Látin er í Reykjavík Halldóra Sigurjónsdóttir, frv. skólastjóri Húsmæðraskólans á Laugum. Halldóra var fædd 26. júní 1905 á Sandi í Aðaldal. Foreldrar hennar voru Sigurjón Friðjónsson, bóndi þar, og kona hans Kristín Jónsdóttir. Sigurjón var sonur Friðjóns bónda á Sandi Jónssonar bónda á Hafralæk Jónssonar og konu hans Sigurbjargar Guðmundsdóttur Stefánssonar frá Sílalæk. En Kristín var dóttir Jóns bónda á Rifkelsstöðum í Eyjafirði Ólafssonar Jónssonar bónda á Stokkahlöðum og konu hans Halldóru Ásmundsdóttur Gíslasonar frá Þverá í Dalsmynni.

Halldóra var sjöunda í röð tíu barna Sigurjóns og Kristínar sem upp komust. Eldri voru Arnór, skólastjóri Alþýðuskólans á Laugum, síðar starfsmaður Hagstofu Íslands, Unnur, húsfreyja á Laugabóli í Reykjadal, Áskell, bóndi í Laugafelli í Reykjadal, Dagur, skólastjóri barnaskólans á Litlulaugum, Fríður, ljósmóðir, síðast á Sólvangi í Hafnarfirði og Sigurbjörg, húsfreyja á Litlulaugum í Reykjadal, en yngri Ingunn, sem lést úr berklum fulltíða, Ásrún, hjúkrunarkona á Hvítabandinu í Reykjavík, og Bragi, alþingismaður og bankaútibússtjóri á Akureyri. Lifa Áskell, Fríður, Sigurbjörg og Bragi systur sína.

Halldóra fluttist á fyrsta ári með foreldrum sínum að Einarsstöðum í Reykjadal þar sem þau tóku við hálfri jörðinni til ábúðar eftir að Haraldur Sigurjónsson, mágur Kristínar, lést um aldur fram. Voru þetta ráð Ásrúnar húsfreyju Jónsdóttur og föður systranna. Foreldrar þeirra höfðu flutt í Einarsstaði þegar þau brugðu búi. En þriðja systirin, Kristjana, hafði gifst í Stórulaugar í Reykjadal Aðalgeiri Davíðssyni, bónda þar. Sigurjón og Kristín höfðu einmitt kynnst þegar Sigurjón var heimiliskennari á Einarsstöðum hjá Haraldi og Ásrúnu og var kært með þeim og húsfreyju. Var þeim því ljúft að flytja fram í Reykjadal, þó einkum Kristínu sem naut þar nábýlisins við eldri systur sínar. Þau Sigurjón og Kristín bjuggu á Einarsstöðum til 1913 þegar þau tóku hálflendu Litlulauga í sömu sveit á leigu og fluttu þangað með öllum börnum sínum. Þar bættist þeim fóstursonur, Gísli T. Guðmundsson, systursonur Sigurjóns. Seinna keyptu þau jörðina alla og bjuggu þar til æviloka.

Halldóra var snemma rösk til allra inniverka og gekk í heimilisstörfin með móður sinni af miklum dugnaði enda margt að iðja á stóru heimili. Voru þær mæðgur mjög samrýndar og einhuga um verk. Ekki minnkuðu annir þeirra við það að Sigurjón tók mikinn þátt í málefnum Kaupfélags Þingeyinga og stjórnmálum. Settist hann á þing sem varamaður Hannesar Hafstein, þegar hann lét af störfum sökum heilsubrests, og sat alls fjögur þing. Var því gestkvæmt á Litlulaugum. Ábyrgðin af heimilinu lagðist þó enn þyngra á herðar Halldóru fyrir það að Kristín varð berklaveik.

Halldóra var þó ekki aðeins hverjum röskari til vinnu heldur einnig til bóknáms. Hún naut fyrst leiðsagnar Arnórs, bróður síns, og Helgu Kristjánsdóttur, mágkonu sinnar, við Alþýðuskólann á Breiðumýri 1922-23 og síðar á Laugum 1926-27, þegar skólinn hafði verið fluttur þangað. Eftir það fór hún til náms í hússtjórnarfræðum til Svíþjóðar, fyrst við húsmæðraskólann Helsingegården 1927-28. Húsmæðrakennaraprófi lauk hún hins vegar í Rimforsa 1930. Enn fór hún í námsferð til Norðurlanda 1950 og tók m.a. þátt í kennaranámskeiði í uppeldishagfræði í Uppsölum.

Áður en Halldóra lauk húsmæðrakennaranámi hafði verið komið á fót húsmæðraskóla á Laugum undir stjórn Kristjönu Pétursdóttur alþingismanns Jónssonar á Gautlöndum og hafði verið ákveðið að Halldóra tæki þar við kennslu í hússtjórnarfræðum. Halldóra hóf þar störf 1930. Varð húsmæðraskólinn síðan starfsvettvangur hennar meðan kraftar hennar entust til kennslu. Tók hún við skólastjórn að Kristjönu látinni 1946 og gegndi henni allt til ársins 1966 eða í tuttugu ár.

Skólasetrið á Laugum var reist í túnfæti Litlulauga fyrir atbeina þeirra feðga Sigurjóns og Arnórs. Gaf Sigurjón lóð undir skólana og hitaréttindi til hitunar þeirra. Fjögur systkinanna áttu eftir að sinna kennslustörfum þar en ekkert eins lengi og Halldóra. Rækti hún það starf af áhuga, stakri alúð og aðgæslu. Var henni umhugað um að af skólanum færi hið besta orð, þar væru úrvalskennarar og námsmeyjar menntuðust þar bæði til munns og handa. Þá var það henni kappsmál að húsakynni skólans væru ætíð í besta horfi og þrifnaður hvergi meiri. Samstarf hennar og annarra kennara var með ágætum og unnu flestir þeirra með henni áratugum saman að velferð skólans. Samskipti hennar við stjórn skólans voru og góð. En mestur styrkur við skólastjórnina mun henni þó hafa verið af Áskeli, bróður sínum. Öll árin sem hún starfaði við húsmæðraskólann sá hann um bókhald hans. Var þeim báðum samviskusemi í blóð borin og heiðarleiki í fjárgæslu allri. Svo ríkar voru kröfur Halldóru til sjálfrar sín að duga við skólastjórnina að hún gekk að lokum fram af heilsu sinni og varð því að láta af störfum. Fluttist hún þá til Reykjavíkur og síðar á Seltjarnarnes og bjó lengstum hjá Kristínu, dóttur sinni. Alltaf leit hún samt á Reykjadal sem sína heimabyggð og hvarf hún norður í Laugar þegar snjóa leysti á vorin.

Halldóra giftist 1933 Halldóri Víglundssyni, síðar vitaverði. Þau slitu samvistir 1942. Þeim varð þriggja barna auðið. Þau eru Halldór, yfirlæknir á Kristnesspítala, kvæntur Birnu Björnsdóttur, vefnaðarkennara, og eiga þau fjögur uppkomin börn. Svanhildur, starfsmaður BSRB, var gift Arnaldi Valdimarssyni, starfsmanni Skattstofunnar í Reykjavík, og eiga þau fjögur börn, og Kristín, starfskona Kvennalistans, gift Jónasi Kristjánssyni, ritstjóra, og eiga þau fjögur börn.

Halldóru var mjög annt um börn sín. Velferð þeirra, barnabarna og barnabarnabarna tók ekki síður hug hennar en kennslan og skólastjórnin. Er það líklegast ríkasti votturinn um atorku hennar og nægjusemi fyrir sjálfa sig að hún kom börnum sínum til mennta ein og óstudd. Bera þau öll uppeldi hennar og menningu gott vitni.

Halldóra var fremur hlédræg, fámælt og orðvör þótt hún væri alveg feimnislaus og ákveðin í framkomu. Hún var meðalkona á hæð, beinvaxin og grannholda, andlitsdrættirnir skarpir og festa í svipnum, dökkhærð en hærðist snemma. Hreyfingar hennar voru kvikar og í fullu samræmi við röskleika hennar. Hún var fremur alvörugefin en hress í tali við kunnuga. Ræktarleg var hún við þá sem henni voru hollir og hlý þeim sem henni geðjaðist að.

Ég sem þetta rita var svo lánsamur að eiga Halldóru að föðursystur. Engin kona önnur en móðir mín annaðist mig barnið eins og hún, engin önnur en móðir mín lét sér jafntítt um þroska minn og hún. Drengurinn eyddi ég sumrunum með henni. Strax og vorskólinn á Akureyri var búinn fór ég austur í húsmæðraskóla til hennar. Einnig ferðaðist ég með foreldrum mínum og henni um allt land svo langt sem vegir leyfðu. Mér varð þá fullljóst að foreldrum mínum var návist fárra jafnkær og hennar enda fannst mér hún hvergi njóta sín jafnvel og með þeim nema í samskiptum við Áskel, bróður sinn. Þau þrjú systkinin voru næsta lík að andlitsfalli og gerð og áhugasvið þeirra var svipað um margt. Þó hafði Halldóra lítinn áhuga á þessum árum á stjórnmálum. Þær frænkur móðir mín og Halldóra voru báðar afarröskar til vinnu. Höfðu þær ungar orðið að sinna heimilisstörfum þegar mæður þeirra veiktust af berklum og samhugur þeirra virtist koma af sjálfu sér þótt þær væru óskaplíkar. Engin mágkvenna móður minnar virti kosti hennar eins og Halldóra enda leitaðist móðir mín alltaf eftir að verða henni að hverju því liði sem hún gat hvort sem það var um aðdrætti til skólans eða fyrirgreiðslu vegna barna hennar.

Mér finnst síðan ég ferðaðist barn með foreldrum mínum og Halldóru, föðursystur minni, hringinn kringum landið að engin landafræði og sögukennsla hafi verið betri. Þau þeystu ekki um sveitir og kauptún landsins heldur gáfu sér tóm til að skoða kennileiti, glöggva sig á bæjarnöfnum, ræða landsins gögn og gæði, rifja upp frásagnir úr héruðum og sögu staða og heimsækja fólk enda þekktu þau systkinin víða til. Ekki var það síður gott veganesti drengnum að fá að kynnast þeim anda menningar sem ríkti í Húsmæðraskólanum á Laugum. En best var að dveljast með Halldóru einni í Varmahlíð og njóta kyrrðarinnar með henni. Heiman frá mér var ég vanur stöðugum ys og þys enda við systkinin mörg og mjög gestkvæmt en á sumrin dvaldist Halldóra langdvölum ein þegar þetta var enda börnin farin að heiman til náms og starfa. Móðir mín sagði mér síðar að Halldóru hefði þótt félagsskapur af að hafa mig hjá sér í Varmahlíð og þar fannst mér líka indælt að vera. Hún hafði gott fyrir mér og leiðbeindi mér á sinn hljóðláta hátt. Bar ég óblandna virðingu fyrir henni eins og mér virtust einnig allir aðrir gera. Hún var mér raungóð fóstra. Það fékk ég henni aldrei fullþakkað.

Úlfar Bragason.