Ómótstæðilegt sumarsalat með grilluðum risarækjum

Sumarsalat með risarækjum í boði Snorra.
Sumarsalat með risarækjum í boði Snorra. Mbl.is/Snorri Guðmundsson

Létt, ferskt og ómótstæðilegt kínóasalat með grilluðum marineruðum rækjum, basilíku, mangó og lárperu. Saðsöm og holl máltíð sem gefur ekkert eftir í bragði að sögn Snorra Guðmunds hjá Mat og myndum sem á heiðurinn af þessari máltíð.

Ómótstæðilegt sumarsalat í skál (fyrir 4)

  • 600 g risarækjur
  • 20 ml tandoori masala frá Kryddhúsinu
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 5-6 langir grillpinnar
  • 250 ml kínóa
  • 200 g piccolotómatar
  • 2 stk. lárpera,
  • 1 stk. stórt mangó
  • 60 g klettasalat
  • 1 stk. rauðlaukur
  • 10 g basilíka
  • 10 g steinselja
  • 10 g kóríander
  • 1 stk. límóna
  • 2 msk. hunang
  • 60 ml ólífuolía
  • 50 g ristuð og söltuð graskersfræ

Aðferð:

  1. Leggið grillpinnana í vatn svo þeir brenni síður á grillinu.
  2. Affrystið rækjur og þerrið. Setjið í skál ásamt tandoori masala og ólífuolíu og pressið hvítlauksrif saman við. Blandið vel saman og látið marinerast í 30 mín. Saltið rækjurnar eftir smekk áður en þær eru þræddar á grillpinna.
  3. Setjið 500 ml af vatni í lítinn pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Bætið kínóa út í pottinn, lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og sjóðið kínóa undir loki í 15-18 mín. Takið af hitanum og látið standa undir loki í nokkrar mín. Færið svo í stóra skál og látið kólna.
  4. Skerið lárperu, tómata og mangó í bita. Sneiðið rauðlauk eftir smekk í strimla. Saxið kryddjurtir. Bætið út í skálina með kínóa.
  5. Rífið börk af límónu saman við hunang og 60 ml af ólífuolíu. Kreistið sirka 2 msk af límónusafa saman við hunangið og olíuna og pískið vel saman. Hrærið saman við salatið.
  6. Grillið rækjurnar við háan hita í um 2-3 mín á hvorri hlið.
  7. Bætið rækjum, graskersfræjum og klettasalati út í skálina og blandið vel saman. Smakkið til með salti og kreistið að lokum meiri límónusafa saman við eftir smekk.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert