Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
3. október 2022
Fjölmiðlahjónin og fjallageiturnar Elín Sveinsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson gengu á hæsta fjall Afríku í september. Fjallið okkar eða Kilimanjaro er stórt verkefni og á tindi þess er súrefnismettun einungis fimmtíu prósent af því sem við eigum að venjast. Öndun er áskorun. Í Dagmálaþætti dagsins segja þau hjónin ferðasögu sína og deila með okkur upplifun sem er engu lík. Bæði gerðu þau afdrifarík mistök á toppi fjallsins, við aðstæður sem flestum eru framandi. Það er ekki áhlaupaverk að klífa þetta tæplega sex þúsund metra háa fjall. Hver dagur bauð upp á ný verkefni og þau voru margvísleg. Þúsundir hoppandi klóakmaura á hvítu postulíni er ekki fyrir alla, svo eitthvað sé nefnt. Simmi og Ella segja skemmtilega ferðasögu miðaldra fjallagarpa í leit að ævintýrum í fjarlægri heimsálfu.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska