Veldu uppáhaldsmolana í konfektkassann þinn

Nói Síríus, í samstarfi við Hagkaup, bjóða gestum í Hagkaup …
Nói Síríus, í samstarfi við Hagkaup, bjóða gestum í Hagkaup Smáralind upp á að velja sjálfir eftirlætismolana í þar til gerða konfektkassa. Eva Laufey Kjaran og Helga Beck eru mjög spenntar fyrir þessari nýjung og ánægðar með samstarfsverkefnið. Samsett mynd

Jólin eru tími hefða og hátíðleika og Nóa Konfekt er fyrir löngu orðið ómissandi hluti af jólahefðum stórs hluta þjóðarinnar. Þá er það einnig orðin venja hjá afar mörgum að stelast í konfektkassann við hin ýmsu tækifæri, því öll eigum við okkar uppáhaldsmola. Og nú gefst fólki tækifæri á að velja eingöngu uppáhaldsmolana í konfektkassa fyrir sjálft sig eða þau sem standa hjarta þess næst. Á morgun laugardag, 2. desember næstkomandi, mun Nói Síríus, í samstarfi við Hagkaup, bjóða gestum í Hagkaup Smáralind upp á að velja sjálfir eftirlætismolana í þar til gerða konfektkassa.

Kjörið tækifæri til að fylla öskjurnar

„Við erum mjög spennt að kynna þessa nýjung fyrir okkar viðskiptavinum í samvinnu við Nóa Síríus í desember. Konfekt er órjúfanlegur hluti af aðventunni og mjög spennandi er að geta valið sinn uppáhalds mola þar sem smekkur manna er auðvitað misjafn og því kjörið tækifæri að koma og fylla öskjur af uppáhaldsmolunum. Við gátum ekki annað en sagt já við þessari skemmtilegu hugmynd frá Nóa og hlökkum til að fylgjast með hvernig móttökur súkkulaðibarinn fær hjá okkar viðskiptavinum,“ segir Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups og hlakkar til samstarfsins. 

Þakklát fyrir spila stóra rullu í hátíðarhöldunum

Helga Beck, markaðsstjóri Nóa Síríus, er bjartsýn á viðtökurnar: „Það er gaman að geta boðið upp á þessa nýjung og ég hef fulla trú á því að fólk taki því fagnandi að geta valið innihald konfektkassans algjörlega út frá eigin smekk eða fyrir sínar uppáhaldsmanneskjur,“ segir Helga og aðspurð bætir hún því við að verði móttökurnar góðar megi eflaust vænta meira af slíku á komandi árum. „Fyrst og fremst erum við þó þakklát fyrir þann heiður að spila jafn stóra rullu og raun ber vitni í hátíðarhöldum landsmanna og auðvitað er gaman að sjá hversu mörg okkar eiga sinn uppáhalds konfektmola.“

Eins og áður sagði verður hægt að kaupa sérvalið Nóa Konfekt í Hagkaup Smáralind 2. desember næstkomandi, milli klukkan 12 og 16. Hjalti Lýðsson, súkkulaðimeistari hjá Nóa Síríus, mun þar fara fyrir föngulegum hópi starfsfólks og aðstoða fólk við valið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert