Fimm leiðir til að nota púða í kynlífinu

Pexels/ Ketut Subiyanto

Ýmsar leiðir eru til þess að auka ánægju í kynlífi og er notkun á koddum og púðum aðeins ein leið í hafsjó góðra ráða. Hægt er að kaupa ýmsa púða sem eru sérstaklega ætlaðir til notkunar í kynlífi. Ef slíkir púðar eru ekki við höndina er hægt að nota hvaða kodda eða púða sem er í verkið.

Vefsíðan Poosh fékk kynlífsfræðinginn og jógakennarann Joy Berkheimer til koma með fimm skotheld ráð til að nota kodda til að auka ánægjuna í kynlífi.

Fimm leiðir til að nota kodda í kynlífi

  • Undir mjaðmirnar í trúboðastellingu: Réttir þetta úr leggöngunum og veitir makanum betra aðgengi að G-blettinum.
  • Undir hnén þegar annar aðilinn er ofan á: Þetta getur dregið úr sveigjunni á fótleggjum þess sem er ofan á, dregið úr álagi á liði og aukið þol og úthald.
  • Undir maga þegar farið er inn aftan frá: Þetta getur verið gott fyrir þau sem vilja geta komið kviðnum þægilega fyrir eða þau sem vilja ná að beygja sig dýpra fram. Gerir þetta makanum kleift að ná dýpra inn.
  • Undir mjaðmir við munnmök: Með því að lyfta mjöðmunum upp við munnmök hallast bæði mjaðmagrindin og snípurinn betur í átt að þeim sem veitir munnmökin. 
  • Undir mjóbakið í trúðboðastellingunni: Með þessu ná báðir aðilar betri takti við hreyfingar hins, ásamt því að sá sem er ofan á nær dýpra inn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál