Tónlistarhús

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tónlistarhús

Kaupa Í körfu

FRAMKVÆMDIR eru í fullum gangi við nýtt ráðstefnu- og tónlistarhús í vesturhluta Reykjavíkurhafnar og er byrjað á að steypa upp húsið. Byggingin er á áætlun en gert er ráð fyrir að húsið verði formlega vígt og tilbúið til rekstrar eftir rétt tvö ár eða í desembermánuði árið 2009 og að svæðið verði að verulegu leyti tilbúið á vormánuðum árið 2010. Um gríðarlega miklar byggingarframkvæmdir er að ræða, sem sést best á því að bera húsgrunninn saman við seðlabankahúsið til vinstri á myndinni. Auk ráðstefnu- og tónlistarhússins verður einnig byggt hótel, banki, skrifstofur og verslanir á svæðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar