c

Pistlar:

12. september 2016 kl. 10:42

Júlía heilsumarkþjálfi (juliamagnusdottir.blog.is)

Bókin mín er loksins komin og því ber að fagna!

DSC_9593

Gettu hvað? Í þessum töluðu orðum er uppskriftabókin mín Lifðu til fulls, yfir 100 ómótstæðilegar og einfaldar uppskriftir fyrir orku og ljóma á leið í bókabúðir um land allt! Ég get ekki lýst þessari tilfinningu en hér má sjá myndband sem sýnir viðbrögðin þegar ég sá fyrsta eintakið af bókinni minni,

Ekkert myndi gleðja mig frekar en að þú  myndir koma og fagna útgáfunni með mér. Ég vil því bjóða þér að koma í útgáfuboðið mitt . Það verður haldið í Græna herberginu, Lækjargötu 6, 15. September milli 17 og 19. Það verða  léttar veitingar upp úr bókinni í boði og að sjálfsögðu verður bókin til sölu í boðinu. Sjáðu viðburðin á facebook hér!

Uppskriftir bókarinnar eru fljótlegar og einfaldar og hæfa annríkum lífstíll vel. Maturinn er hreint og plöntumiðað sem og laust við sykur og glútein. Þær henta því þeim sem eru vegan en einnig er sérkafli með kjöt- og fiskréttum.  Í bókinni finnnur þú allt frá morgunverði til kvöldmatar ásamt ómissandi kafla með sektarlausum sætindum, fræðlu um nátturulegu sætuefni, matarveislu og próteinríkum millibita.

Þessi bók er afrakstur allrar þeirrar vinnu sem ég hef unnið undanfarin ár og hófst með því að ég greindist ung með allskonar kvilla sem ég segi nánar frá í bókinni. Þar hófst heilsuferðalagið mitt sem enn stendur yfir og árangurinn sem ég náði með mataræði var ótrúlegur sem og þeirra sem hafa verið hjá mér í þjálfun síðustu ár. Ég get ekki beðið eftir að þú hefjir þitt heilsuferðalag og vona að bókin færi þér ljóma með hverjum bita.

Bókin ætti að vera komin í bókaverslanir um land allt í dag.

julia-ebook-e-book

Sjáumst í útgáfuboðinu!

Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi

Júlía heilsumarkþjálfi

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsumarkþjálfi, vottaður markþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi. Stofnandi Lifðu Til Fulls , einnar fremstu heilsumarkþjálfunar hérlendis, www.lifdutilfulls.is sem hjálpar konum og hjónum að léttast, auka orku og fyllast ungleika.

Meira