c

Pistlar:

12. maí 2014 kl. 22:43

Sif Jóhannsdóttir (gullrikid.blog.is)

Listinn góði

Þegar ég fæ brottfarar depurð eða departure depression eins og ég kalla það (líðan manns eftir að góðir gestir sem hafa verið í lengri heimsóknum fara aftur til síns heima) finnst mér gott að gera lista yfir það afhverju það er betra að búa hér í Lala landi en heima á Fróni. Listinn er síbreytilegur en hér er sá nýjasti:

1. Sigmundur Davíð býr ekki hér. Þetta er ástæða númer eitt. Fyrir alla aðdáendur Sigmundar segi ég bara verði ykkur þá að því. Ég hinsvegar ætla bara að njóta þess að vera víðsfjarri meðan hann leikur lausum hala þarna á Fróni.

2. Versla í  matinn lætur mér líða vel en ekki eins og einhver hafi rænt mig og lamið í þokkabót. Ég græt pínulítið inni í mér þegar ég hugsa um verslunarferðirnar í Bónus miðað við verslunarferðirnar hér. Ég var t.d. að koma úr Trader Joe sem er algjörlega samsvarandi Bónus. Þar fann ég 183 ástæður fyrir því afhverju það er betra að búa hér en á Íslandi. Heildarinnkaup voru 183 dollarar sumsé fyrir 6 drekkhlaðna poka. Sambærileg innkaup á Íslandi kostuðu mig um 40 þúsund krónur en hráefnið helmingi verra. Í pokunum voru t.d. 2 kippur af bjór, búnt af túlípönum, risa flaska af eðal ólífuolíu, kíló af jarðaberjum, ferskjur og plómur, grænmeti af öllum sortum og allskonar annað fínerí.

photo_1234562.jpg

3. Nautakjötið.Það er himneskt. Sérstaklega ef ég splæsi í dýrustu týpuna. Það er sama hversu mikið ég borga fyrir nautakjöt á Íslandi, það kemst ekki með tærnar þar sem þetta nautakjöt hefur hælana.

4. Internetverslun án hafta og aukagjalda, sama hvaðan úr heiminum er verslað.

5. Veðrið

6. Wholefoods. Fyrir þá sem þekkja þær verslanir þarf lítið að útskýra afhverju. Fyrir ykkur sem ekki þekkið Wholefoods þá kemst Lifandi markaður næst þessu á Íslandi en úrvalið er umtalsvert meira eins og gefur að skilja

7. Fjölbreytni. Hér eru allra þjóða kvikyndi. LA er algjör suðupottur og ég fíla það. Það er svo skemmtilegt að skoða mannlífið og ef mann langar til að sjá meira af hipsterum þá hendir maður sér bara í ákveðin hipstera hverfi hérna nú eða ef mann langar að sjá snobbarana þá í eitthvað annað hverfi. Hér er allt af öllu!

8. Hollywood! Hér get ég séð Hollywood stjörnur í eigin persónu ef mig langar til þess eða svo gott sem. Ef maður veit hvar á að leita þá er hægt að finna þær allavegana!

9. Veðrmy2_1234571.jpgið. Ég veit ég var búin  að skrifa þá ástæðu áður en það er bara svo gott veður hérna að það á skilið að vera skrifað niður tvisvar. Það er eitthvað við það að geta farið að sofa á hverju kvöldi vitandi það að næsti dagur færir manni sól, eða allavegana 350 daga ársins.

10.  Þjónustan. Bandaríkjamenn þrífast á þjórfé og stundum getur það verið þreytand. En maður fær hvergi betri þjónustu. Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér hérna og það er hlúð að manni eins og viðkvæmu blómi. Um daginn skemmdist matreiðslurjóminn minn fyrir skiladag. Ég var búin að skvera honum yfir réttinn sem ég var að elda áður en ég uppgötvaði það og eyðilagði þar með matinn. Ég labbaði út í búð og kvartaði og labbaði út aftur með 30 dollara gjafabréf. Tók mig samtals 5 mínútur og ekkert vesen í kringum það.

Ekki misskilja mig. Ég sakna Íslands oft og gæti vel skrifað lista af 10 hlutum yfir afhverju það er betra að búa á Íslandi en ég bý hér, ekki á Íslandi. Og þá er mikilvægt að tíunda fyrir sjálfum sér kosti þess að vera þar sem maður er. 

Sif Jóhannsdóttir

Sif Jóhannsdóttir

Sif Jóhannsdóttir er 34 ára húsfrú í Los Angeles þótt hún verði alltaf Vesturbæingur í hjarta sínu. Í fyrra lífi starfaði hún hjá Forlaginu sem verkefnastjóri útgáfu enda eru bækur hennar helsta áhugamál. Nú sinnir hún dætrunum tveimur og heimilinu í fullu starfi í sól og sumaryl. Nýja starfið er ansi krefjandi sem veldur því að hún lætur sig stöðugt dreyma um starfsframa, nám eða hvað sem er utan heimilis. Hún byrjaði að blogga í aðdraganda flutninganna til að halda utan um þær breytingar sem voru að eiga sér stað í lífi hennar.

Meira