Bjóða upp á súkkulaðihjúpaða bragga

Heiðar Kristjánsson

Glöggir menn hafa vakið á því athygli að Kristjánsbakarí býður upp á köku sem þeir kalla Bragga. Hafa myndir af kökunni farið víða og forsvarsmenn Kristjánsbakarís kallaðir markaðsmenn ársins af sumum. 

Hér er þó um að ræða gamalgróna köku með rótgróið vörunúmer sem ætti að vera landsmönnum að góðu kunn. Um er að ræða ljósbrúna köku með smjörkremi sem hjúpuð er súkkulaði. 

Við spáum því að Bragginn frá Kristjánsbakaríi verði á boðstólnum ansi víða á næstu misserum enda þjóðin hvergi nærri búin að fá nóg af bröggum.

Svona lítur Bragginn út. Engum sögum fer af því hvort …
Svona lítur Bragginn út. Engum sögum fer af því hvort hann sé rándýr. mbl.is/Kristjánsbakarí
mbl.is/aðsend mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert