Guðdómlega góður fiskréttur með camembert

Gratíneraður fiskur með papriku og camembert sem kemur bragðlaukunum á …
Gratíneraður fiskur með papriku og camembert sem kemur bragðlaukunum á flug. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Hér er á ferðinni guðdómlega góður fiskréttur sem minnir á brauðrétt, þennan gamla góða papriku og camembert-rétt sem hefur slegið í gegn í ófáum veislum gegnum tíðina. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Helenar Gunnarsdóttur matarbloggara sem heldur úti uppskriftasíðunni Eldhúsperlur en réttinn gerði hún fyrir uppskriftasíðuna Gott í matinn.

Gratíneraður fiskur með papriku og camembert

Fyrir 4

  • 800 g ýsa skorin í bita
  • 3 paprikur, skornar smátt, má vera minna, fer eftir smekk
  • ½ blaðlaukur, smátt skorinn
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • ½ askja smurostur með papriku
  • 1 Dala camembert, skorinn í bita
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • ½ grænmetisteningur
  • Rifinn gratínostur, góð handfylli

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C hita.
  2. Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins ef vill.
  3. Leggið í smurt eldfast mót.
  4. Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
  5. Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembert-ostinum, ásamt dijon-sinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
  6. Smakkið til með svörtum pipar.
  7. Hellið sósunni yfir fiskinn.
  8. Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og afganginum af camembert-ostinum, skornum í litla teninga.
  9. Bakið í um það bil 20 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn er orðinn gullinbrúnn.
  10. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert