Plokkfiskur, þessi gamli góði og rúgbrauð með

Gamli góði plokkfiskurinn með heimagerðu rúgbrauði og salati klikkar seint.
Gamli góði plokkfiskurinn með heimagerðu rúgbrauði og salati klikkar seint. mbl.is/Árni Sæberg

Fastur liður á matarvefnum á laugardagsmorgnum eru Húsó-uppskriftirnar sem koma úr hinu leyndardómsfulla eldhúsi í Hússtjórnarskólanum við Sólvallagötu. Skólameistarinn Marta María Arnarsdóttir flettir að þessu sinni ofan af uppskriftinni að plokkfisknum, þessum gamla góða, sem boðið hefur verið upp á íslenskum heimilum í áranna rás. Með plokkfisknum er ákaflega gott að fá heimagert rúgbrauð, eða þrumara og ferskt salat. Hér erum við komin með uppskriftina að plokkfisknum, rúgbrauðinu og salatinu sem allir í Hússtjórnarskólanum læra að gera.

Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans heldur áfram að gleðja lesendur …
Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans heldur áfram að gleðja lesendur matarvefsins með girniegum uppskriftum úr eldhúsi skólans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þetta er tilvalinn réttur til að bjóða upp á í komandi viku og gott að undirbúa sig aðeins fyrir þessa máltíð. Til að mynda þarf að eiga fisk og kartöflur í réttinn og rúgbrauðið þarf að gefa sér tíma í að baka.

Plokkfiskur – sá gamli góði

  • 450 g soðin ýsa
  • 400 g kartöflur, flysjaðar, kældar og skornar í bita
  • (Athugið að hér er vel hægt að nota afgangs fisk, t.d. sem geymdur hefur verið í frysti, og kartöflur sem áður hafa verið soðnar).
  • ½ laukur flysjaður og saxaður mjög smátt
  • 50 g smjör eða smjörlíki
  • 50 g hveiti
  • 3-4 dl vökvi (fiskisoð og mjólk)
  • Salt og pipar (og karrí ef vill)
  • Nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Laukurinn er kraumaður í smjörinu.
  2. Hveitið sett út í og bakað upp með mjólkinni.
  3. Salt og pipar (og mögulega karrí) sett út í eftir smekk.
  4. Fiskurinn og kartöflubitarnir settir út í í lokin og hrærið í með sleif.
  5. Berið fram með salati, rúgbrauði og smjöri.

Salat

  • 4-6 gulrætur
  • 1 appelsína
  • 3 msk. rúsínur

Aðferð:

  1. Rífið gulræturnar með rifjárni eða í matvinnsluvél.
  2. Skerið appelsínurnar í bita.
  3. Blandið saman í skál og berið fram með rúsínum.

Heimagert rúgbrauð

  • 2 l rúgmjöl
  • 1 l hveiti
  • 100 g sykur
  • 3 dl síróp
  • 3 msk. þurrger
  • 2 msk. salt
  • 6 dl vatn
  • 6 dl mjólk

Aðferð:

  1. Öllu hrært saman, sett í smurða dós, látið standa í 6 klukkutíma.
  2. Bakað við 100°C í 12 klukkustundir.                                                               
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert