Aukin umsvif skipulagðra erlendra glæpahópa

mbl.is/Skapti

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, lagði fram opinbera útgáfu mats embættis ríkislögreglustjóra frá því í júní 2008 á hættu af hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Fram kemur í skýrslunni að greiningardeild ríkislögreglustjóra hafi metið hættu á hryðjuverkum lága hér á landi í byrjun júní 2008. Hins vegar fari mikið fyrir auknum umsvifum skipulagðra erlendra glæpahópa á Íslandi. Þá eru íslenskir afbrotamenn einnig stórtækir í skipulegum afbrotum.

Í skýrslunni kemur m.a. fram að við hættumat vegna hugsanlegra aðgerða hryðjuverkamanna á Íslandi beri að hafa í huga, að lögregla á Íslandi búi ekki yfir forvirkum rannsóknarheimildum innan þess málaflokks og megi því ekki safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila liggi ekki fyrir rökstuddur grunur um tiltekið afbrot.

Möguleikar lögreglunnar hér til að fyrirbyggja hryðjuverk séu því því ekki þeir sömu og annars staðar á Norðurlöndunum. Þessu fylgi einnig að íslensk lögregla hafi mun takmarkaðri upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega einstaklinga, sem kunni að fremja hryðjuverk

Matið er hið fyrsta sinnar tegundar sem tekið er saman hér á landi en greiningardeild ríkislögreglustjóra á lögum samkvæmt að leggja mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi..

Við gerð matsins voru einkum nýttar skýrslur úr gagnabönkum lögreglu á Íslandi og upplýsingar, sem greiningardeild hefur aflað. Þá var leitað eftir upplýsingum frá erlendum samstarfsaðilum greiningardeildar og sérfræðinga innan lögreglu auk þess sem nýttar voru opnar heimildir. Einnig var stuðst var við skilgreiningar og aðferðafræði Evrópulögreglunnar, Europol.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert