Heinz kynnir bakaðar baunir á pítsu

Bakaðar baunir frá Heinz eru nú fáanlegar á pítsu.
Bakaðar baunir frá Heinz eru nú fáanlegar á pítsu. mbl.is/Heinz_Getty

Stórtíðindi fyrir aðdáendur bakaðra bauna - því nú kynnir Heinz baunirnar sínar á pítsu, svo ekki sé meira sagt. 

Ef þú hélt að ananas á pítsu væri glæpur, hvernig hljómar þá að fá bakaðar baunir á bökuna þína? Því slíkt er nú fáanlegt í verslunum þar ytra, þar á meðal í Iceland í Bretlandi. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem Heinz kemur með slíkan glaðning á markað, því pítsurnar voru eitt sinn fáanlegar á níunda áratug og hættu í sölu árið 2003 eða fyrir rétt 19 árum síðan. Eins eru hamborgarar væntanlegir, fylltar kartöflur og eitthvað meira af baunaréttum ef marka má nýjustu fréttir frá fyrirtækinu. 

mbl.is/ElfinAinu/Reddit/Heinz
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert