Stórbruni í Stóra-Árskógi

Skapti Hallgrímsson

Stórbruni í Stóra-Árskógi

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er of snemmt að segja til um það hvort ég byggi þetta upp aftur. Ég er búinn að fjárfesta gríðarlega og skulda mikið; á að greiða afborganir í hverjum mánuði en nú verður engin innkoma, þannig að það gæti orðið mjög erfitt að fara af stað aftur.“ Svo mælti Guðmundur Geir Jónsson, hálffertugur bóndi á Stærra-Árskógi í Dalvíkurbyggð í samtali við Morgunblaðið í gær, en bróðurpartur bústofns hans, hátt í 200 nautgripir, drapst í eldsvoða á laugardagskvöldið. Fjós og hlaða á bænum eru gjörónýt. „Þetta er það versta sem bóndi getur lent í, fyrir utan mannskaða; að sjá gripina sína brenna inni,“ sagði Guðmundur

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar