Þessi ídýfa toppar allar ídýfur, enda fékk hún nafnið milljón dollara ídýfa hjá Thelmu Þorbergsdóttur uppskriftahöfundi sem á heiðurinn af uppskriftinni. Thelma heldur úti uppskriftasíðunni Freistingar Thelmu. Ídýfan slær alltaf í gegn og er það fyrsta sem klárast á veisluborðinu. Ídýfan er fljótgerð og einstaklega góð með snakki eða kexi við hvaða tilefni sem er.
Milljón dollara ídýfa
- 250 g rjómaostur
- 1 dós sýrður rjómi 10%
- 1 pk. Kims dipmix með sýrðum rjóma og púrrulauk
- 170 g rifinn 4 osta blanda frá Gott í matinn
- ½ rauðlaukur
- 6 stk. beikonsneiðar
- Graslaukur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C, setjið bökunarpappír á bökunarplötu og eldið beikonið þar til það er orðið stökkt.
- Leyfið beikoninu að kólna.
- Setjið rjómaost, sýrðan rjóma og Kims dipmix í matvinnsluvél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Hér má einnig blanda saman við rauðlauk, beikoni og osti og láta matvinnsluvélina vinna blönduna í mjúka og slétta ídýfu.
- Fyrir þá sem vilja smá stökkt undir tönn er betra að skera rauðlauk og beikon smátt niður og blanda saman við með sleif, ásamt ostinum.
- Setjið í skál og skreytið með stökku beikoni, graslauk og osti.
- Gott er að bera fram t.d. með salti og pipar, snakki eða góðu kexi.