UNAK

Skapti Hallgrímsson

UNAK

Kaupa Í körfu

Þrír meistaranemar í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri hlutu í síðustu viku styrk úr sjóði sem Arngrímur Jóhannsson flugstjóri kom á fót til að styðja við bakið á ungu fólki sem tekur þátt í því brautryðjendastarfi sem námið er. Hver nemandi fyrir sig hlaut 900 þúsund krónur til eigin framfærslu þetta skólaár. Nemendurnir þrír eru Alena Ingvarsdóttir, Harry Borlase og Yichao Chen. Meistarnám í heimskautarétti hófst í lok ágúst og er fyrsta námsbraut sinnar tegundar í heiminum. Kennt er á tveimur brautum. Nemendur sem lokið hafa BA eða ML í lögfræði geta lokið LLM gráðu á einu ári en nemendur með BA eða BS geta lokið MA í heimskautarétti á tveimur árum MYNDATEXTI: Styrkur Við Íslandsklukkuna eftir að styrknum úr sjóði Arngríms var úthlutað á dögunum. Frá vinstri: Arngrímur Jóhannsson, Alena Ingvarsdóttir, Harry Borlase, Yichao Chen og Þorsteinn Gunnarsson rektor.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar