c

Pistlar:

28. október 2022 kl. 9:43

Júlía heilsumarkþjálfi (juliamagnusdottir.blog.is)

Lifðu til fulls fagnar 10 ára afmæli!

Núna í október 2022 var 10 ára afmæli Lifðu til fulls.

Litla fyrirtækið sem ég stofnaði fyrir 10 árum hefur aldeilis blómstrað og langar mig því að deila með þér í sögu okkar og hvernig fyrirtækið hefur þróast.

Ég upplifi gífurlegt þakklæti þegar ég hugsa um þann áratug sem við hjá Lifðu til fulls höfum hjálpað þúsundum kvenna að orkumeira lífi, sátt í eigin skinni og líkamlega vellíðan.

Þið sem þekkið mig vel vita að ég stofnaði Lifðu til fulls út frá minni eigin vegðferð að bættri heilsu. 

Frá því að ég var ung glímdi ég við iðruólgu (IBS) en það var þó ekki fyrr en um 2011 sem ég fór að taka eftir fleiri heilsubrestum t.d. liðverkjum, mikilli sykurlöngun, þyngdaraukningu og hormónaójafnvægi.

Í framhaldi kynntist ég heilsumarkþjálfunar-skólanum IIN en það nám sýndi mér þann sanna mátt sem rétt fæða getur haft á líkamann. Ég lærði að hver og einn líkami er einstakur og mikilvægt er að detta ekki í “one-size fits all” hugarfarið.

Ég prófaði allt sem ég lærði á mig sjálfa og fór fljótlega að sjá árangur, allir fyrrnefndu kvillar minnkuðu til muna eða jafnvel hurfu alveg. Og með breyttum lífsstíl hefur mér tekist að halda þeim í burtu síðan!

Það var tekið eftir þeirri vellíðan sem ég var að upplifa því ég hreinlega geilsaði öll og áður en ég vissi var ég komin með minn fyrsta kúnna í heilsumarkþjálfun, kona sem ég þekki ágætlega og spurði hvort ég gæti hjálpað henni.Screenshot 2022-10-28 at 09.15.56

Ég tók því allsfagnandi enda ekkert sem ég vildi meira en að fleiri upplifðu þá hreinu vellíðan sem fylgir réttu mataræði og heilbrigðum lífsstíl, líkt og ég var að upplifa. Lífstíll sem krafðist ekki megrunar eða matarkúra og innihélt engin boð eða bönn. Gildi sem við hjá Lifðu til Fulls stöndum enn fyrir í dag. 

Stuttu eftir útskrift stofnaði ég Lifðu til Fulls, þann 20.október 2012.

Ástríðan fyrir heilbrigðum lífsstíl, matargerð og heilsu var í hámarki og er það reyndar enn. Ég byrjaði með eingöngu einkakúnna en sú reynsla að vinna náið með konum gaf mér þekkinguna sem ég þurfti til þess að setja mig í þeirra spor og hjálpa þeim með sín vandamál.

Árin 2013-2014 menntaði ég mig sem markþjálfi hjá Transformational Coaching Method því mig langaði að hjálpa mínum konum að breyta hugarfarinu og þannig skapa varanlegar breytingar. Síðan þá hef ég alltaf unnið á hugarfarsbreytingum samhliða mataræði, bætiefnum og lífsstíl.

Næsta skref var að þróa hópnámskeið frá netinu, bæði 5 daga matarhreinsun og dýpri hópþjálfun sem í dag ber nafnið Nýtt líf og Ný þú, 4 mánaða þjálfun þar sem kafað er djúpt í einstaklinginn og unnið að varanlegum lífsstíl, mótað út frá þörfum hvers og eins. 

Ég vildi leyfa öðrum að upplifa frelsið og þá vellíðan sem fylgdi sykurlausum lífsstílScreenshot 2022-10-28 at 09.20.25

5000 einstaklingar skráðu sig í fyrstu sykurlausu áskorunina sem ég hélt. Slíka áskorun endurtókum við 1-2x á ári í þónokkurn tíma og þáttakendur urðu alltaf fleiri og fleiri, síðasta áskorun var með yfir 20.000 manns skráða til leiks.

Árið 2016 kom út fyrsta og eina uppskriftabókin mín, sem inniheldur yfir 100 uppskriftir að bragðgóðum og hollum mat.

Bókin var unnin út frá öllum þeim uppskriftum sem ég þróaði með mér þegar ég var að fóta mín fyrstu fótspor.

Markmiðið var að uppskriftirnar væru einfaldar, fljótlegar og auðvitað bragðgóðar.

Allar eru þær án hvíts sykurs, glúteins og mjólkurafurða og hentar bókin fyrir þá sem eru vegan en það er sérkafli með “streetfood” sem inniheldur kjöt og fisk í bókinni. Bókin hefur farið tvisvar í prent og nú eru einungis nokkur eintök eftir. Hægt er að fá áritað eintak á afmælistilboðinu með því að smella hér.

Screenshot 2022-10-28 at 09.31.35Ég heillaðist mikið af hráfæði og fór ég í hráfæðis-kokkanám í Kaliforníu á árunum 2016 og 2018. 

Það má segja að eftirréttir í formi hráfæðis , eða “sektarlaus sætindi” séu mitt sérfag í dag.

Árið 2019 varð til glænýtt námskeið, Frískari og orkumeiri á 30 dögum, sem hefur hjálpað þúsundum kvenna undan sykurlöngun og fyllt líkama þeirra að allsherjar vellíðan, orku og léttleika. Í námskeiðinu má finna ýmis kennsluefni, matreiðslumyndbönd, skipulag og matseðla, innkaupalista.

Ég gæti ekki gert þetta ein og óstudd og á þessum 10 árum hafa mismunandi aðilar stutt við Lifðu til fulls og er ég þakklát fyrir þá alla.

Í dag hjá Lifðu til fulls er ýmist heilsumarkþjálfi og teymi af fólki sem öll vinna að því að gera ykkar líf auðveldara og ánægjulegra. Við þökkum þér fyrir samfylgdnina síðustu ár en þið eruð sko okkar drifkraftur. 

Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi

p.s. Í tilefni 10 ára afmælis langar mig að bjóða þér uppskriftabók Lifðu til Fulls áritaða af mér á sérstöku afmælistilboði Hægt er að tryggja sér eintak hér(takmörkuð eintök fáanleg)

Júlía heilsumarkþjálfi

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsumarkþjálfi, vottaður markþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi. Stofnandi Lifðu Til Fulls , einnar fremstu heilsumarkþjálfunar hérlendis, www.lifdutilfulls.is sem hjálpar konum og hjónum að léttast, auka orku og fyllast ungleika.

Meira