Laxafléttur í sinneps- og hunangssósu sem munu slá í gegn

Þið eigið eftir að kolfalla fyrir þessum laxafléttum í sinneps- …
Þið eigið eftir að kolfalla fyrir þessum laxafléttum í sinneps- og hunangssósu. Samsett mynd

Hér erum við komin með hinn fullkomna mánudagsrétt, einstakar laxafléttur í sinneps- og hunangssósu bakaðar í bökunarpappírsbátum. Eldunaraðferðin er alveg einstök og síðan er laxinn svo hollur og góður. Þið eigið eftir að kolfalla fyrir þessum laxafléttum. Uppskriftin kemur úr smiðju Instagram-síðu Mediterranean diet plan en þar birtast margar uppskriftir að girnilegum og hollum réttum sem gaman er að prófa.

Laxafléttur í sinneps- og hunangssósu

Fyrir 2-3

  • 2 stk. fersk laxaflök (400-500 g)
  • 1/4 bolli ólífuolía
  • 2 msk. hunang
  • 1 msk. sinnep
  • 3-4 stk. pressuð hvítlauksrif
  • ½ bolli söxuð steinselja og kóríander
  • Salt, svartur pipar eftir smekk
  • 1-2 stk. sítrónur skornar í þunnar sneiddar
  • Valhnetur eftir smekk ef vill
  • Fersk steinselja, smátt söxuð, eftir smekk

Aðferð:

  1. Blandið saman í skál ólífuolíu, hunangi, sinnepi, hvítlauksrifunum, steinselju, salt, pipar og kóríander.
  2. Hitið ofninn í 180°C hita.
  3. Skerið laxaflökin í um það bil 4-5 cm bita.
  4. Skerið hvern laxabita í 3 „ræmur“
  5. Búðið til fallega fléttu úr ræmunum, sjá Instagram-myndbandið hér fyrir neðan.
  6. Setjið 2 sítrónusneiðar í miðjuna á bökunarpappírnum og toppið þær með fléttunni.
  7. Hellið maríneringunni yfir laxinn og dreifið henni vel yfir allan laxinn með pensli.
  8. Brjótið hvora hlið bökunarpappírsins að laxinum og bindið báða endana með línþræði.
  9. Endurtakið fyrir hverja  „fléttu“ og bökunarpappírsbát.
  10. Setjið bökunarpappírinn með laxinum í, á ofnskúffuna og bakið í um það bil 15-20 mínútur.
  11. Eftir bakstur stráið söxuðum valhnetum og saxaðri steinselju yfir (valfrjálst).
  12. Berið fram með til dæmis með bakaðri sætri kartöflu og fersku salat eftir smekk.


  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert