Það varð uppi fótur og fit á öldum ljósvakans þegar Tilraunaeldhús Tobbu framkvæmdi ótrúlega tilraun á dögunum þar sem sú kenning var prófuð hvort hægt væri að standa ofan á venjulegu vínglasi án þess að það brotnaði.
Tilraunin fór afskaplega illa eins og sjá má en áhorfendur voru ekki á eitt sáttir við framkvæmd tilraunarinnar og vildu margir meina að parketflísinni hefði verið um að kenna. Við endurtókum því tilrauninga og útkoman kom töluvert á óvart.