Hvernig á að halda matarboð?

Það er þó nokkur kúnst að halda gott matarboð.
Það er þó nokkur kúnst að halda gott matarboð. mbl.is/

Að ýmsu er að hyggja áður en matargesti ber að garði. Það er augnayndi að sjá fallega lagt á borð og gott er að gefa sér góðan tíma í að undirbúa borðið, jafnvel daginn áður, skipuleggja og koma öllu haganlega fyrir. Eins og venjulega þarf að meta tilefnið og umfangið. Þegar mikið stendur til notum við spariborðbúnaðinn.

Lagt á borðið: Ef léttvínsglösin og sparidiskarnir hafa ekki verið notaðir lengi er um að gera að renna þeim í gegnum uppþvottavélina á hraðprógrammi og pússa að því loknu með hreinu stykki.

Brún matardisksins á að vera rétt fyrir innan brún borðsins, servíettan kemur ofan á matardiskinn, gaffall vinstra megin við diskinn og hnífur hægra megin, hvort tveggja í sömu fjarlægð frá brúninni og matardiskurinn.  Eftirréttaráhöldin, gaffall og skeið, fyrir ofan diskinn. Skeiðin fyrir ofan gaffalinn og hald gaffalsins snýr í áttina að aðalréttagafflinum en hald skeiðarinar í áttina að hnífnum. Súpuskeið kemur svo hægra megin við hnífinn. Glösin í boga eða í línu, eftir smekk, fyrir ofan hægra megin. Fyrsta vínglas skal sett beint fyrir ofan aðalréttahnífinn og vatnsglasið hægra megin við það.

Hver er hvar: Það er ágætt að ákveða sætaskipan, hver situr hvar, með því að skrifa nafn gestanna á miða og stilla upp, t.d. fyrir ofan gaffla . Oft er þægilegt að gestgjafar séu við enda borðsins. Best fer á að hjón sitji ekki langt frá hvort öðru, en á móti hvort öðru á ská getur brotið skemmtilega upp. Ef því verður viðkomið er gott að hafa karla og konur til skiptis. Í mjög formlegum boðum er sá háttur hafður á að heiðursgesturinn er húsbóndanum á hægri hönd, sé um konu að ræða, en á hægri hönd húsfreyjunnar ef um karl er að ræða.

Borðskreyting og kerti: Falleg blómaskreyting setur alltaf punktinn yfir i-ið. Passa þarf að hún sé ekki of há til að skyggja ekki á gesti, oft er miðað við 20 cm. Sama á við um kertastjaka, margarma stjakar taka mikið pláss og skyggja á. Hafa verður í huga að matarföt, skálar og annað slíkt tekur pláss á borðinu. Til að gera sér grein fyrir plássinu er gott að leggja þetta stutta stund tómt á borðið eftir að búið er að leggja matardiskana, áhöldin og glösin á, áður en gestirnir koma.

Munnþurkur: Þó margir telji servíetturnar sé mest upp á punt eru þær þó mikilvægar sérstaklega ef slys verður. Með aðstoð netsins má finna fjölmörg servíettubrot og gott er að æfa sig í þeim tímanlega. Einfaldast er að hafa sama brotið fyrir alla gestina, en það getur verið skemmtilegt uppbrot að hafa tvö servíettubrot og nota þau til skiptis.

Létt stemning: Létt stemning og notalegt andrúmsloft er það mikilvægasta af öllu í matarboði þegar upp er staðið. Það þarf að gæta þess að allir fái að njóta sín og að umræðuefni í matarboðinu séu ekki einsleit. Það á hér við eins og svo oft áður að æfingin skapar meistarann. Okkur verða á mistök, en af þeim má læra. Það er sjálfsögð kurteisi við gestgjafa og aðra veislugesti að fólk haldi uppi skemmtilegum samræðum yfir borðhaldinu.

Nokkur atriði:

  • Bjóða gesti velkomna þannig að þeim líði vel strax frá fyrstu mínútu. Ef hjón bjóða heim taka þau bæði á móti gestum.

  • Leggja dúkinn á borðið deginum áður svo að hann taki sig.

  • Hafa blómavasa til reiðu, e.t.v. koma gestir með blóm með sér. Sumir senda þau á undan sér.

  • Velja ljúfa viðeigandi tónlist og gæta þess að hún sé ekki of hátt stillt.

  • Velja borðvín af kostgæfni og huga að hitastigi vínanna.

  • Hafa notalegt á snyrtingunni, næga sápu, handklæði og pappír, e.t.v. kerti.

  • Prenta út söngtexta eða annað sem á að nota í leikjum.

  • Varast eldfim málefni og sjúkrasögur í boðinu.

  • Gestgjafar skipta með sér verkum, svo að allt gangi fumlaust fyrir sig.

  • Víða erlendis þykir sjálfsagt að senda lítið þakkarkort eftir kvöldverðarboð. Hér á landi þakka margir fyrir sig með símtali daginn eftir, sms-i eða á fasbókinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert