Blómagarður í Baldursheimi

Margrét Þóra Þórsdóttir

Blómagarður í Baldursheimi

Kaupa Í körfu

BLÓMAGARÐUR við Baldursheim í Arnarneshreppi dró að sér fjölda gesta, en hjónin Hjördís G. Haraldsdóttir og Þorlákur Aðalsteinsson, ábúendur þar, sýndu hann um liðna helgi, á Sveitasælu sem haldin var í hreppnum. "Það komu margir að skoða, ég vissi nú ekki fyrirfram hvort nokkur kæmi, en þetta var mjög skemmtilegt." "Við hófum búskap í Baldursheimi árið 1971," segir Hjördís, en Þorlákur er fæddur og uppalinn þar. Þau hafa verið með blandaðan búskap á jörðinni, en nú nýlega seldu þau kýr og kvóta, sem enn eru þó á staðnum. "Við fjölgum eitthvað við okkur kindum í staðinn," segir Hjördís. MYNDATEXTI: Háfjallajurt Þessi jurt á ættir sínar að rekja til Himalayafjalla og prýðir garðinn í Baldursheimi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar