Nýjasti heimabarinn er æðislegur

Ný útfærsla af svokölluðum 'heimabar' frá &tradition.
Ný útfærsla af svokölluðum 'heimabar' frá &tradition. mbl.is/&tradition

Það hefur löngum þótt huggulegt að hafa svokallaðan heimabar standandi í stofunni heima - og hér er splúnkuný útgáfa af slíkum bar frá smekkfólkinu &tradition. 

Í samvinnu við Note Design Studio, kynnir &tradition fjölnota borð á hjólum sem þjónar ýmsum tilgangi, þar á meðal sem heimabar. Krómuð eða svört stálgrind með leðurklæddum handföngum og viðarbakka gefa vörunni margskonar hlutverk - þá sem hliðarborð til að stilla upp á eða sem bar ef því er að skipta. Eins má nota vagninn sem framlengingu af eldhúsinu fyrir hin ýmsu eldhúsáhöld, bækur eða leirtau. 

Note Design Studio á heiðurinn að hönnuninni.
Note Design Studio á heiðurinn að hönnuninni. mbl.is/&tradition
mbl.is/&tradition
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert