Christina Aguilera hrekkti kleinuhringjakaupendur

Christina Aguilera kom fólki á óvænt nú á dögunum í …
Christina Aguilera kom fólki á óvænt nú á dögunum í lítilli kleinuhringjaverslun í LA. mbl.is/youtube.com

Söngdívan fagra, Christina Aguilera, mætti í litla kleinuhringjaverslun í Los Angeles þar sem viðskiptavinir vissu ekki hverju þeir áttu von á.

Popp-drottningin var á staðnum með þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel í ákveðnu verkefni sem kom gestum og gangandi heldur betur á óvart. Í sakleysi sínu var fólk að kaupa sér kleinuhringi er það heyrir lag óma í kallkerfi verslunarinnar – og ekkert venjulegt lag, því röddin og lagið var kunnuglegt en textinn var um viðskiptavinina persónulega. Það er varla hægt að lýsa þessu betur en að horfa á þetta stórskemmtilega myndband.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert