Jennifer Aniston var sagt að grenna sig um rúmlega 13 kíló áður en hún fékk hlutverk sitt í Friends. Meðal annars er fjallað um leyndarmálin á bak við Friends-þættina í bókinni Generation Friends: An Inside Look at the Show That Defined a Television Era að því fram kemur á vef People.
Aniston var að sjálfsögðu ekki feit áður en hún tók að sér hlutverk í þáttunum en svona eftir á að hyggja þá mátti hún alveg borða hollari mat.
„Hún þurfti að losa sig við 13 kíló ef hún ætlaði að vera áfram í Hollywood,“ skrifaði höfundur bókarinnar og sagði það hafa verið erfitt að vera leikkona í Los Angeles og bara erfitt að vera kona þar.
Þetta er ekki fyrsta skipti sem sögur af holdafari Aniston heyrast. Leikkonan hefur sjálf talað um að umboðsmaðurinn hennar hafi gert henni greiða þegar hann sagði henni að hún þyrfti að grenna sig en það kom henni fyrst á óvart.
Aniston hefur greint frá því að hún hafi áður fyrr drukkið mikið af mjólkurhristingi og borðað franskar kartöflur með sósu á þessum tíma. Einnig borðaði hún mikið af majónesi sem smurt var ofan á hvítt brauð.
Aniston grenntist um þessi rúmlega tíu kíló og landaði hlutverki Rachel Green í Vinum fyrir 25 árum.