Forsvarsmenn Samvinnutrygginga hafa stofnað sjóðinn "Sjónvernd og blinduvarnir á Íslandi", sem styrkja mun forvarnir og tækjakaup til augnlækninga hérlendis.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 159 orð
| 1 mynd
Í SAURBÆJARPRESTAKALLI er því fagnað um þessar mundir að 50 ár eru síðan Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd var vígð. Af því tilefni verður helgina 14. og 15. júlí dagskrá, sem samanstendur af málþingi um Hallgrím Pétursson og hátíðarmessu.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 330 orð
| 1 mynd
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is MIKILL makríll hefur verið innan um norsk-íslensku síldina að undanförnu og hefur fiskurinn verið allt að 50% aflans.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 145 orð
| 1 mynd
Þær Stella Leifsdóttir og Aurelija Mockuviené úr búðinni Belladonnu skemmtu sér vel í góða veðrinu í gær þó líkast væri að þær stæðu í miðri snjókomu. Það er þó fullsnemmt fyrir fönnina en hins vegar er dreifing asparfræja í hámarki.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi: Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: "Samband ungra sjálfstæðismanna átelur harðlega afskipti einstakra sveitarfélaga af sölu á eignarhlut ríkisins í Hitaveitu...
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur, boðar aukna samvinnu Íslendinga og Rússa í orku- og umhverfismálum, hvort sem er á sviði viðskipta eða vísindarannsókna.
Meira
Ekki þurfa þessi ungmenni að kvarta undan vatnsskorti þrátt fyrir mikla þurrka undanfarið en þau virðast skemmta sér konunglega í Þjórsá á meðan hundurinn horfir forvitnislega á.
Meira
PAKISTANSKI herinn segir að konur og börn hafi ef til vill verið meðal þeirra sem féllu í umsátrinu um Rauðu moskuna í höfuðborginni Islamabad. Vitað sé með vissu að 86 manns hafi fallið í átökunum, þar af 11 hermenn.
Meira
UNGIR jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, undrast yfirlýsingar forystumanna Geysis Green Energy og þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að hugsanleg kaup Orkuveitu Reykjavíkur á hlut tveggja bæjarfélaga í Hitaveitu Suðurnesja stríði gegn...
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 705 orð
| 1 mynd
Viðskiptaráðherra mun taka gagnrýni ASÍ á matvörumarkaðinn fyrir síðar í mánuðinum, með aðkomu allra aðila. Hann segir nauðsynlegt að ná góðri sátt um verðlagseftirlitið.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 129 orð
| 1 mynd
KONUR úr Lionsklúbbnum Engey í Reykjavík hafa afhent Krabbameinsfélaginu 1,2 milljónir króna til kaupa á brjóstaómsjá til notkunar við leit að brjóstakrabbameini í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð í Reykjavík.
Meira
UMRÆÐA um skatta og skattapólitík hér á landi hefur verið lítil og næsta yfirborðskennd. Það hefur gert það mögulegt að skattalagabreytingar hafa verið fræðilega illa undirbúnar og greiningu áhrifa ábótavant. Þetta er mat Indriða H.
Meira
ALGER sprenging hefur orðið í svokölluðum götumálum á þessu ári hjá fíkniefnadeild lögreglunnar og eru nú ákveðnir menn undir eftirliti vegna gruns um að dreifa fíkniefnum til ungra neytenda.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 323 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnar Gunnarsson Eiðar | Níutíu norrænir myndlistarkennarar tóku þátt í námskeiði sem Félag íslenskra myndlistarkennara stóð fyrir á Eiðum í síðustu viku. Tengsl myndlistar og náttúru var efni námskeiðsins.
Meira
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is Fjölbreytt fuglalíf er í Viðey en æðarfugl er þar algengastur fugla en varptíma hans lýkur venjulega í upphafi júlímánaðar.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 207 orð
| 4 myndir
KAUPVANGSSTRÆTI 6 var að miklu leyti tekið í notkun í gær eftir endurbætur og mun nú hýsa veitingastaðinn Friðrik V. Húsið er breytt að innan jafnt sem utan, en ytra heldur það að stórum hluta af upprunalegu útliti sínu.
Meira
ÓÞEKKTUR maður hefur á síðustu 15 dögum komið fyrir pökkum á salernum karla víðsvegar í Japan þar sem finnanda er óskað lukku og innihalda þeir 10.000 jen hver. Gjafirnar hafa fundist í 18 héruðum af 48, alls rúmlega 2 milljónir...
Meira
SKIP með rúmlega 6.000 tonn af olíu lagði í gær af stað frá Suður-Kóreu til Norður-Kóreu en eitt af því sem norðanmenn fá í staðinn fyrir að loka kjarnorkuveri sínu í Yongbyon er milljón tonn af olíu.
Meira
Sauðárkrókur | Landsbanki Íslands mun styðja Knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Tindastóls næstu þrjú árin, samkvæmt samningi sem gerður hefur verið.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 140 orð
| 1 mynd
HÚSIÐ Manon á Fáskrúðsfirði, sem var að mestu leyti byggt úr viði frönsku skútunnar Manon, var rifið í gær. "Þetta er menningarslys í bænum," segir Albert Eiríksson, forstöðumaður safnsins Fransmenn á Íslandi.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 377 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir íslensk stjórnvöld sér meðvitandi um mikilvægi orkuöryggis og reglulega sé skoðað hvort taka eigi skref til að tryggja betur aðgang Íslendinga að eldsneyti.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 316 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ÞEGAR starfsemi leggst af í rækjuvinnslu Ramma hf. á Siglufirði í október missir 31 starfsmaður vinnuna og tapast þar með um 7% starfa í bænum.
Meira
FRAMKVÆMDIR standa um þessar mundir yfir í Viðey en vinnuhópur Ístaks reisir þar friðarsúlu sem hönnuð er af Yoko Ono í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 111 orð
| 1 mynd
ÞEIM sem áttu leið fram hjá flettiskilti við Kringluna í gær hefur eflaust brugðið nokkuð í brún þegar þeir sáu hitamælinn sem trónir ofan á skiltinu.
Meira
M. KRISTINSSON Danmark A/S, sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar eiganda Toyota á Íslandi, hefur fest kaup á danska fyrirtækinu Krogsgaard-Jensen, stærsta söluaðila Toyota í Danmörku.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 249 orð
| 1 mynd
"MAÐUR er eins og strákur í ævintýraferð, í leit að fjársjóði," segir dr. Sturla Friðriksson, um sína árlegu ferð til Surtseyjar. "Enda finnur maður nær alltaf eitthvað," bætir hann við.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 134 orð
| 1 mynd
BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um ráðningu Magnúsar Þórs Gylfasonar viðskiptafræðings í stöðu skrifstofustjóra borgarstjóra til eins árs. Magnús Þór gegnir starfinu í leyfi Kristínar A.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 312 orð
| 1 mynd
Eftir Ástu Sóley Sigurðardóttur astasoley@mbl.is KAUPÆÐI grípur oft og tíðum íslenskar konur er þær ganga fram á Hennes og Mauritz-verslun í útlöndum en barnaföt og önnur föt hafa lengi verið vinsæl í þeim verslunum.
Meira
FJÓRIR líbanskir hermenn féllu í gær í hörðum árásum hersins á vopnaða íslamista sem hafast enn við í flóttamannabúðum Palestínumanna, Nahr al-Bared. Talið var að herinn myndi freista þess að taka stöðvar mannanna sem eru í samtökunum Fatah...
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem grunaður er um að hafa framið rán í verslun 10-11 við Barónsstíg í Reykjavík á sunnudag, sæti gæsluvarðhaldi fram til miðvikudagsins 18. júlí.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 613 orð
| 1 mynd
Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur Hvolsvöllur | Opnuð hefur verið sýning á ljósmyndum Ottós Eyfjörð í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Ottó er sannkallaður alþýðulistamaður og náttúrubarn.
Meira
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar samþykktu í gær samkomulag um samstarf sveitarfélaganna við Geysi Green Energy (GGE) og Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um rekstur Hitaveitu Suðurnesja (HS).
Meira
HINN 1. ágúst næstkomandi hefst formlega starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem verður til við sameiningu Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.
Meira
Djúpivogur | Fiskurinn steinsuga barst á land á Djúpavogi síðastliðinn þriðjudag. Slæddist hún með afla sem fjórmenningarnir á Auði Vésteins lönduðu. Hún hafði sogið sig fasta við þorskræfil en það er einmitt á þann hátt sem steinsuga nærist.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 441 orð
| 1 mynd
"ÞETTA leit ekki vel út," segir Kristín Þórhallsdóttir, skálavörður í Langadal í Þórsmörk, en hún fór ásamt öðrum skálaverði á traktor út í Krossá síðastliðinn sunnudag á eftir bílaleigubíl sem svissneskt par hafði ekið út í ána.
Meira
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is SEXTÍU brot, sem varða akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, voru skráð hjá lögreglu í júnímánuði eingöngu. Jafngildir þetta tveimur brotum á dag í júní.
Meira
London. AFP. | Tvær sextán ára stúlkur frá Bretlandi voru nýlega handteknar á alþjóðaflugvellinum í Afríkuríkinu Gana með mikið af kókaíni, að sögn breskra embættismanna í gær. Samkvæmt upplýsingum breskra tollvarða er söluandvirði efnisins metið á 610.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 577 orð
| 4 myndir
Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is KÖTTURINN fer sínar eigin leiðir, segir máltækið og á það ekki síst við um læðuna Kisu, sem hvarf frá heimili sínu á skógræktarstöðinni Hvammi í Skorradal fyrr í sumar.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HÆGT væri að koma í veg fyrir meira en 3.000 dauðsföll vegna hjarta- og æðasjúkdóma í Bretlandi ef lagður yrði virðisaukaskattur á fjölmargar tegundir matvara, að sögn vísindamanna í Oxford-háskóla.
Meira
13. júlí 2007
| Innlendar fréttir
| 2815 orð
| 8 myndir
Starfsmönnum í sjávarútvegi í Grundarfirði finnst gróflega að sér vegið og þeir eru reiðir og sárir vegna fréttaskýringar Agnesar Bragadóttur um kvótasvindl í Morgunblaðinu 4. júlí sl. og leiðara blaðsins daginn eftir. Steinþór Guðbjartsson tók púlsinn í Grundarfirði.
Meira
NÝ SKÝRSLA SSV – þróunar og ráðgjafar leiðir í ljós að efnahagsleg áhrif á Vesturlandi af 30% skerðingu þorskkvóta nema 4,9 milljörðum króna á ári.
Meira
Stokkseyri | Bryggjan á Stokkseyri fær nýtt hlutverk um helgina. Hún mun verða lendingarpallur fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar sem kemur í kvöld í heimsókn á Bryggjuhátíð. Bryggjuhátíðin er nú haldin í fjórða skipti og stendur fram á sunnudag.
Meira
Bush Bandaríkjaforseti var ekki sannfærandi á blaðamannafundi þeim, sem hann efndi til um Írak í gær. Forsetinn hefur að sjálfsögðu rétt fyrir sér í því, að Bandaríkjamenn náðu því höfuðmarkmiði sínu að koma Sadam Hussein frá völdum.
Meira
Í viðskiptadagblöðum á Vesturlöndum eru tveir fastir daglegir dálkar, sem vert er að lesa. Annar er Lex í Financial Times . Hinn er breakingviews.com í Wall Street Journal.
Meira
Alltaf við og við eru framin ofbeldisverk, sem valda því, að við hrökkvum við. Um síðustu helgi voru tveir ungir menn á ferð um miðborg Reykjavíkur. Þá viku fjórir menn sér að þeim og réðust á þá, án nokkurs tilefnis svo vitað sé.
Meira
Baltasar Kormákur, leikari, leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður, hlaut á dögunum Karlovy Vary-verðlaunin fyrir verk sitt, Mýrina, stærstu verðlaun sem íslensk bíómynd hefur hlotið á erlendri kvikmyndahátíð. Manninn sjálfan þarf vart að kynna.
Meira
CATHERINE Zeta-Jones hótaði að yfirgefa Michael Douglas ef hann eignaðist ekki með henni börn. Leikkonan ljóstraði því upp á dögunum að Michael hefði beðið hennar með orðunum: "Ég vil vera faðir barnanna þinna.
Meira
UNDANFARIN misseri hefur hópur landsmanna verið iðinn við að hrista skankana á skemmtistöðum borgarinnar við tónlist sem var í algleymingi á tíunda áratugnum.
Meira
FRAMHALDSMYNDIR eru jafn órjúfanlegur hluti kvikmyndamenningarinnar og popp og kók. Vel heppnuð eða vinsæl mynd kallar á framhald og svo jafnvel meira framhald ef vel gengur.
Meira
LEIKSTJÓRINN Alex Proyas, sem þekktastur er fyrir svanasöng Brandon Lee, The Crow , mun leikstýra nýrri útgáfu af ævintýrum rúmenska aðalsmannsins Drakúla. Nýja myndin mun heita Dracula Year Zero og þar er vísað til upphafsára Drakúla í Transylvaníu.
Meira
Föstudagur < til ferðalaga> Gaukur á Stöng Wulfgang, Shadow Parade og Touch Sólon DJ Brynjar Már Hverfisbarinn DJ Stef Kringlukráin Hljómsveitin Signia Players Á móti sól 12 tónar Kira Kira Laugardagur < til láns> Sólon DJ Brynjar Mar og DJ...
Meira
Íslensk einsöngslög eftir Karl O. Runólfsson, Sigfús Einarsson og Sigvalda Kaldalóns. Óperuaríur og dúettar eftir Donizetti, Gounod, Lehar og Puccini. Flytjendur: Hlöðver Sigurðsson – tenór Þórunn Marinósdóttir – sópran Antonía Hevesi – píanó
Meira
KVENNASVEITIN Heimilistónar hefur sent frá sér plötuna Herra ég get tjúttað . Auk geisladisksins fylgir útgáfunni DVD-diskur með heimildarmyndinni Heimilistónar í Ameríku .
Meira
ÞAÐ ER sannkallað blómatímabil Harry Potter-aðdáenda um þessar mundir. Fimmta kvikmyndin um galdrastrákinn knáa var nýlega frumsýnd og von er á sjöundu og síðustu bókinni um Potter í búðir hinn 21. júlí.
Meira
HLJÓMSVEITIN Lada Sport hefur verið starfandi um alllangt skeið. Hún tók þátt í Músíktilraunum árið 2004 og varð þar í öðru sæti. Síðan þá hafa orðið talsverðar mannabreytingar í sveitinni sem hún hefur staðið af sér með prýði.
Meira
ÞEIR Matt Lucas og David Walliams eru flinkari flestum í að bregða sér í hlutverk ógleymanlegra breskra furðufugla í sjónvarpsþáttunum Little Britain. Nú ætla þeir félagar að leggja land undir fót og herja á Bandaríkjamarkað með gamanmál að vopni.
Meira
SVALA Ólafsdóttir opnar ljósmyndasýninguna Með kónguló í vasanum í dag í gallerí Auga fyrir auga. Svala er fædd og uppalin á Íslandi en hefur búið erlendis í nokkurn tíma. Í verkum hennar má sjá sterk tengsl við land og þjóð.
Meira
Í hinu nýja og skemmtilega framtaki Selasetrinu á Hvammstanga hefur verið komið fyrir myndlistarverkum fimm listamanna innan um uppstoppaða seli og margvíslegrar fræðslu um þessi fallegu sjávarspendýr.
Meira
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Í BÓKINNI um hlátur og gleymsku segir Milan Kundera: "Við hugsum um óendanleika stjarnanna en skeytum engu um óendanleikann sem er fólginn í feðrum okkar.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is KIRA Kira er listamannsnafn Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur en hún hefur í fjöldamörg ár verið með atorkusamari einstaklingum sem starfa í íslenskri tilraunatónlist.
Meira
UM helgina verður Erró-sýning í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í tilefni 75 ára afmælis listamannsins. Erró, skírður Guðmundur Guðmundsson, fæddist í Ólafsvík 19. júlí 1932 en bjó fyrstu æviárin á Kirkjubæjarklaustri.
Meira
Í DAG verður opnuð á Korpúlfsstöðum sýningin Alien Structure in Urban Landscape. Sýningin er viðamikið samvinnuverkefni listafólks frá Reykjavík, Hamborg og Prag sem staðið hefur síðastliðin þrjú ár.
Meira
BÓKIN um ævintýri Tinna í Kongó verður færð úr barnabókadeildinni í fullorðinsdeildina í Borders-bókabúðunum í Bretlandi. Þessi ákvörðun var tekin eftir að bókin var gagnrýnd fyrir kynþáttahatur.
Meira
FATAHÖNNUÐURINN Stella McCartney er ólétt. Þetta er þriðja barn Stellu og eiginmanns hennar Alasdhair Willis en aðeins eru sjö mánuðir síðan annað barn þeirra hjóna fæddist.
Meira
Einar Sveinbjörnsson | 11. júlí 2007 Þurrkur og laxveiði ...ekki þarf að fara lengra aftur en til ársins 2002 til að finna eitthvað sambærilegt. Þá var vorið enn þurrara og júníúrkoman í Stafholtsey ekki nema 11 mm eftir afar þurran maí.
Meira
Bjarni Harðarson fjallar um kvótann og hvalveiðar: "Það er samt margt sem bendir til að útilokað sé að byggja þorskstofninn upp nema með stórauknum hvalveiðum"
Meira
Kjartan Sigurgeirsson skrifar um Landsmót UMFÍ sem haldið var í Kópavogi: "Væri ekki jákvætt endurmat á landsmóti UMFÍ eðlilegra en neikvætt niðurrifstal?"
Meira
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir | 7. júlí Læknaklám 4. kafli Ég tek eftir því að enn eru erótískar sögur efstar á vinsældalista moggabloggsins. Ég hóf fyrir stuttu að skrifa sögu sem ég kalla Læknaklám.
Meira
Sigurður Pétursson telur að nú þurfi samstillt átak stjórnvalda og heimamanna til að lina höggið á Vestfjörðum: "Fari svo að stjórnvöld horfi áfram aðgerðalaus upp á hnignun byggða á Vestfjörðum verða íbúarnir sjálfir að taka sér þann rétt sem þeim ber"
Meira
Minningargreinar
13. júlí 2007
| Minningargreinar
| 1182 orð
| 1 mynd
Bára Sigurðardóttir fæddist á Akureyri 23. desember 1933. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt hins 21. júní síðastliðins. Foreldrar hennar voru hjónin Friðleifur Sigurður Jónsson prentari, f. 29. júlí 1905, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
13. júlí 2007
| Minningargreinar
| 1060 orð
| 1 mynd
Í DAG, föstudaginn 13. júlí 2007, eru 100 ár liðin frá fæðingu Hákonar Bjarnasonar, fyrrverandi skógræktarstjóra. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir, Ólafssonar ritstjóra og alþingismanns og Ágúst H. Bjarnason dr. phil.
MeiraKaupa minningabók
13. júlí 2007
| Minningargreinar
| 2519 orð
| 1 mynd
Karl Gústaf Ásgrímsson fæddist á Akranesi þann 20. ágúst 1929. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 1. júlí sl. Foreldrar hans voru Úlfhildur Ólafsdóttir, f. 27.6. 1897, d. 9.11. 1987, og Ásgrímur Eyleifsson, f. 16.5. 1885, d. 14.2. 1965.
MeiraKaupa minningabók
13. júlí 2007
| Minningargreinar
| 1712 orð
| 1 mynd
Sigríður Guðlaugsdóttir fæddist á Guðnastöðum í Austur-Landeyjum 23. janúar 1931. Hún andaðist á líknardeild Landakotsspítala 4. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin á Guðnastöðum, Guðlaugur Magnús Ólafsson, f. 18.11. 1893, d. 25.3.
MeiraKaupa minningabók
Þórunn Jóhannsdóttir, áður til heimilis á Gránufélagsgötu 7 á Akureyri, fæddist á Hinriksmýri á Árskógsströnd 4. nóvember 1919. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 6. júlí síðastliðinn. Foreldrar Þórunnar voru Malín Þorsteinsdóttir, f. 17. apríl 1882, d....
MeiraKaupa minningabók
FYRIR skömmu veiddi togarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK fyrsta battann, Dibranchus atlanticus, sem veiðst hefur hér við land. Fiskurinn, sem er af sædjöflakyni, veiddist í Skaftárdjúpi og var 17 sm langur, samkvæmt frétt á vef...
Meira
HREFNUVEIÐIBÁTURINN Njörður KÓ fór aftur út til veiða í fyrrakvöld og skömmu síðar veiddi hann hrefnu í Faxaflóanum. Kvótinn til 1. september er 30 dýr og er þetta þriðja hrefnan sem veiðist en kjötinu verður dreift í verslanir strax um helgina.
Meira
VELTA í dagvöruverslun jókst um 10,9% í júní miðað við sama tíma í fyrra, á breytilegu verðlagi. Hækkunin nam 16,6% á föstu verðlagi og að teknu tilliti til árstíðaleiðréttinga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar .
Meira
RÚSSNESKA orkufyrirtækið Gazprom hefur valið franska fyrirtækið Total of France til samstarfs um gasvinnslu á Shtokman-svæðinu svokallaða í Barentshafi norðan við Kola-skaga. Þar er að finna einhverjar mestu gaslindir á jörðinni.
Meira
ENSK-ástralska námafélagið Rio Tinto hefur lagt fram yfirtökutilboð í kanadíska álfyrirtækið Alcan, móðurfélag Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík. Hljóðar tilboðið upp á 38,1 milljarð Bandaríkjadala, eða liðlega 2.
Meira
VIÐSKIPTI með hlutabréf Teymis hf. voru felld niður í Kauphöll OMX á Íslandi í fyrradag. Umrædd viðskipti voru á verðinu 6,10 kr. en verð á bréfum Teymis var rúmar 5,40 kr. á svipuðum tíma, bæði fyrir og eftir, í gær.
Meira
Þær helgar sem Björt Sigfinnsdóttir er ekki upptekin við að svara á útlensku fyrirspurnum um Seyðisfjörð og nágrenni nýtur hún þess að slappa af og hitta góða vini. Hún sagði Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur frá frelsinu fyrir austan.
Meira
Hallmundur Kristinsson heyrði af því að ný og umhverfisvæn forsetabifreið væri komin að Bessastöðum: Ólafur forseti gerist nú grænn. grænka sumir af öfund. (Örpistill þessi er umhverfisvænn, eftir frábæran höfund).
Meira
Gamla Naustið hefur tekið miklum breytingum undanfarið og hefur nú fegnið á sig kínverskan svip. Ingvar Örn Ingvarsson leit í heimsókn og fékk uppskriftir að kínverskum krásum.
Meira
BRESKI tískuiðnaðurinn hefur nú tekið höndum saman um að leggja blátt bann við því að stúlkur undir sextán ára aldri starfi sem sýningarstúlkur á London Fashion Week í septembermánuði.
Meira
Á víkingaslóð Þrautabraut, kubb, víkingamarkaður, rímnakveðskapur barna og glíma er meðal afþreyingar á Leifshátíð sem hefst á Eiríksstöðum í Haukadal í Dölum í dag.
Meira
MARGIR hafa kannski ekki leitt hugann að því en svo einfalt verk sem það er að slá garðinn getur verið slæmt fyrir umhverfið því bensínsláttuvélar sem stundum standa kyrrar langtímum saman eru ekki alltaf í sem bestu standi.
Meira
Fjölmargar tískusýningar eru haldnar víða um heim og þó það sé nú oftast fatnaðurinn sem ætlað er að vera miðpunktur athyglinnar er tískusýningum vissulega stundum einnig ætlað að vekja athygli á annars konar málefnum. Þannig var t.d.
Meira
90 ára afmæli. Leópold J. Jóhannesson , fv. veitingamaður, verður níræður þann 16. júlí. Af því tilefni tekur hann og fjölskylda hans á móti gestum sunnudaginn 15. júlí á heimili hans á Hrafnistu í Reykjavík .
Meira
Albert Eiríksson fæddist á Fáskrúðsfirði 1966. Hann lauk matreiðslunámi frá HVS 1988 og sveinspr. í hárgreiðslu frá IR 1994. Albert vann sem matreiðslum., rak hársnyrti- og sólbaðsstofu, var framkv.stj.
Meira
LITTLE SECRETS (Sjónvarpið kl. 20.05) Þó hún sé á köflum fullvemmileg, er á ferðinni óvenjuvönduð og uppbyggjandi mynd með hollum boðskap um að það leysi engan vanda að eiga sér leyndarmál – best sé að vera hreinn og beinn.
Meira
Gullbrúðkaup | Gullbrúðkaup eiga þau Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir og Sigurjón Jóhannsson föstudaginn 13. júlí. Þau giftu sig á Siglufirði fyrir 50 árum og hafa búið þar alla tíð síðan.
Meira
HÉR SJÁST tveir suður-kínverskir tígrar, að nafni 327, til hægri, og Cathy. Þeir eru tveir af minna en hundrað sinnar tegundar sem eftir eru í heiminum.
Meira
ÞEGAR ég kveikti á sjónvarpinu um daginn var lögfræðingaþáttur í gangi. Daginn eftir voru það hins vegar löggur sem ræddu ábúðarfullar saman. Daginn þar á eftir voru svo lögfræðingarnir mættir aftur.
Meira
STAÐAN kom upp á Gorenje-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Valjevo í Serbíu. Tyrkneski stórmeistarinn Suat Atalik (2.584) hafði hvítt gegn hinum bosníska kollega sínum Predrag Nikolic (2.631). 27. Rxg6+! Kg7 hvítur hefði orðið tveim peðum yfir eftir 27....
Meira
1Rífa á húsið Manon sem heitir eftir franskri skútu. Hvar stendur húsið? 2Fyrstu íslensku kartöflurnar voru á borð bornar á Þremur Frökkum í fyrradag. Hver ræður þar ríkjum? 3Verið er að sýna bleikar tær í Galleríi i8. Hver er höfundurinn?
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona sækja Racing Santander heim í fyrstu umferð spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu sem leikin er dagana 26. og 27. ágúst. Fyrsti heimaleikur þeirra er síðan gegn baskaliðinu Athletic Bilbao viku síðar.
Meira
EINAR Daði Lárusson úr ÍR endaði í sjöunda sæti í áttþraut á Heimsmeistaramóti unglinga 17 ára og yngri sem fram fer í Ostrava í Tékklandi. Einar Daði kastaði spjótinu 42,68 metra í næst síðustu grein keppninnar og féll við það niður í tíunda sætið.
Meira
UTAN stórleiks Breiðabliks og Vals fóru þrír aðrir leikir fram í 8 liða úrslitum VISA-bikars kvenna í gærkvöld. Fjölnir sigraði Stjörnuna í jöfnum og spennandi leik, 1:2. Sama markatala var í Mosfellsbæ þar sem 1.
Meira
Bæði Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða í byrjunarliði Reading þegar liðið mætir argentínska liðinu River Plate í fyrsta leik sínum á alþjóðlegu knattspyrnumóti, Peace Cup , í Suður-Kóreu í dag. Ívar mun bera fyrirliðabandið.
Meira
Skagapilturinn Arnór Smárason hélt uppteknum hætti í fyrrakvöld og skoraði eitt marka hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen þegar það vann stórsigur, 10:0, á áhugamannaliðinu Hollandia T í æfingaleik. Arnór spilaði seinni hálfleikinn.
Meira
SÚ var tíðin að Metaloplastica Sabac frá gömlu Júgóslavíu bar ægishjálm yfir önnur félagslið í Evrópu. Liðið var gífurlega sterkt á níunda áratug síðustu aldar og hafði oft á að skipa kjarnanum úr hinu öfluga landsliði Júgóslava.
Meira
EHF, Handknattleikssamband Evrópu, hefur úrskurðað að franska landsliðsmanninum Daniel Narcisse sé heimilt að yfirgefa þýska Íslendingafélagið Gummersbach og ganga til liðs við Chambéry í heimalandi sínu.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður á meðal leikmanna í "draumaliði" þýska handknattleiksmannsins Stefans Kretzschmars á laugardaginn er það leikur gegn núverandi liði Magdeburgar í Bördelandhalle í Magdeburg.
Meira
ERLENDIR afrekshlauparar verða meðal keppenda í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem fer fram þann 18. ágúst. Þeirra frægastur er núverandi ólympíumeistari í greininni, Stefano Baldini frá Ítalíu. Hann mun þó líklega taka þátt í hálfmaraþoninu að þessu...
Meira
KYLFINGAR landsins héldu áfram að leika gott golf í meistaramótum sínum í gær og í nokkrum klúbbum eru menn talsvert undir pari eftir tvo hringi.
Meira
TVEIR ungir piltar, Kristinn Steindórsson úr Breiðabliki og Sigurbjörn Hafþórsson úr Keflavík, reyndust liðum sínum mikilvægir í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu í fyrrakvöld.
Meira
Ágúst Ásgeirsson NÝ RANNSÓKN leiðir í ljós, að breskar konur hrífast mjög af blæjubílum. Um milljón konur þar í landi eiga blæjubíl og algengasta tegundin er Peugeot 206.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Yfirvöld Evrópusambandsins gætu senn gripið til þess ráðs í baráttunni gegn hlýnun andrúmsloftsins að banna sportbíla. Þar með færu Ferraribílar sjálfkrafa á lista sambandsins yfir vától.
Meira
Franska lögreglan hefur birt samantekt um lögbrot í umferðinni fyrir árið 2006 og þar kemur fram að 169.510 bílstjórar voru sviptir ökuleyfi á árinu, annaðhvort tímabundið eða varanlega. Áfengisneysla er orsök langflestra sviptinganna, eða í 137.
Meira
Fyrsti fólksbíllinn sem fer í almenna umferð á Íslandi og knúinn er með vetnisrafala var afhentur Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur í fyrradag. Er bíllinn af tegundinni Mercedes Benz A-Class og er leigður af bílaframleiðandanum DaimlerChrysler.
Meira
Hönnunarstefna Chris Bangle hefur tryggt BMW mikla sölu hin síðustu ár en hönnun hans hefur tryggt frískleika BMW svo um munar og var engin vanþörf á eftir heldur hversdagslega bíla í lok níunda áratugarins.
Meira
VERKFRÆÐISTÚDENTAR í Cambridge í Englandi hafa smíðað bíl sem talar til eigandans, eða vélvirkjans, ef svo ber undir. Byggist hann á Fiat Stilo-bíl. Bíllinn getur tjáð vélvirkja hvað virkar og hvað ekki í gangverki og búnaði hans.
Meira
Henrik Fisker er hönnuður sem lætur drauma sína og annarra rætast og ber hann til dæmis ábyrgð á nokkrum best heppnuðu bílum síðustu ára, bílum eins og BMW Z8, Aston Martin DB9 og V8 Vantage.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.