Einfaldur ítalskur sveitamatur

Harpa Stefánsdóttir er með síðuna eldhusatlasinn.is. Tilgangurinn með Eldhúsatlasnum er að finna og elda uppskriftir að hefðbundnum grænmetisréttum eða kjötlausum réttum frá 196 löndum.

Hún gefur uppskrift að „spaghetti con pangrattato“, sem er einfaldur ítalskur sveitamatur. Pangrattato er steikt krydduð brauðmylsna sem er stundum kölluð parmesan fátæka mannsins.

Þegar Harpa kaupir súrdeigsbrauð í bakaríi klárast það aldrei alveg allt og hún býr alltaf til grófa brauðmylsnu úr restinni. Henni þykir mjög þægilegt að elda þennan rétt eftir annasaman dag því hún á alltaf svona brauðmylsnu tilbúna í frystinum. Þessi uppskrift er fyrir tvo.

Spaghetti con pangrattato
  • 200 g gott spaghetti
  • 1-2 litlar lífrænar sítrónur (eftir smekk)
  • 100 g gróf brauðmylsna (t.d. úr góðu súrdeigsbrauði en athugið að gróft brauð hentar illa í þessa uppskrift)
  • 7 msk extra virgin ólífuolía
  • 3 hvítlauksgeirar (eða fleiri eftir smekk)
  • ferskt timían eftir smekk
  • steinselja
  • þurrkaður eða ferskur rauður chilipipar
  • salt og pipar

Brauðmylsnan

Í þennan rétt er best að nota grófa heimagerða brauðmylsnu og það er tilvalið að nota gamalt brauð sem er orðið svolítið þurrt. Í þessa brauðmylsnu notaði Harpa þrjár stórar súrdeigsbrauðsneiðar. Besta aðferðin við að búa til brauðmylsnuna er að setja brauðsneiðarnar í matvinnsluvél og búa til frekar grófa mylsnu. Dreifið brauðmylsnunni á bökunarpappír og bakið í ca 20 mínútur við 100 gráður. Fylgist vel með og gætið þess að mylsnan dökkni ekki of mikið.

Pangrattato

Hitið 4 msk. af ólífuolíu á pönnu við vægan hita. Steikið brauðmylsnuna með timían þar til hún verður fallega gulbrún og stökk. Það tekur ca 5 mínútur en á síðustu mínútunni skuluð þið bæta einu söxuðu hvítlauksrifi út á pönnuna. Saltið og piprið og setjið brauðmylsnuna á eldhúspappír.

Spaghettíið

Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hitið 3 msk. af ólífuolíu á pönnu og steikið 1-2 hvítlauksrif (eða fleiri eftir smekk) og ferskt eða þurrkað chili við vægan hita. Hellið vatninu af spaghettíinu en geymið nokkrar matskeiðar af suðuvatninu. Setjið spaghettíið út á pönnuna og blandið því saman við olíuna. Setjið safa og börk úr 1-2 litlum sítrónum yfir spaghettíið (Það er mjög mikið smekksatriði hversu mikil sítróna má vera í réttinum og best að prófa sig áfram og smakka réttinn til). Það getur svo verið gott að setja svolítið af suðuvatninu út á pönnuna. Stráið vel af ferskri steinselju yfir og blandið öllu vel saman. Smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa.

Skiptið spaghettínu í skálar og stráið pangrattato yfir. Það er líka gott að bæta við t.d. ólífum, marineruðum sveppum, brokkólíi og smá veganparmesan.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert