Enskuskóli Erlu Ara leggur metnað sinn í að færa landsmönnum þá þekkingu sem þeir vilja öðlast á enskri tungu. Júlía Margrét Guðbjargardóttir er gift fjögurra barna móðir með verslunarpróf sem sótti enskunámskeið í skólanum og fór í tveggja vikna námskeið í Kent School of English á Englandi á vegum Enskuskóla Erlu.
„Haustið 2017 ákvað ég að skrá mig í enskunám sem býður upp á frábæra kennslu fyrir 35 ára og eldri. Erla kenndi mér þegar ég var unglingur og vissi ég því að hverju ég gekk. Skólinn býður líka upp á tveggja vikna námsferðir til Englands, bæði fyrir unglinga og fullorðna sem að sjálfsögðu eru ekki í sama prógrammi. Í fyrra gáfum við syni okkar í fermingargjöf námsferð til Englands á vegum Erlu og var hann alsæll með ferðina. Allt stóðst og skipulagningin frábær.
Í ár lét ég svo gamlan draum rætast og fór sjálf 52 ára gömul. Ferðin var hreint út sagt frábær og framar mínum björtustu vonum í alla staði. Skólinn frábær, enska mamman dásamleg og Erla algjörlega toppkona í skipulagningu og skemmtidagskrá. Ekki má gleyma að hópurinn sem samanstóð af 35 konum var algjörlega upp á tíu. Dásamlegar konur á öllum aldri.“
Á næsta ári fermist fjórða barn þeirra hjóna og mun það fá námsferð með Erlu til Englands í fermingargjöf.
Júlía Margrét segir að ferðin hafi aukið sjálfstraust hennar og þekkingu. Að andrúmsloftið í tímum hafi verið afslappað og skemmtilegt sem gerir það að verkum að auðveldara er að læra.
„Að mínu mati geta allir lært eitthvað nýtt, sama á hvaða aldri við erum.“