Þorskhnakkar með graskers- og basilpestó að hætti Jönu

Þorskhnakkar með graskers- og basilpestó er kærkominn fiskréttur til að …
Þorskhnakkar með graskers- og basilpestó er kærkominn fiskréttur til að njóta í janúar. Samsett mynd

Hér er á ferðinni mjög auðveldur og bragðgóður fiskréttur, er kemur úr smiðju Kristjönu Steingrímsdóttur heilsumarkþjálfa, sem þú munt vilja gera aftur og aftur. Þetta eru þorskhnakkar bakaðir með graskers- og basilpestói sem bragðast guðdómlega vel saman. Kristjana er betur þekkt undir nafninu Jana og hægt er að fylgjast með henni og því sem hún töfrar fram reglulega á Instagram-síðunni hennar hér.

Þorskhnakkar með graskers- og basilpestó

  • 700 g ferskir þorskhnakkar
  • Graskers- og basilpestó (sjá uppskrift hér fyrir neðan)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C hita.
  2. Setjið þorskhnakkana í eldfast mót. 
  3. Dreifið hluta af graskers- og basilpestóinu yfir þorskinn.
  4. Saltið og piprið og kreistið smá af ferskri sítrónu yfir.
  5. Bakið inn í ofni í um það bil 18 mínútur.
  6. Berið fram með fersku salati, bökuðu grænmeti og jafnvel kartöflum eða hrísgrjónum og svo afganginum af pestóinu til að toppa allt saman.

Graskers- og basilpestó

  • ½ bolli graskersfræ
  • 20 g ferskt basil (1 box)
  • 10 g fersk steinselja (½ box)
  • 1 hvítlauksrif, afhýtt
  • ½ sítróna, safinn
  • Smá salt og pipar
  • 250 ml eða um 1 bolli, ólífuolía
  • 4 msk. rifinn parmesanostur (má sleppa)

Aðferð:

  1. Blandið öllu nema olíunni og parmesanostinum saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.  Hellið svo smám saman olíunni út í blönduna og blandið rólega saman. 
  2. Hrærið svo að lokum parmesanostinum út í með skeið, ef þið ætlið að nota hann, sem gerir alveg extra ljúft pestó.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert