Sumarbústaðastemning í miðbænum

Ljósmyndararnir Eydís María Ólafsdóttir og Bejamin Hardman eiga undurfagurt heimili …
Ljósmyndararnir Eydís María Ólafsdóttir og Bejamin Hardman eiga undurfagurt heimili í hjarta Reykjavíkur. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

Ljósmyndararnir Eydís María Ólafsdóttir og Benjamin Hardman festu kaup á sinni fyrstu eign í janúar 2021. Eftir að hafa leitað um allt land fundu þau draumaíbúðina á besta stað, í miðbæ Reykjavíkur. Parið hefur innréttað íbúðina á afar fallegan máta og því óhætt að segja að Eydís og Benjamin hafi einstakt auga fyrir fleiru en ljósmyndun, en heimili þeirra endurspeglar þá hugmyndafræði að mikil fegurð búi í einfaldleikanum. 

Eydís og Benjamin höfðu lengi verið að leita að rétta húsnæðinu og voru á tímabili tilbúin að flytja alla leið á Höfn í Hornafirði ef þau fyndu rétta húsið þar. „Allt í einu kom þessi íbúð upp sem við búum í núna, en um leið og við gengum upp á efri hæðina fundum við strax þá tilfinningu að þetta væri rétta íbúðin fyrir okkur,“ segir Eydís. 

Það er augljóst að Eydís og Benjamin hafi vandað valið …
Það er augljóst að Eydís og Benjamin hafi vandað valið á húsgögnunum, en hér má sjá fallegt borðstofuborð og sófa frá Tekk Habitat ásamt ljósi frá danska merkinu Vipp. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

Íbúðin er 90 fermetrar að stærð og á tveimur hæðum. Eydís og Benjamin hafa skapað afslappað andrúmsloft á heimili sínu, en þau sóttu aðallega innblástur í danska og japanska hönnun þar sem einfaldleikinn er í forgrunni. Að innan er íbúðin klædd með fallegum viði sem gefur rýminu mikinn karakter, en þegar þau Eydís og Benjamin gengu fyrst inn í íbúðina lýstu þau upplifuninni sem „sumarbústaðastemningu í miðbæ Reykjavíkur.“

„Þrátt fyrir að þetta sé lítið rými þá hentar þetta okkur svo vel. Það sem heillaði okkur mest var nýtingin á rýminu og hvernig eldhúsið og stofan tengjast. Svo voru það auðvitað viðarveggirnir,“ segir Eydís. 

Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir
Í eldhúsinu er falleg svört innrétting sem tónar fallega með …
Í eldhúsinu er falleg svört innrétting sem tónar fallega með viðarveggjum íbúðarinnar. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

Tímafrekt að finna rétta parketið

Þegar Eydís og Benjamin fluttu inn var ennþá steypa á gólfum og bæði stiginn og eldhúsinnréttingin enn ókláruð. „Við bjuggum þannig í þrjá mánuði en það fólst mikil vinna í því að finna rétta parketið sem passaði við viðarveggina. Við vildum gólfefni sem væri ekki of yfirþyrmandi svo að veggirnir fengju að njóta sín,“ útskýrir Eydís. 

Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir
Val á parketi tók sinn tíma, enda mikilvægt að liturinn …
Val á parketi tók sinn tíma, enda mikilvægt að liturinn passi við veggina. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

„Það var ekki síður vinna að fá réttan aðila til að parketleggja stigann eins og við vildum hafa hann, en þau hjá Fasteignafegrun hjálpuðu okkur að láta þessa sýn okkar verða að veruleika. Annars gekk allt mjög vel í framkvæmdunum, við erum með mjög svipaðan stíl og áttum því auðvelt með að taka allar ákvarðanir,“ segir Eydís. 

Hér má sjá stigann áður en hann var parketlagður.
Hér má sjá stigann áður en hann var parketlagður. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir
Eins og sést var vandað til verka við parketlögn stigans …
Eins og sést var vandað til verka við parketlögn stigans sem er einkar glæsilegur. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

Sóttu innblástur til erlendra kaffihúsa

Í íbúðinni er eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi ásamt opnu rými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Á efri hæðinni er svo útgengt á stórt útisvæði. Uppáhaldsrými Eydísar og Benjamins er á efri hæðinni, en það er í sérstöku uppáhaldi hjá þeim að sitja í sófanum og njóta morgunbollans. 

Fallegi N701 sófinn prýðir uppáhaldsrýmið, en hann var hannaður af …
Fallegi N701 sófinn prýðir uppáhaldsrýmið, en hann var hannaður af Jacques Deneef. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

„Við vinnum mikið heima þannig að þegar við vorum að innrétta íbúðina vildum við gera efri hæðina að rými þar sem væri friðsælt að vera. Að sitja í sófanum með kaffibollann á morgnanna með góða tónlist veitir okkur svo mikla hugarró enda er best að byrja daginn þar,“ segir Eydís. 

Eydís og Benjamin sóttu innblástur til erlendra kaffihúsa þegar kom að því að innrétta íbúðina. „Fyrir nokkrum árum fórum við á kaffihús sem heitir Omotesando Koffee í Bretlandi og hönnunin þar inni var einmitt það sem við sáum fyrir okkur að framtíðar heimili okkar myndi líta út. Þetta var mjög opið rými með gólfsíðum gluggum, eikarvið og mjög mínimalískt,“ segir Eydís. 

Það fóru miklar pælingar í útfærslu stigans sem skilaði sér …
Það fóru miklar pælingar í útfærslu stigans sem skilaði sér í afar fallegri útkomu. Ljósmynd/Eydís María Ólafsdóttir

Japönsk og dönsk hönnun heillandi

„Annars fáum við oft mikinn innblástur frá danskri og japanskri hönnun og höfum til dæmis verslað mikið frá danska hönnunarmerkinu Vipp sem vinur okkar og innanhúshönnuðurinn Anthony Bacigalupo kynnti fyrir okkur þegar við fluttum inn. Öll ljósin á efri hæðinni eru til dæmis frá þeim,“ bætir Eydís við. 

Aðspurð segist Eydís einnig vera með margt frá merkjunum Kinto, Ferm Living og Hay í íbúðinni. Eldhúsborðið, sófinn og sjónvarpsskenkurinn eru frá Tekk Habitat. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál