Klói býður upp á Kókómjólk með hvítu súkkulaði

Girnileg heita Kókómjólkin með þeyttum rjóma í boði Klóa.
Girnileg heita Kókómjólkin með þeyttum rjóma í boði Klóa. Ljósmynd/Mjólkursamsalan

Jólin koma með Klóa sem færir okkur hvít jól þetta árið en í tilefni þess að 50 ára afmælisár Kókómjólkur er senn á enda. Mjólkursamsalan ður nú í fyrsta sinn upp á sérstaka hátíðarútgáfu af Kókómjólk. Um er að ræða Kókómjólk með hvítu súkkulaði og er Klói klæddur í hvít kjólföt á umbúðunum enda heldur betur tilefni til að skella sér í sparigallann við svona merk tímamót segir í tilkynningu frá Mjólkursamsölunni.

Hentar frábærlega vel heit með þeyttum rjóma

Kókómjólk með hvítu súkkulaði er frábær ein sér, dásamleg með nýbökuðum smákökum, pottþétt með pylsunni og svo má auðvitað njóta hennar með hverju því sem hugurinn girnist. Kókómjólkin er ekki aðeins góð ísköld heldur hentar hún frábærlega í heita og góða jóladrykki og er upplagt að toppa hana með þeyttum rjóma og rifnu hvítu súkkulaði svo úr verður hátíðlegur bolli sem kemur skemmtilega á óvart,“ segir Halldóra Arnardóttir markaðs- og vöruflokkastjóri ferskvara 

„Við hlökkum til að kynna þessa spennandi vörunýjung fyrir landsmönnum í byrjun desember en hátíðarútgáfan verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma,“ segir Halldóra að lokum

Jólalegt með Klóa.
Jólalegt með Klóa. Ljósmynd/Mjólkursamsalan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert