Spaghettí carbonara er ekta fimmtudagsréttur

Klassískur og góður spaghettí carbonara réttur sem steinliggur.
Klassískur og góður spaghettí carbonara réttur sem steinliggur. Ljósmynd/Hildur Rut

Er ekki upplagt að skella í dýrindis spaghettí carbonara á fimmtudagskvöldi sem tekur enga stund að útbúa og er syndsamlega ljúffengt? Þessi uppskrift inniheldur fá en góð hráefni og kemur úr smiðju Hildar Rutar Ingimarsdóttur sem heldur úti matarbloggi á heimasíðu Trendnet.is. Þetta er klassískur réttur sem klikkar ekki. Það er svo dásamlegt að fá sér frískandu búbblur í glas og bera réttinn fram með salati og hvítlauksbrauði. Það steinliggur á þessum tíma árs þegar mikið er að gera hjá öllum og lítill tími fyrir eldamennsku.

Spaghettí carbonara

Fyrir fjóra

  • 350 g spaghetti frá De Cecco
  • 1 msk. ólífuolía
  • 270 g beikonsneiðar
  • 2 msk. smjör
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 eggjarauður
  • 2 dl rifinn parmesan ostur + meira til að toppa með
  • ½ -1 dl steinselja, smátt skorin
  • Salt og pipar
  • Pastavatn eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera beikon smátt, aðskilja eggjarauðurnar frá eggjahvítunum, rífa parmesanostinn og skerja steinseljuna.
  2. Gott að hafa allt tilbúið áður en þið sjóðið spaghettí.
  3. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkningu með smá salti í vatninu.
  4. Steikið beikon upp úr 1 msk. ólífuolíu þar til það verður stökkt.
  5. Lækkið í hitanum og bætið smjöri saman við.
  6. Hrærið saman eggjarauðum, parmesan osti, steinselju, salti og pipar í skál.
  7. Bætið pastavatni saman við til að þynna sósuna eftir smekk en passið að vatnið sé ekki bullsjóðandi (við viljum ekki að eggin eldist).
  8. Bætið spaghettísaman við beikonið á pönnunni og hrærið saman.
  9. Takið pönnuna alveg af hellunni og blandið eggjablöndunni saman við.
  10. Það er mikilvægt að hafa ekki hita undir pönnunni þannig að eggin eldist ekki.
  11. Í lokin rífið niður parmesanost og skerið steinselju smátt, dreifið yfir réttinn og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert