Mjólkin í nýjan búning

Þrettán ár eru síðan útlit mjólkurfernanna breyttist síðast.
Þrettán ár eru síðan útlit mjólkurfernanna breyttist síðast. mbl.is/MS

Mjólkurfernurnar frá MS eru órjúfanlegur hluti af daglegu lífi margra Íslendinga og koma við sögu á heimilum og vinnustöðum um land allt á hverjum degi. Það telst því til tíðinda þegar þessar hversdaglegu umbúðir taka breytingum en á næstu vikum munu nýjar umbúðir koma fyrir augu neytenda í verslunum um land allt. Nýju umbúðirnar munu taka við af þeim gömlu eftir því sem umbúðabirgðir klárast en MS leggur mikla áherslu á að nýta það sem til er og forðast að henda heilum umbúðum.

Þrettán ár eru síðan útlit fernanna breyttist síðast og við vinnu á nýju umbúðunum var að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, lögð áhersla á að halda í sömu grunnliti og áður enda skipta þeir miklu máli þegar neytendur kaupa mjólkina. Umbúðahönnunin er afrakstur vinnu auglýsingastofunnar Ennemm og markaðs- og vöruþróunardeildar MS og á nýju mjólkurumbúðum má finna texta um vítamín og steinefni sem mjólkin inniheldur auk þess sem neytendum er bent á skemmtileg neyslutilefni með mjólkinni, að því að fram kemur í fréttatilkynningu frá MS.

Fyrir ári tók Mjólkursamsalan í notkun nýjar og umhverfisvænni mjólkurfernur sem eru þær umhverfisvænstu sem völ er á fyrir drykkjarmjólk. Umbúðirnar eru ekki eingöngu endurvinnanlegar heldur eru þær jafnframt búnar til úr endurnýjanlegu hráefni úr plönturíkinu. Pappinn er úr ábyrgri skógrækt þar sem skógarnir fá að endurnýja sig og trjávexti er haldið gangandi og plastið er unnið úr sykurreyr í stað olíu og er því ekki gengið á takmarkaðar jarðefnaauðlindir og á sama tíma er dregið úr losun koltvísýrings út í andrúmsloftið. Við þessar breytingar minnkaði kolefnisfótspor fernanna um 66%. Þá hefur MS lagt ríka áherslu á endurvinnslu og hvatt neytendur til þessa að taka afstöðu með umhverfinu og endurvinna tómar umbúðir.

Af þessu tilefni hefur vefurinn ms.is/mjolk verið opnaður en þar geta neytendur lesið sér til um hollustu mjólkur og tekið þátt í skemmtilegum leik í byrjun maí um mjólk og meðlæti þar sem fjöldi glæsilegra vinninga verður í boði fyrir heppna þátttakendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert