Hversu oft áttu að þrífa klósettið

Þrif skora oft ekki hátt á vinældalistann hjá mörgum.
Þrif skora oft ekki hátt á vinældalistann hjá mörgum. mbl.is/Shutterstock

Hér er um að ræða spurningu sem hefur plagað mannkynið svo öldum skiptir enda stendur hreinlæti okkur nærri. Klósett er eitt af þessum hreinlætistækjum sem verða fyrir stöðugum árásum sýkla og því leikur okkur eðlilega forvitni á að vita hvað sérfræðingarnir hafa um málið að segja.

Að sögn hinnar virtu og ævafornu stofnunar Good housekeeping, sem stundum er kölluð mekka vel heppnaðs heimilishalds, ættir þú að þrífa það sem oftast en góð regla er að gera það á tveggja til þriggja daga fresti. Fyrir þá sem óar við tilhugsuninni að þurfa að þrífa salernið svona oft má minna á aðferðina sem við fjölluðum um í þessari frétt:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert