Í KVÖLD og annað kvöld munu nemendur á söngleikjanámskeiði í Domus Vox setja upp stytta útgáfu af söngleiknum Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Sýningarnar verða kl. 18 og 20 á föstudaginn, en kl. 14 og 20 á laugardaginn og kostar 700 kr. inn. Kennari og leikstjóri er söngkonan Margrét Eir, en leikarar og söngvarar eru á aldrinum 12-31 ára og hafa lagt mikinn tíma og orku í að gera uppsetninguna sem fagmannlegasta.
Gamlir smellir og nýir leikarar
"Það er búið að vera rosalega skemmtilegt," segir Margrét Eir, "en líka erfitt. Það er mikið verk að læra allan þennan texta, og leikararnir hafa reddað öllu sjálfir. Þau hafa fengið finna fyrir því nákvæmlega hvernig er að setja upp heila sýningu frá búningum upp í sviðsmynd, þar sem gjafmildar ömmur hafa hjálpað til, og svo sjá þau um tónlistina, míkrafóna, allt saman, voða gaman."Bjarni Snæbjörnsson leikur aðalhlutverkið, hann Davíð.
"Leikritið byrjar þannig að Davíð kemur úr námi í útlöndum, en síðan er strax farið aftur í tímann og horft á þegar hann var sautján ára," útskýrir Bjarni sem hefur stundað nám við Söngskólann í Reykjavík í tvö ár.
"Ég er frá Tálknafirði og var í áhugamannaleikhúsinu þar og hef alltaf haft áhuga á leiklist og söng. Söngleikir höfða mjög mikið til mín, meira en klassíkin."
Söngleikurinn gerist árið 1961 og lögin eru gamlir smellir frá þessum tíma, sem þau flytja í eigin útsetningum. En Bjarni segist líka hafa fundið sjálfan sig mikið hvað varðar leik. "Margrét Eir er líka búin að vera frábær. Hún er hreinskilin og veit hvað hún vill. Skemmtilegast hefur verið að kynnast þessu fólki og að vinna með því. Og svo er maður búinn að læra svo mikið," segir Bjarni að lokum.