„Menn selja aðgang að konum og stelpum fyrir efni“

Íslensk kona segir frá lífi sínu og vændi á Íslandi.
Íslensk kona segir frá lífi sínu og vændi á Íslandi. Ljósmynd/Sterk saman

32 ára kona er til viðtals í hlaðvarpsþætti Tinnu Barkardóttur, Sterk saman. Hún kýs að koma ekki fram undir nafni en í þættinum segir hún frá reynslu sinni sem vændiskona.

„Ég gerði mér enga grein fyrir því hversu stór þessi geiri er fyrr en ég varð hluti af þessu,“ segir konan en áður en hún hóf sjálf að selja aðgang að líkama sínum fylgdist hún með kynsystrum sínum og þeirra störfum.

„Ég var í neyslu og það kom sá dagur að ég átti ekki fyrir skammtinum mínum svo ég gúgglaði smá og fann heimasíður sem ég setti inn upplýsingar um mig og myndir.“

Hún segir að íslenskar stelpur séu eftirsóttar á síðum sem þessum en á þeim eru gefnar upp allskonar upplýsingar. 

„Það er sér markaður fyrir íslenskar stelpur, Norðurljósastelpurnar, hárlitur, þyngd, brjóstastærð og allskonar.“

Hún fékk strax fyrsta kúnnann, giftan mann sem hafði sér aðstöðu í atvinnuhúsnæði með rúmi.

„Hann afsakaði sig með því að konan hans vildi ekki stunda kynlíf eftir að barnið fæddist og þess vegna mætti hann þetta.“

Það er ákveðinn misskilningur að einungis skítugir eða subbulegir einstaklingar stundi vændissölu og kaup. Hún segir að háttsettir menn í okkar samfélagi séu vændiskaupendur og nýti sér neyð veikra stelpna sem eru með fíknisjúkdóma. 

„Það er ein birtingarmyndin, þessir menn eru í sjónvarpinu og ég veit þetta um þá. Mig langar auðvitað að standa uppi á húsþökum og öskra þetta og að allir viti þetta um þá en ég má það ekki, ég verð þá kærð.“

Konan segir frá því að það hafi ýmislegt gerst í lífi hennar sem hefði líklega ekki gerst ef hún hefði ekki stundað vændi. Hún hefur nýtt sér þjónustu Stigamóta en játar að margt sé að brjótast um innra með henni. 

„Ég hef barist við þær hugsanir að hafa boðið upp á þetta en er alfarið á þeirri skoðun að maður sé þolandi vændis eins og Stígamót orða það.“

Eitt sinn hélt hún að hún væri að fara að hitta vændiskaupana á hans heimili en svo breyttist staðan. 

„Ég hitti mann, hann bauð mér heim til sín svo ég hélt að þetta væri allt í góðu. Þangað mættu svo tveir aðrir menn til viðbótar. Á meðan verið var að misnota mig tók einn upp símann til að taka upp myndband. Þetta var ekki það sem ég vildi en það vissi enginn hvar ég var. Hvað átti ég að gera, þrír menn og ég ein.“

Algengt að stelpur séu seldar

Konan segir frá því að stelpur séu seldar án þess að vita það og séu jafnvel lánaðar öðrum.

„Þú mátt fá hana ef ég fæ efni. Menn selja aðgang að konum og stelpum fyrir efni.“

Hún tekur það fram að hún talar um stelpur vegna þess að hún þekkir það, en líklega á þetta einnig við um stráka. 

Eldri strákar eða menn, þessir sem eru með status í undirheimunum eru eftirsóknarverðir hjá ungum stelpum og oftar en ekki eru þeir með tvær til þrjár ungar stelpur hjá sér í einu.

„Þessir menn sem hafa kannski handrukkað í 15 ár eiga tvær til þrjár ungar stelpur í einu. Oj, eiga er ógeðslegt en jú, þeir dæla í þær dópi og vernda þær og þær fá húsaskjól og þrífa hjá þeim í staðinn og borga fyrir með líkamanum sínum. Á einhverjum tímapunkti gera þær svo eitthvað rangt og hann verður ljónið, sem verndaði þær, við þær.“

Hún segir að vændisheimurinn á Íslandi sé miklu stærri en fólk gerir sér grein fyrir. 

„Ég er ennþá að díla við afleiðingar af þessu og verð örugglega alltaf, ég treysti engum. Ef ég lendi ein í lyftu með karlmanni þá fer ég út á næstu hæð því ég er hrædd við alla karlmenn, þar til annað kemur í ljós.“

Hún er aftur á móti að vinna hörðum höndum að því að vinna bug á þessari hræðslu.

„Ég vil ekki labba ein í bænum eða vera ein þar sem er karlmaður en ef ég neyðist til þess þá tek ég upp símann og hringi í einhvern.“

Algengt er að þær sem stunda vændi lendi í því að farið sé yfir þeirra mörk en einnig er algengt að kynferðisofbeldi, nauðganir, séu notaðar sem refsingar í svokölluðum neysluheimi.

„Ég veit ekki hversu oft það hefur gerst. Þetta er svo algengt, nauðgun er notuð eins og hvert annað ofbeldi í þessum heimi. Ef þú rændir einhvern eða sveikst þá áttir þú það bara skilið, eins og hver annar þriðjudagur.“

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál