Saðsamur og góður ofnbakaður lax

Góður ofnbakaður lax borin fram með grjónum er góð máltíð …
Góður ofnbakaður lax borin fram með grjónum er góð máltíð fyrir líkama og sál. Unsplash/Jeff Ahmadi

Eftir átveislu helgarinnar er ekkert betra en að fá góðan ofnbakaðan lax í upphafi nýrrar viku. Hér er uppskrift af saðsömum og góðum ofnbökuðum lax sem klikkar seint.

Ofnbakaður lax

Fyrir 2-3

  • 4 laxasneiðar (125 g hver)
  • 2 laukar, skornir í sneiðar
  • 1 hvítlaukur (úr körfunum), smátt skorinn
  • 1 búnt fersk steinselja, smátt skorin
  • ¼ búnt ferskt kóríander
  • 2-3 lárviðarlauf
  • 2 rauðar paprikur, skornar í sneiðar
  • Safi úr ½ sítrónu
  • 2 tsk oreganó
  • 5 dl fiskisoð
  • 1 dl þurrt hvítvín ef vill (má sleppa)
  • 1-2 tsk. ólífuolíu

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 200°C hita.
  2. Penslið eldfast mót með ólífuolíu og leggið laxastykkin ofan á.
  3. Skerið laukana og hvítlauk.
  4. Dreifið laukunum, hvítlauk, steinselju, kóríander, papriku og lárviðarlaufum yfir laxinn.
  5. Blandið saman sítrónusafa, oreganó, fisksoði og hvítvíni (ef vill) og hellið varlega yfir laxinn þannig að fyllingin haldist ofan á laxinum.
  6. Setjið fatið með laxinum inn í ofn í neðstu grindina og bakið við 200°C hita í um það bil 30 mínútur.
  7. Laxinn á að fá gullna og fallega áferð.
  8. Berið fram með hrísgrjónum og því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert