Græjan sem espressó-fíklarnir verða að eignast

Einstaklega smekkleg og gagnleg græja.
Einstaklega smekkleg og gagnleg græja. mbl.is/Amazon

Hefur þú einhvern tímann grátið yfir því að geta ekki hellt þér upp á góðan skyndi-espressóbolla uppi á fjallstindi eða bara fjarri mannabyggðum almennt?

Nú getur þú tekið gleði þína því hér gefur að líta ferða-espressóvél sem fer fram úr flestum væntingum.

Létt og lipur og kostar rétt um fimm þúsund krónur.

Græjuna þarf að panta erlendis frá en hún er sögð framleiða afbragðskaffi.

Það er ekki seinna vænna en að panta græjuna fyrir sumarið svo allt sé tilbúið fyrir útileguna, fjallgönguna eða kajakróðurinn... eða eitthvað.

Lekker bolli upp á hálendinu.
Lekker bolli upp á hálendinu. mbl.is/Amazon
Má bjóða þér einn sterkan?
Má bjóða þér einn sterkan? mbl.is/amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert