Ég hugsa til starfsmanna Samherja sem horfa nú á stríðsfyrirsagnir um fyrirtækið og stjórnendur þess. Sérstakt samband virðist milli Ríkisútvarpsins og Stundarinnar enda er oft sagt að líkur sæki líkan heim. Hvort eitthvað er til í þeim ásökunum sem komið hafa fram verður framtíðin að leiða í ljós og hugsanlega dómstólar. Sem betur fer dæma ekki fjölmiðlar eða þeir sem hrópa á torgum í máli þessu heldur dómstólar, gangi málið til þeirra. Ríkisútvarpið og Stundin hafa áður sængað saman og þá matreitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlutina enn verri. Því er mikilvægt að bíða eftir heildarmyndinni áður en opinberar aftökur hefjast. Auðvitað vonar maður að það taki ekki of langan tíma að rannsaka málið og að starfsmenn Samherja haldi áfram stoltir að búa til gjaldeyri fyrir þjóðina.
Ef til vill telja einhverjir fjölmiðlar það skyldu sína að matreiða fréttir í sem mestum æsifréttastíl ef heildarmyndin er ekki nógu hneykslanleg. Þá er ekki spáð í neitt annað en áhorfstölur, lestur, flettingar og „klikk“ á vefsíðum. Það kemur einnig fyrir að einstaklingar sem þrá lítið annað en athygli fái mikið pláss án þess að nokkuð sé í raun að frétta og þá loka óvandaðir fjölmiðlar augunum fyrir hræsni viðkomandi þar sem tilgangurinn helgar meðalið.
Það er slæmt fyrir okkur öll þegar eitt af öflugustu fyrirtækjum landsins er sakað um vafasama viðskiptahætti. Eðlilegt er að þeir sem ábyrgð bera svari fyrir það. Þeir og aðrir sem að fyrirtækinu standa eða starfa hjá því eiga fjölskyldur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð eru eða hvers vegna fjölskyldufaðirinn eða móðirin blandast inn í þá umræðu sem búin var til með æsifréttastílnum. Æsingur fjölmiðilsins til að ná athyglinni er stundum svo mikill að annað skiptir ekki máli. Athygliskeppnin er eins og aurskriða sem engu eirir og síst sannleikanum sem kannski kemur í ljós seint og um síðir.
Á þá ekki að upplýsa um það sem miður fer eða þegar líkur eru á einhverju broti? Jú, svo sannarlega en hvernig það er gert skiptir máli.
Alþingi ræddi fjárlög í gær þar sem stjórnarandstaðan flutti fjölmargar breytingatillögur sem allar voru felldar af stjórnarflokkunum.
Miðflokkurinn lagði m.a fram tillögu um að hætt yrði við að ríkisvæða fjölmiðla á einkamarkaði en stjórnarflokkarnir leggja til að 400 milljónir króna renni til miðla á einkamarkaði. Galin hugmynd þegar ríkið er nú þegar að setja 5 þúsund milljónir króna í ríkisrekinn fjölmiðil. Það að reyna að koma öllum fjölmiðlum á ríkisspenann minnir óþægilega á samfélög þar sem stjórnvöld reyna að stýra öllum fjölmiðlum.
Fjölmiðlar verða að geta starfað án ríkisstyrkja. Miðflokkurinn mun á næstunni kynna hugmynd að því hvernig efla megi einkarekna fjölmiðla án þess að binda þá á ríkisjötuna. gunnarbragi@althingi.is
Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins.