Hagkaup stendur fyrir söfnun til styrktar Mæðrastyrksnefndar

Eva Laufey Kjaran markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups segir að Hagkaup vilji …
Eva Laufey Kjaran markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups segir að Hagkaup vilji leggja sitt af mörkum og styðja við söfnun Mæðrastyrksnefndar, málstaðurinn sé verðugur á þessum tímum. Samsett mynd

Mæðrastyrksnefnd eru samtök sem styðja við einstæða foreldra, öryrkja, eldri borgara og fjölskyldur með matar- og fataúthlutanir auk ýmissa styrkja sem veita efnalitlu fólki á Íslandi nauðsynlega aðstoð og úrræði.

Vilja leggja söfnuninni lið

Jólin eru hátíð barnanna og öll viljum við skapa minningar um gleðirík æskujól og notalegar stundir á þessum árstíma, það er ljóst að aukning hefur verið á umsóknum fyrir þessi jól og þörfin er því mikil. Hagkaup hefur með stolti styrkt Mæðrastyrksnefnd í áratugi og ætlar einnig að styrkja átakið með því að bjóða viðskiptavinum að leggja söfnuninni lið í verslunum Hagkaups. Verður viðskiptavinum boðið að bæta 500 krónum við innkaup sín sem renna til söfnunarinnar og mun Hagkaup bæta við þá upphæð. 

Margt smátt gerir eitt stórt

„Mæðrastyrksnefnd hefur í gegnum tíðina unnið ómetanlegt starf sem við viljum standa vörð um og bjóðum við viðskiptavinum okkar að taka þátt í að styrkja það starf með okkur. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að við viljum að sjálfsögðu öll hjálpast að fyrir jólin og hjálpa þeim sem minna mega sín. Með því að bjóða upp á það í verslunum okkar getum við gert ótrúlega hluti, margt smátt gerir eitt stórt“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert