Páskabröns með beikonívafi

Fallegt brönshlaðborð sem upplagt er að bjóða upp á í …
Fallegt brönshlaðborð sem upplagt er að bjóða upp á í hádeginu. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Nú standa páskarnir sem hæst og tækifæri til að bjóða í páskabröns í hádeginu. „Það er tilvalið að gefa sér tíma til að bjóða sínu besta fólki í góðan bröns. Það er svo notalegt að sitja saman og borða góðan mat og upp úr hádegi er sniðugt að bjóða upp á bröns og sitja að snæðingi fram að kaffitíma,“ segir Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar.

Girnilegar beikon- og eggjamuffins.
Girnilegar beikon- og eggjamuffins. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind útbjó beikon- og eggjamuffins sem eru stjarnan á brönsborðinu hennar en síðan er svo margt einfalt sem hægt er að útbúa svo það fylgja nokkrar góðar hugmyndir frá Berglindi. Þessi bröns á líka vel við á sumardeginum fyrsta eða hvenær sem ykkur langar að gera vel við ykkar fólk.

Bröns heima í stofu

Fyrir 6 manns

  • 6-10 stk. beikon- og eggjamuffins (sjá uppskrift að neðan)
  • 2 pk. Ali beikon
  • 6 stk. croissant
  • 1 pk. silkiskorin skinka frá Ali
  • 6 sneiðar gouda ostur
  • Grísk jógúrtskál (grísk jógúrt að eigin vali, smá hlynsíróp, músli, kókosflögur, jarðarber, smá suðusúkkulaði)
  • Ávextir í skál (melóna, kiwi, jarðarber, bláber, appelsína)

Aðferð:

  1. Steikið beikonið sem ekki á að nota í beikon- og eggjamuffins þar til það er stökkt.
  2. Útbúið beikon- og eggjamuffins.
  3. Setjið skinku og ost á croissant.
  4. Raðið saman í gríska jógúrtskál.
  5. Skerið niður ávexti.

Beikon- og eggjamuffins

  • 6-10 Ali beikonsneiðar
  • 6-10 egg
  • Matarolíusprey
  • Salt, pipar, chilliflögur eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Leggið beikonsneiðarnar á eldhúspappír á disk og setjið tvær arkir af pappír ofan á.
  3. Setjið í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 2 ½ mínútu og fjarlægið þá pappírinn.
  4. Spreyið muffinsform úr áli að innan með matarolíuspreyi, setjið eina beikonsneið í hring í hvert hólf og brjótið eggið síðan í þá holu. Beikonið á að mynda nokkurs konar vegg í kringum eggið.
  5. Bakið í ofninum í 12-15 mínútur eftir því hversu vel þið viljið hafa eggið steikt.
  6. Losið með beittum hníf allan hringinn og lyftið síðan upp úr forminu, kryddið með salti, pipar og smá chilliflögum.
  7. Berið fram með öllum hinum kræsingunum og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert