þeir myndu ekki hvika frá áætlunum um að veiða 50 hnúfubaka í vísindaskyni, eftir að önnur aðildarríki ráðsins höfnuðu... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 62 orð

Kaðall yfir veginn

BÍLL lenti sl. laugardag á nælonkaðli, sem strengdur hafði verið þvert yfir veginn um Syðridal í Bolungarvík. Að sögn lögreglu hafði kaðallinn verið bundinn um staura í grindarhliði og urðu talsverðar skemmdir á bifreiðinni. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 241 orð

Kallar eftir bráðabirgðalausn

Elliðaár | Æskilegt hefði verið að koma upp settjörn um leið og framkvæmdir fóru af stað í Vatnsendahvarfi. Þetta er mat Tore Skjenstad, starfsmanns hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 167 orð | 1 mynd

Koma frá Færeyjum til að upplifa ævintýrið

Grímsey | Hann hefur sótt egg í bjargið síðan 1943, hann Bjarni Reykjalín Magnússon, hreppstjóri í Grímsey. "Alltaf jafngaman og tilhlökkunarefni hvert vor að komast í björgin," segir Bjarni og brosir breitt. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 257 orð | 1 mynd

Kominn til Íslands og vill að allir dansi með á Ingólfstorgi

Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is "ÞESSA stundina er ég að horfa á risastóran ísjaka klofna í tvennt," sagði Matthew Harding þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 165 orð | 1 mynd

Kraftakarlar í Smáralind

IFSA-kraftakeppnin um titilinn sterkasti maður Íslands 2007 fór fram á laugardag í Smáralind og eftir að ýmislegt hafði gengið á stóð Benedikt Magnússon uppi sem sigurvegari annað árið í röð. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 311 orð | 1 mynd

Léttmjólk úr spenanum

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VÍSINDAMENN á Nýja-Sjálandi hafa komist að því að sumar kýr hafa í sér gen sem gera þeim kleift að framleiða náttúrulega, fitulitla léttmjólk, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC . Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 750 orð | 1 mynd

Naumur sigur spænskra hægrimanna

Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is LEIÐTOGAR "turnanna tveggja" í spænskum stjórnmálum, Sósíalistaflokksins og Þjóðarflokksins, hafa báðir lýst yfir sigri í kosningum til héraðsþinga og bæjarstjórna, sem fram fóru um liðna helgi. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 320 orð | 2 myndir

Nemendur brautskráðir með full réttindi iðnsveina

BRAUTSKRÁNING frá Iðnskólanum í Hafnarfirði fór fram 19. maí sl. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 382 orð | 1 mynd

Nemendur eru fljótir að setja sig í spor fornleifafræðings

Eftir Atla Vigfússon Þingeyjarsveit | "Fyrsta kennslustundin var mér stórkostleg upplifun og sennilega besti starfsdagurinn á mínum ferli. Ég hef aldrei kennt börnum og vissi því ekki á hverju ég átti von. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 221 orð | 2 myndir

Nordica hótel verður Hilton Reykjavík Nordica

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is NORDICA hótelið í Reykjavík verður hluti af Hilton-hótelkeðjunni og mun framvegis heita Hilton Reykjavik Nordica. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 195 orð

Nýr forseti tekur við í Nígeríu

Abuja. AP, AFP. | Múslíminn Umaru Yar'Adua tók við embætti forseta Nígeríu við hátíðlega athöfn í höfuðborginni, Abuja, í gær. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 378 orð | 1 mynd

"Bjartir dagar aldrei verið bjartari"

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 197 orð | 1 mynd

"Er kærasti málið?" í óvissuferð

Reykjanesbær | Fjörutíu börn úr Myllubakkaskóla fóru í skemmtilega óvissuferð á dögunum. Þau settu upp leikrit á Akureyri og eignuðust þar vini í Brekkuskóla. Hópurinn setti upp söngleik í vetur, "Er kærasti málið? Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 250 orð | 2 myndir

"Ég öskraði bara á móti"

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HULDA Sigurðardóttir má teljast heppin að hafa ekki slasað sig þegar hún fékk gæs inn um framrúðuna hjá sér sl. mánudag. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 522 orð | 1 mynd

"Vildi ekki leika hetju"

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 190 orð

Réttindi skipta um hendur

ÓBYGGÐANEFND úrskurðaði í gær í þjóðlendumálum á svæði fimm, Norðausturlandi. Lögmenn ríkisins og landeigenda eru sammála um að nefndin hafi að miklu leyti fylgt kröfum ríkisins en telja almennt of snemmt að segja til um hverju verði skotið til... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 96 orð | 1 mynd

Röng mynd af Hjá Marlín

ÞAU leiðu mistök urðu með umfjöllun um kaffi- og gistihúsið Hjá Marlín á Reyðarfirði í Ferðablaði Morgunblaðsins að röng mynd var birt með greininni. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Sektaður fyrir að standa fyrir drykkjukeppni

HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra hefur sektað tvo menn um samtals 350 þúsund krónur fyrir að hafa boðið áfengisveitingar gegn gjaldi á skemmtistað á Sauðárkróki nokkur kvöld í mánuði á árunum 2004 til 2006 án þess að hafa áður aflað sér lögboðins... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 113 orð | 1 mynd

Siglarar á Hátíð hafsins

HÁTÍÐ hafsins verður haldin í níunda sinn helgina 2.–3. júní nk. en hátíðin samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum. Árið 1999 voru þessir tveir hátíðardagar sameinaðir í tveggja daga hátíðahöld á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 193 orð

Skólamáltíðin á allt að 417 kr.

AÐEINS tveir grunnskólar af 124 skólum í 39 sveitarfélögum sem Neytendastofa kannaði í vor bjóða upp á ókeypis skólamáltíðir. Í 38 skólum greiða nemendur eingöngu fyrir hráefni, frá 140 kr. upp í 417 kr. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 418 orð | 1 mynd

Stefnt að fíkniefna- og ofbeldislausum stöðum

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Bærinn, lögreglan og skemmtistaðirnir í Reykjanesbæ hafa gert með sér formlegt samstarf í þeim tilgangi að draga úr ofbeldi og notkun fíkniefna í og við skemmtistaðina. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 440 orð | 2 myndir

Stefnt að því að vél Wilson Muuga fari í gang í vikunni

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is VONAST er eftir að aðalvél flutningaskipsins Wilson Muuga komist í gang í þessari viku, en búið er að leggja mikla vinnu í að gera skipið sjófært. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 797 orð | 2 myndir

Stórkostlegasta berghlaup í áratugi

Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Komið hefur í ljós að gríðarstór skriða sem féll á Morsárjökul í Skaftafellsþjóðgarði, líklega seint í apríl, er stórkostlegasta hamfarahlaup sinnar tegundar í áratugi. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 358 orð | 1 mynd

Stærsti fjárfestingarbankinn

Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EITT af verkefnum nýs forstjóra Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka verður að vinna að því markmiði stjórnarinnar að Straumur verði stærsti fjárfestingarbanki á Norðurlöndum. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 211 orð

Sveitarfélög borgi slökkvistarf

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað Hringrás hf. af 25,6 milljóna króna bótakröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bruna á athafnasvæði Hringrásar í Reykjavík 22. nóvember 2004. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 133 orð | 1 mynd

Tóbakslausi dagurinn

Í TILEFNI alþjóðlega tóbakslausa dagsins 31. maí verður opið hjá Ráðgjöf í reykbindindi frá kl. 10–22. Ráðgjöfin er með grænt númer 800-6030 og veitir öllum ráðgjöf sem vilja hætta að reykja eða nota annað tóbak. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 473 orð | 1 mynd

Um 200 urriðar í fyrsta hollinu í Mývatnssveit

Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is FYRSTA hollið, sem lauk veiðum í Laxá í Mývatnssveit í gær, veiddi um 200 urriða á sex vöktum. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 1634 orð | 2 myndir

Úrskurðað í þjóðlendumálum

Óbyggðanefnd úrskurðaði í gær vegna þjóðlendumála á Norðausturlandi. Gunnar Páll Baldvinsson var í Þjóðmenningarhúsinu þar sem úrskurðirnir voru kveðnir upp og leitaði viðbragða hjá lögmönnum aðila málsins. Meira
30. maí 2007 | Erlendar fréttir | 124 orð | 1 mynd

Verður næsti forstjóri Alþjóðabankans

Washington. AP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að útnefna Robert Zoellick, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, næsta forstjóra Alþjóðabankans. Þetta var haft eftir embættismönnum í Hvíta húsinu í gærkvöldi. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 303 orð | 1 mynd

Viðskiptanám í blóma

Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is ÁSÓKN í viðskiptatengt háskólanám hefur sennilega aldrei verið meiri. Stöðugur straumur er í grunnnám í viðskiptatengdu námi við háskólana fjóra sem bjóða upp á slíkt, en mest er aukningin hins vegar í... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 1427 orð | 3 myndir

Vítahringur skipulagsleysis

Torfusamtökin hafa verulegar áhyggjur af áformum um "uppbyggingu" í Skuggahverfinu og annars staðar í miðborginni og blása til herferðarinnar "101 í hættu". Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 749 orð | 1 mynd

Yfirlýsing frá Impregilo

Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Impregilo á Íslandi vegna fréttaflutnings um aðbúnað verkamanna við Kárahnjúka: "Undanfarna daga hafa íslenskir fjölmiðlar fjallað um ásakanir fyrrverandi starfsmanns við Kárahnjúka, er lúta að... Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 196 orð | 1 mynd

Þekktur guðfræðingur heimsækir Skálholt

DR. Jürgen Moltmann, prófessor í guðfræði frá Tübingen í Þýskalandi, verður gestur Skálholtsskóla dagana 31. maí til 4. júní. Óhætt er að fullyrða að þar sé á ferð einn af áhrifamestu guðfræðingum samtímans, segir í fréttatilkynningu. Meira
30. maí 2007 | Innlendar fréttir | 360 orð | 1 mynd

Ætlast til að verktakar fari í öllu eftir reglunum

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl. Meira

Ritstjórnargreinar

30. maí 2007 | Leiðarar | 416 orð

Barsmíðar í borginni

Tilhæfulausar árásir, hnífstungur og limlestingar. Blóðið rennur í taumum. Menn eru lokkaðir inn í skúmaskot að næturlagi til þess að hægt sé að ræna þá og ganga í skrokk á þeim. Minnsta áreiti getur leitt til hrottalegra líkamsmeiðinga. Meira
30. maí 2007 | Leiðarar | 447 orð

Kína og umheimurinn

Nú orðið er varla hægt að opna alþjóðleg viðskiptadagblöð án þess að Kína komi þar við sögu. Athygli umheimsins beinist að Kína. Vangaveltur fjármálamannanna snúast um það hvað muni gerast í Kína. Meira
30. maí 2007 | Staksteinar | 189 orð | 1 mynd

Óánægja fyrir norðan

Grein Sverris Leóssonar, fyrrverandi útgerðarmanns á Akureyri, í Morgunblaðinu sl. sunnudag bendir til þess að umtalsverð óánægja sé meðal sjálfstæðismanna á Akureyri með ráðherraval Sjálfstæðisflokksins. Meira

Menning

30. maí 2007 | Myndlist | 221 orð | 1 mynd

Allt með feldi

Til 17. júní 2007. Opið fi. og fös. kl. 16-18 og um helgar kl. 14-17. Aðgangur ókeypis. Meira
30. maí 2007 | Fjölmiðlar | 224 orð | 1 mynd

Áfram Latibær!

ÚTVARPSSTÖÐIN sem kennd er við Latabæ verður oft fyrir valinu á mínu heimili og þá sérstaklega til að skemmta yngsta fjölskyldumeðlimnum. Ég verð þó að segja að ég hef sjálf ansi gaman af flestu sem þar er á boðstólum. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 564 orð | 1 mynd

Bakað upp úr bók

Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is BARNABÓKIN Ég vil fisk kemur nú út í vikunni fyrir sjómannadaginn og verður það samtímis á fimm tungumálum; íslensku, dönsku, sænsku, grænlensku og færeysku. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 265 orð | 1 mynd

Einskonar Íslendingasaga

Icelander eftir Dustin Long. McSweeney's gefur út 2006. Kilja kom út 2007. Meira
30. maí 2007 | Kvikmyndir | 325 orð | 1 mynd

Endurkoma uppvakninganna

FYRIR hálfum áratug síðan sendi breski leikstjórinn Danny Boyle frá sér hrollvekjuna 28 Days Later . Myndin sló nokkuð óvænt í gegn enda virkilega góð hrollvekja með vísindaskáldsögulegu ívafi þar á ferð. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 82 orð | 1 mynd

Englasöngur í Hallgrímskirkju

VORTÓNLEIKAR Drengjakórs Reykjavíkur verða haldnir í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. Í kórnum eru 35 drengir á aldrinum 8 til 14 ára. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson og undirleikari Lenka Mátéová. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 38 orð | 1 mynd

Fegurst í heimi

UNGFRÚ Japan, Riyo Mori, var valin Ungfrú alheimur í Mexíkó í gær. Hún var undrandi á úrslitunum eins og fegurðardrottninga er siður en ekki er að sjá að forvera hennar í starfi, Zuleyka Riveralooks (t.h.), hugnist val... Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 138 orð | 2 myndir

Fetar í fótspor Andy Warhol og David Bowie

* Katrín Pétursdóttir, myndlistarmaður og hönnuður, hefur verið valin til að hanna veggspjald fyrir Montreux Jazz-hátíðina sem fram fer í Sviss dagana 6.–22. júlí næstkomandi. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 98 orð | 1 mynd

Glerlykill til Finna

NORRÆNU glæpasagnaverðlaunin Glerlykillinn voru veitt finnskum rithöfundi þetta árið, Matti Rönka, fyrir bókina Fjarri vinum , eða Ystävät kaukana. Ævar Örn Jósepsson var tilnefndur til verðlaunanna fyrir skáldsöguna Blóðberg . Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 198 orð | 1 mynd

Godin og Dunkel loksins á Íslandi

FRANSKA tvíeykið Air hefur í rúman áratug notið mikilla vinsælda hér á landi og því væntanlega margir sem hugsa sér gott til glóðarinnar hinn 19. júní þegar sveitin treður upp í Laugardalshöll. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 226 orð | 1 mynd

Huguð hljóð og tónar

Fram komu Gunnar Kristinsson, slagverksleikari og tónskáld, Ríkharður H. Friðriksson, gítarleikari og tónskáld, Kirsten Galm, organisti og tónskáld og Egill Ólafsson söngvari og tónskáld. Hallgrímskirkju, 23. maí kl. 20. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 1272 orð | 3 myndir

Hver þorir í tónlistarfrumskóginn?

*Hljómplötur seldar í heimildarleysi á Tónlist.is. *Kristján Már Ólafsson er einn þeirra sem eiga plötu inni á Tónlist.is án þess að sölusamningur liggi fyrir. *Heimir Eyvindarson, liðsmaður Á móti sól, vill að tónlistarmenn tali sig saman um réttindi sín. * Mál sem þarf að leysa segir Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH) og stjórnarmaður í Samtóni. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 723 orð | 1 mynd

Kassettustrákarnir

Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Á DÖGUNUM birtist pistill eftir greinarhöfund þar sem yfirvofandi dauði kassettunnar var harmaður. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 237 orð | 1 mynd

Klassísk klisja

Dead Fathers Club eftir Matt Haig. Vintage gefur út 2007. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 72 orð | 1 mynd

Kvennakórar leiða saman hesta sína

KVENNAKÓRINN Vox feminae, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur, og Kvennakór Akureyrar, undir stjórn Arnórs B. Vilbergssonar, munu sameina krafta sína í Akureyrarkirkju á laugardaginn kl. 11.15. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 142 orð | 1 mynd

Matthías Johannessen og Atli Heimir í Krýsuvík

KRÝSUVÍKURKIRKJA hefur staðið í 150 ár og af því tilefni var efnt til afmælisfagnaðar síðastliðna helgi. Meðal þess sem fram fór var flutningur tónverks eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Matthíasar Johannessen. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 75 orð

Metsölulistar»

NY Times 1. The 6th Target – James Patterson and Maxine Paetro 2. Bad Luck and Trouble – Lee Child 3. Invisible Prey – John Sandford 4. The Yiddish Policemen's Union – Michael Chabon 5. Simple Genius – David Baldacci 6. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 79 orð | 1 mynd

Miðasala hafin á The Rapture

HR. ÖRLYGI er, að eigin sögn, megn ánægja að tilkynna endurkomu The Rapture til Íslands, en sveitin lék hér á landi á Iceland Airwaves árið 2002. Nú, fimm árum síðar, mun sveitin troða upp á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll þann 26. júní. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 378 orð | 2 myndir

Mögnuð upplifun og ótrúleg læti

Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is "ÞETTA gekk bara vonum framar, virkilega vel," segir Garðar Thor Cortes, sem söng breska þjóðsönginn fyrir leik Derby County og WBA á Wembley-leikvanginum í Lundúnum á mánudaginn. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 469 orð | 3 myndir

Presley er of töff fyrir Dion

Þetta voru Celine Dion og Elvis Presley," sagði útvarpskynnirinn eftir að eitthver dúett hafði ómað í gegnum viðtækið. Ég hrökk í kút. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 66 orð

Purrks Pillnikks minnst á Grandinu

* Í tilefni af því að í sumar eru 25 ár frá því Purrkur Pillnikk lagði upp laupana á Melarokkhátíðinni hefur nú verið sett saman hljómsveitin P.P. sem sérhæfir sig í að flytja lög hinnar dáðu pönksveitar. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 122 orð | 1 mynd

"Ekki fitugramm"

ALDINGARÐURINN eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hefur hlotið góða dóma í bandarískum blöðum og tímaritum undanfarið. Bókin kom út í Bandaríkjunum í febrúar og heitir í enskri þýðingu Valentines. Meira
30. maí 2007 | Myndlist | 276 orð | 1 mynd

"Hugsað í gegnum efnið"

NÆSTA haust mun Myndlistaskólinn í Reykjavík bjóða upp á nýjan námsmöguleika, Mótun, í samvinnu við Iðnskólann í Reykjavík. Námið er til tveggja ára og er efnistengt, unnið í leir og önnur tengd efni. Meira
30. maí 2007 | Tónlist | 494 orð | 3 myndir

"Myndi aldrei láta sjá mig í einhverju boybandi"

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Það var ekkert stress í loftinu þegar ég leit inn á áheyrnarprufu fyrir nýtt strákaband sem fór fram í tónlistarskóla FÍH í gær. Meira
30. maí 2007 | Kvikmyndir | 266 orð | 1 mynd

Saga sögð

Leikstjóri: Staffan Julén. Sögumaður: Robert E. Peary II. Framleiðendur: Michael Haslund-Christensen, Jesper Morthorst. Klipparar: Clas Lindberg, Staffan Julén, Ylva Fabricius. Kvikmyndatökumenn: Camilla Hjelm Knudsen, Torben Forsberg. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 74 orð | 1 mynd

Sign tekur Skid Row á næsta Kerrang!-diski

* Hljómsveitin Sign er ein 15 hljómsveita sem flytja þekkt lög í nýjum búningi á diski sem fylgir næsta Kerrang!-tölublaði. Sign endurgerir Skid Row-lagið "Youth Gone Wild" en aðrar sveitir eru m.a. Meira
30. maí 2007 | Kvikmyndir | 227 orð | 2 myndir

Sjóræningjarnir sigldu örugglega á toppinn

ÞRÁTT fyrir að hafa fengið fremur slæma dóma hjá íslenskum gagnrýnendum var Pirates of the Caribbean: At World's End langmest sótta bíómyndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Rúmlega 14. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 529 orð | 1 mynd

Spenna rifjuð upp

Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SÚ VAR tíðin að breskar spennusögur voru nánast allsráðandi á markaði, í það minnsta hér á landi. Meira
30. maí 2007 | Bókmenntir | 74 orð | 1 mynd

Stína komin í bókabúðir

FYRSTA hefti tímaritsins Stínu á þessu ári er komið út. Stína hóf göngu sína í fyrra, en í tímaritinu er fjallað um bókmenntir og listir vítt og breitt. Þjóðkunnir og virtir listamenn leggja verk til Stínu. Meira
30. maí 2007 | Menningarlíf | 109 orð | 1 mynd

Stofutónleikar á Gljúfrasteini

Í SUMAR verða haldnir tónleikar í stofunni á Gljúfrasteini alla sunnudaga klukkan 16.00. Fjölbreyttur hópur tónlistarmanna mun leika á stofutónleikaröðinni en það er Latíntríó Tómasar R. Einarssonar sem ríður á vaðið á sunnudaginn kemur. Meira
30. maí 2007 | Fólk í fréttum | 117 orð | 1 mynd

Sýnishornapakk

ÍSLANDSVINURINN Eli Roth er upptekinn maður þessa dagana. Það styttist í framhaldið af Hostel auk þess sem hann gerði eitt af sýnishornunum sem sýnd eru á milli hluta bíótvennunnar Grindhouse , samstarfsverkefnis Roberts Rodriguez og Quentins Tarantino. Meira

Umræðan

30. maí 2007 | Aðsent efni | 599 orð | 1 mynd

Allt Seltjarnarnesið ljósleiðaratengt – fyrst bæjarfélaga

Jónmundur Guðmarsson skrifar um ljóðleiðaratengingu á Seltjarnarnesi: "Markmið bæjarins er að auka lífsgæði íbúa, efla samkeppnisstöðu bæjarins á landsvísu og styðja við stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið." Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 777 orð | 1 mynd

Fyrir hverja er Kleppur?

Kolbrún D. Kristjánsdóttir skrifar í tilefni af 100 ára afmæli spítalans: "Ég hugsaði oft með mér hvort spítalinn ýtti undir sjúkleika fólks, hver væri í raun sjúkur; spítalinn og kerfið eða notendur þjónustunnar." Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 411 orð | 1 mynd

Góður vilji í söfnuðum landsins

Einar Karl Haraldsson skrifar um hjónabandsskilning: "Það er samhljómur í yfirlýsingum ríkisstjórnar, Samtakanna '78 og Leikmannastefnu Þjóðkirkjunnar." Meira
30. maí 2007 | Blogg | 58 orð | 1 mynd

Helgi Þór Guðmundsson | 29. maí Samsæriskurl!!! Ég legg til að...

Helgi Þór Guðmundsson | 29. maí Samsæriskurl!!! Ég legg til að Íslendingar, Færeyingar og Grænlendingar taki höndum saman og kaupi Danmörku. Ísland tekur við konungshöllinni og Geir H. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 426 orð

Hlessa "hagræðingar"

ER það að furða, þótt sjávarútvegsráðherrann yrði hlessa, þegar hann heyrði fyrst um ástandið á Flateyri – fjórum dögum eftir þingkosningar? Meira
30. maí 2007 | Blogg | 68 orð | 1 mynd

Hlynur Hallsson | 29. maí 2007 Snjóflóð og menningarflóð Það má teljast...

Hlynur Hallsson | 29. maí 2007 Snjóflóð og menningarflóð Það má teljast mesta mildi að enginn sjömenninganna skyldi slasast eða eitthvað þaðan af verra henda þau í snjóflóðinu. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 721 orð | 1 mynd

Jóhann Elíasson | 30. maí Náttúruverndar-ayatollar EINS og margir aðrir...

Jóhann Elíasson | 30. maí Náttúruverndar-ayatollar EINS og margir aðrir landsmenn horfði ég á þáttinn "Út og suður" sunnudagskvöldið 12. júní 2005. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 518 orð | 1 mynd

Kofar kallaðir flugstöð

Eiður Guðnason skrifar um ástand bygginganna við Reykjavíkurflugvöll: "Skyldi nokkur höfuðborg í veröldinni bjóða farþegum og ferðafólki upp á þá aðstöðu sem til staðar er á Reykjavíkurflugvelli?" Meira
30. maí 2007 | Blogg | 78 orð | 1 mynd

Laufey Ólafsdóttir | 29. maí 2007 Viti menn Ykkar kona var í Séð og...

Laufey Ólafsdóttir | 29. maí 2007 Viti menn Ykkar kona var í Séð og heyrt um síðustu helgi, ásamt börnum. Mig langar að afsaka mig með því að segja að ég er ekki svona ljót. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 398 orð | 1 mynd

Meðaltalsreglan, eina jafnréttið í launamálum?

Kristín Hafsteinsdóttir skrifar um launamisrétti: "Í skjóli launaleyndar ríkir launamisrétti í landinu." Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 328 orð

Myndastyttur í Reykjavík

ÞEGAR gengið er um götu eina í Þrándheimi gengur maður skyndilega í flasið á myndastyttu af skautahlaupara í hlaupstellingu við gangstéttina. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 710 orð

Náttúruverndar-ayatollar

Jóhann Elíasson: "Eins og margir aðrir landsmenn horfði ég á þáttinn "Út og suður" sunnudagskvöldið 12. júní 2005. Annar viðmælenda Gísla Einarssonar það kvöldið var Jón Sveinsson æðarbóndi í Miðhúsum í Reykhólasveit." Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 754 orð | 1 mynd

Rúnar Kristjánsson | 30. maí Hvert stefnir með ábyrgð og annað? ÞAÐ að...

Rúnar Kristjánsson | 30. maí Hvert stefnir með ábyrgð og annað? ÞAÐ að bera ábyrgð virðist vera mjög afstætt hugtak í íslensku þjóðfélagi eins og það horfir við augum í dag. Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 696 orð | 1 mynd

Snemmbúin minningargrein

Vilhjálmur Eyþórsson skrifar um afstöðu almennings til Castros: "Hans verður sárt saknað af vinum hans og verndurum, lýðræðis-postulum og mannréttindafrömuðum á vinstra kanti, utan og innan Amnesty." Meira
30. maí 2007 | Aðsent efni | 436 orð | 1 mynd

Stóðst ekki prófið – fallinn

Sigurður Helgason fjallar um breytingar á umferðarlögunum og yngri ökumennina: "Síðustu breytingar á umferðarlögum gera ráð fyrir auknu aðhaldi gagnvart öllum ökumönnum, en sérstaklega ungum og reynslulitlum bílstjórum." Meira
30. maí 2007 | Velvakandi | 435 orð | 1 mynd

velvakandi

Reykingabann – Til þeirra sem hætta að reykja ÉG vil benda unga fólkinu sem hættir að reykja 1. júní á að það getur slegið tvær, jafnvel þrjár, flugur í einu höggi. Meira
30. maí 2007 | Blogg | 312 orð | 2 myndir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir | 29. maí Gagnleg heimsókn Í síðustu viku...

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir | 29. Meira

Minningargreinar

30. maí 2007 | Minningargreinar | 2829 orð | 1 mynd

Ásthildur Birna Kærnested

Ásthildur Birna Kærnested fæddist í Reykjavík 6. júlí 1945. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 21. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Gísli Friðrik Kærnested verslunarmaður, f. 13.10. 1914, d. 28.4. Meira  Kaupa minningabók
30. maí 2007 | Minningargreinar | 666 orð | 1 mynd

Gunnar Hjálmarsson

Gunnar Rúnar Hjálmarsson fæddist á Akranesi 12. ágúst 1942. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 18. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Vigdís Magnúsdóttir húsfreyja á Akranesi, f. 2. september 1925, d. 23. Meira  Kaupa minningabók
30. maí 2007 | Minningargreinar | 2059 orð | 1 mynd

Ingólfur Sigurjónsson

Ingólfur Sigurjónsson fæddist á Grímsstöðum 21. mars 1941. Hann lést á heimili sínu, Hvammsdal 9 í Vogum, 22. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurjón Guðmundsson frá Hemlu, f. 21.3. 1898, d. 15.2. Meira  Kaupa minningabók
30. maí 2007 | Minningargreinar | 1186 orð | 1 mynd

Ólafur Ingibjörnsson

Ólafur Ingibjörnsson fæddist á Flankastöðum á Miðnesi 1. júní 1928. Hann lést á heimili sínu 18. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörn Þórarinn Jónsson bóndi á Flankastöðum, f. 24. apríl 1895, d. 22. Meira  Kaupa minningabók
30. maí 2007 | Minningargreinar | 1089 orð | 1 mynd

Ragnhildur Magnúsdóttir

Ragnhildur Magnúsdóttir fæddist á Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd 26. desember 1913. Hún lést á hjúkrunardeild Hrafnistu mánudaginn 21. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Erlendsína Helgadóttir frá Litlabæ á Vatnsleysuströnd, f. 8. Meira  Kaupa minningabók
30. maí 2007 | Minningargreinar | 2386 orð | 1 mynd

Sigríður Pálsdóttir

Sigríður Pálsdóttir fæddist í Fremstafelli í Suður-Þingeyjarsýslu 21. febrúar 1930. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 24. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll H. Jónsson, f. 1908, d. 1990, og Rannveig Kristjánsdóttir, f. 1908, d. 1966. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

30. maí 2007 | Sjávarútvegur | 227 orð | 1 mynd

Drengirnir af Sæbjörgu hittast í Höfða

Menn sem voru á skólaskipinu Sæbjörgu sem ungir drengir, á árunum 1962 til 1964, munu hittast í Höfða á sjómannadaginn til að rifja upp gamlar og góðar minningar frá þeim tímum. Skip var gert út sem skólaskip í þrjú ár. Meira
30. maí 2007 | Sjávarútvegur | 474 orð | 1 mynd

Nýting í saltfiski hefur aukist úr 43% í 58%

Saltfiskverkun hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Slík verkun byggðist áður á einfaldri stæðusöltun en nýjar aðferðir við verkun hafa skilað framleiðendum allt að því 15% aukningu í heildarnýtingu. Meira
30. maí 2007 | Sjávarútvegur | 81 orð | 1 mynd

Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2007

Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2007 er komið út. Þetta er 57. árgangur. Í blaðinu getur m.a. að líta greinar um nýsköpunartogara Vestmannaeyinga, íslenskan skipasmið í Ástralíu, kapalskipið Henry P. Meira

Viðskipti

30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 87 orð

Atlantic Petroleum hækkaði um 21%

ÚRVALSVÍSITALAN í kauphöllinni, OMX á Íslandi, hækkaði um 0,5% í gær og er lokagildi hennar 8.175 stig , sem er hæsta gildi hennar til þessa. Gengi hlutabréfa Atlantic Petroleum hækkaði langmest í gær, eða um 21,2%. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 145 orð

Álrisar keppa um Alcan

SAMKVÆMT fregnum erlendra miðla undanfarið er mikill áhugi álfyrirtækja á að eignast kanadíska félagið Alcan, móðurfélag álversins í Straumsvík. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 183 orð | 1 mynd

Frá Glitni í kaup á Klasa

NÝTT fjárfestingarfélag, Sigla ehf., mun kaupa allt hlutafé í fasteignafélaginu Klasa hf. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 146 orð | 1 mynd

Kaupa Shell í Færeyjum fyrir tvo milljarða

SKELJUNGUR hefur gengið frá kaupum á P/F Føroya Shell, sem verið hefur í eigu Shell International Petroleum Company Limited. Starfsemin verður áfram rekin undir vörumerki Shell með sama hætti og hér á landi. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 108 orð | 1 mynd

Óvinveitt yfirtökutilboð í ABN Amro

TÍÐINDI af óvinveittu yfirtökutilboði Royal Bank of Scotland (RBS), Santander Central Hispano og Fortis Bank í hollensku bankasamstæðuna ABN Amro voru fyrirferðarmikil í erlendum viðskiptamiðlum í gær. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 273 orð | 1 mynd

Tilboð upp á 67 milljarða

Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbls.is STJÓRN Hf. Eimskipafélags Íslands hefur samþykkt að gera formlegt yfirtökutilboð í allt hlutafé kanadíska kæli- og frystigeymslufyrirtækisins Versacold Income fyrir samtals um 67 milljarða íslenskra króna. Meira
30. maí 2007 | Viðskiptafréttir | 185 orð

Tilskipun um aukið gagnsæi á markaði

BJÖRGVIN G. Sigurðsson, nýr viðskiptaráðherra, fékk samþykki á fundi ríkisstjórnarinnar í gær til að leggja fram þrjú frumvörp á sumarþingi Alþingis. Meira

Daglegt líf

30. maí 2007 | Daglegt líf | 676 orð | 3 myndir

Að anda að sér gamla tímanum

Árbæjarsafn er einn af gullmolum höfuðstaðarins þar sem margir hafa fundið ró við það að ganga um gömul hús og sjá hvernig forfeðurnir lifðu. Hálf öld er síðan safnið var formlega opnað og verður hátíð þar í bæ í sumar af því tilefni. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 146 orð

Af kossi og fornri speki

Þegar Helgi Zimsen hafði heyrt sjóaravísu, drykkjuvísu og hestavísu, þá orti hann: Lífs á miðum misjafnt ræ, mun þó engu kvíða. Unað get mér ef ég fæ að eta, drekka og ríða. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 331 orð | 1 mynd

Hollar reglur við svefnóreglunni

Ertu oft uppstökkur eða geðvondur? Það gæti átt sínar skýringar í ónógum svefni. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 398 orð | 1 mynd

Hreint loft fyrir starfsfólk veitingastaða

Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að hinn 1. júní nk. tekur gildi bann við reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum. Fjölmargir eigendur hafa nú þegar annaðhvort gert staði sína reyklausa eða takmarkað reykingar með ýmsu móti. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 507 orð | 5 myndir

Í skólanum, í skólanum – var allt öðruvísi fyrir 40 árum

Nemendur Hvassaleitisskóla urðu margir hissa þegar þeir grúskuðu í sögu skólans, sem nú er 40 ára og komust að því hvað margt er breytt. Þeir sögðu Unni H. Jóhannsdóttur frá nokkrum breytingum og hvað úr fortíðinni þau vildu helst að væri við lýði í dag. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 612 orð | 2 myndir

"Kvikmyndin kveikti í mér"

Einu sinni þegar ég var að koma heim frá útlöndum keypti ég bíómyndina Space Jam í fríhöfninni, en þar fer Michael Jordan, einn frægasti körfuknattleiksmaður allra tíma, á kostum með því að leika við alls konar teiknimyndafígúrur. Meira
30. maí 2007 | Daglegt líf | 884 orð | 1 mynd

"Virkar sem töfralausn á mig"

Í meira en hálfa öld hefur nikótínpúkinn fylgt Hreiðari Þórhallssyni eftir sem segist nú loksins hafa náð að slökkva í sinni síðustu sígarettu. Hann sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur frá hjálparmeðalinu, sem virkaði á undraverðan hátt og án nokkurs erfiðis eða aukaverkana. Meira

Fastir þættir

30. maí 2007 | Árnað heilla | 31 orð | 1 mynd

60 ára. Í dag, 30 maí, er Bragi Michaelsson, fv. bæjarfulltúi í...

60 ára. Í dag, 30 maí, er Bragi Michaelsson, fv. bæjarfulltúi í Kópavogi, Logasölum 14, 201 Kópavogi , sextugur. Bragi mun fagna þessum tímamótum síðar í sumar með ættingum og... Meira
30. maí 2007 | Fastir þættir | 153 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Opinská blekking. Norður &spade;D5 &heart;ÁG52 ⋄D1082 &klubs;K74 Vestur Austur &spade;KG84 &spade;Á962 &heart;63 &heart;10984 ⋄G943 ⋄Á76 &klubs;1093 &klubs;85 Suður &spade;1073 &heart;KD7 ⋄K5 &klubs;ÁDG62 Suður spilar 3G. Meira
30. maí 2007 | Í dag | 19 orð

Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar...

Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15. Meira
30. maí 2007 | Fastir þættir | 144 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. e3 Bb4 5. Dc2 Bxc3 6. Dxc3 De7 7. Be2 d5 8. O-O d4 9. exd4 exd4 10. Db3 0-0 11. He1 Bg4 12. Bd1 Dd6 13. d3 Rd7 14. Bd2 a5 15. Rh4 Rc5 16. Da3 Bd7 17. Be2 b6 18. Had1 h6 19. b3 Df6 20. Rf3 Hae8 21. Db2 Bg4 22. Meira
30. maí 2007 | Viðhorf | 905 orð | 1 mynd

Sorbonne á beinið

Ef ég hefði farið í eitthvert alvöru fag, eins og til dæmis lögfræði eða læknisfræði eða viðskiptafræði, hefði ég áreiðanlega flosnað upp frá þessu námi. Því má segja að það hafi orðið mér til happs að ég hélt mig við kjaftafögin. Meira
30. maí 2007 | Í dag | 116 orð | 1 mynd

Spurter... ritstjorn@mbl.is

1 Hvað heitir margæsin sem losnaði við senditækið af bakinu við Lambhúsatjörn? 2 Hvað heitir varnarmálaráðherra Ísraels sem velt hefur verið úr stóli Verkamannaflokksins þar í landi? Meira
30. maí 2007 | Í dag | 396 orð | 1 mynd

Tækifæri til að hætta

Ásgeir R. Helgason fæddist á Húsavík 1957. Hann lauk stúdentsprófi 1978 frá MH, BA-prófi í sálfræði frá HÍ og doktorsprófi í klínískri heilsusálfræði frá Karolinska lækningaháskólanum 1997. Meira
30. maí 2007 | Fastir þættir | 313 orð | 1 mynd

víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

Víkverji var á faraldsfæti um hvítasunnuhelgina líkt og margir landsmenn. Förinni var heitið norður yfir heiðar á föstudaginn og fyrir ferðafólk með ökutæki á sumardekkjum var ekki beint freistandi að leggja af stað. Meira

Íþróttir

30. maí 2007 | Íþróttir | 114 orð

Bandarískur leikstjórnandi til Þórs

ÞÓRSARAR frá Akureyri, nýliðarnir í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, gengu í gær frá samningi við bandarískan leikmann, Cedric Wesley Isom að nafni. Hann er leikstjórnandi, 1,87 m á hæð, og kemur frá East Texas Baptist-háskólanum. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 265 orð | 1 mynd

Birgir Leifur keppir í Wales

BIRGIR Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG verður á meðal keppenda á opna velska meistaramótinu sem fram fer á Celtic Manor golfvellinum. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 208 orð | 1 mynd

Elding setti skrekk í landsliðskonurnar í fótbolta

ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu kom til Aþenu seint í gærkvöld, um miðnættið að grískum tíma, en á morgun mætir það Grikkjum í sínum fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 214 orð

Fólk sport@mbl.is

Tryggvi Guðmundsson er orðinn sjötti markahæsti leikmaðurinn í efstu deild karla í knattspyrnu hér á landi frá upphafi eftir að hann skoraði síðara mark FH í sigrinum á Fram , 2:0, á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Þetta var 84. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 317 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Garðar Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Norrköping í 3:0 sigri liðsins á Falkenberg í sænsku 1. deildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld en ekki eitt eins og fram kom í blaðinu í gær. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 174 orð | 1 mynd

Fólk sport@mbl.is

Silkeborg , sem féll á dögunum úr dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur skipt um þjálfara. Peter Knudsen er tekinn við liðinu af Preben Lundbye en undir hans stjórn varð Silkeborg neðst í deildinni og tókst aðeins af vinna fimm af 33 leikjum... Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 292 orð

Fram – FH 0:2 Laugardalsvöllur, úrvalsdeild karla...

Fram – FH 0:2 Laugardalsvöllur, úrvalsdeild karla, Landsbankadeildin, þriðjudaginn 29. maí 2007. Mörk FH : Matthías Guðmundsson 52., Tryggvi Guðmundsson 90. (víti). Markskot : Fram 10 (2) – FH 13 (3). Horn : Fram 9 – FH 8. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 451 orð

Gefur okkur aukið vægi

ÞEIR Arnar Gunnlaugsson, sóknarmaður FH-inga, og Heimir Guðjónsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna, eru á einu máli um að Matthías Guðmundsson hafi bætt lið FH mikið með hraða sínum og ógnun á hægri vængnum. Arnar og Matthías gengu báðir til liðs við FH-inga fyrir þetta tímabil. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 139 orð | 1 mynd

Heiðar ósáttur við eigin frammistöðu

HEIÐAR Helguson segir á vef Fulham að hann hafi ekki verið ánægður með framlag sitt með liðinu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á nýafstöðnu tímabili en Heiðar og félagar sluppu naumlega við fall úr úrvalsdeildinni eftir afar slakt gengi á síðari... Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 184 orð | 1 mynd

Hlutverk mitt að valda usla

MATTHÍAS Guðmundsson, kantmaður í liði Íslandsmeistara FH, hefur verið iðinn við kolann í þeim fjórum umferðum sem búnar eru í Landsbankadeild karla. Hann hefur gert eitt mark í hverjum leik meistaranna og er markahæstur á mótinu til þessa ásamt félaga sínum á hinum kantinum, Tryggva Guðmundssyni. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 179 orð

Peter Gravesen verður í leikbanni gegn FH og HK

PETER Gravesen, danski miðjumaðurinn sem leikur með Fylki í úrvalsdeildinni í knattspyrnu, var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd KSÍ. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 246 orð | 1 mynd

Ragnar og félagar í Ivry eru með pálmann í höndunum

RAGNAR Óskarsson og félagar hans í franska handknattleiksliðinu Ivry eiga alla möguleika á að hljóta meistaratitilinn um næstu helgi þegar lokaumferðin verður leikin. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 126 orð | 1 mynd

Ronaldinho slapp með eins leiks bann

RONALDINHO, brasilíski knattspyrnusnillingurinn hjá Barcelona, slapp fyrir horn í gær þegar aganefnd spænska knattspyrnusambandsins tók fyrir brottrekstur hans í leiknum gegn Getafe í spænsku 1. deildinni um síðustu helgi. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 522 orð | 1 mynd

Sloan og Fisher fóru í "skammarkrókinn"

"VIÐ eigum erfitt verkefni fyrir höndum," sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah Jazz, eftir 91:79 tap liðsins gegn San Antonio í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í fyrrinótt en staðan er 3:1 fyrir Spurs og þarf liðið aðeins einn sigur á... Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 118 orð | 1 mynd

Stefán efstur í einkunnagjöf í Noregi

STEFÁN Gíslason, leikmaður Lyn í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er efstur í einkunnagjöf norska netmiðlsins Nettavisen fyrir frammistöðu sína með Óslóarliðinu. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 635 orð | 1 mynd

Stingur FH af á ný?

FH-INGAR virðast ætla að endurtaka leikinn frá síðustu tveimur árum og stinga af í Landsbankadeild karla. Síðasti leikur fjórðu umferðar var í gær og þá heimsóttu FH-ingar lið Fram og unnu 2:0. Meira
30. maí 2007 | Íþróttir | 182 orð

Strákarnir mæta Spánverjum í dag

PILTALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, leikur í dag gegn Spánverjum í fyrstu umferð milliriðils Evrópukeppninnar sem leikinn er í Noregi. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.