„Þú þarft að gera eitthvað í þínum málum, þú ert 70 kíló“

Margrét Gnarr.
Margrét Gnarr.

Margrét Gnarr,  eða Magga, eins og hún er kölluð er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpinu Sterk saman. Magga er 34 ára móðir, eiginkona og íþróttakona sem er í bata frá vímuefnavanda og átröskun.

Magga ólst upp í Svíþjóð og Reykjavík en hún á tvö systkini. Hún segist hafa verið kröftug sem barn og átti auðvelt með að eignast vini. 

„Ég flutti svo í Grafarvog þegar ég var að byrja í grunnskóla og var mjög spennt að eignast nýja vini en það var svo ekki þannig,“ segir Magga og segir frá því að þegar hún flutti í Grafarvoginn þá hafi hún fundið fyrir erfiðleikum. Hún varð fyrir einelti og henni var stítt vegna útlits síns. 

„Ég fór með bænir á kvöldin og bað Guð um að breyta hárlitnum mínum, taka freknurnar mínar og láta mig hætta að vera svona hvíta. Svo kíkti ég í spegil á hverjum morgni en var alltaf eins,“ segir hún.

Niðurlægð af skólahjúkrunarfræðingi!

Magga segist hafa bætt á sig þegar hún varð kynþroska. Hún segir frá því þegar hún var vigtuð og hæðarmæld hjá skólahjúkrunarfræðingi og hafi upplifað mikla niðurlægingu. 

„Ég var send inn með nokkrum stelpum. Þær voru mældar og allt í góðu. Hún mældi mig svo og sagði: „Hvað er að sjá þig stelpa, veistu ekki að þú ert yfir kjörþyngd, þú þarft að gera eitthvað í þínum málum, þú ert 70 kíló.“ Stelpurnar fóru þá að hlægja og kvíslast sín á milli,“ segir hún. 

Magga segist hafa verið hrædd við töluna 70 þegar kemur að kílóum. Hún segir að þetta hafi truflað hana mikið þegar hún varð ólétt en þá neyddist hún til þess að stíga inn í óttann. 

Fékk hrós og þróaði með sér átröskun! 

14 ára gömul fór Magga að æfa Teakwondo og varð strax mjög góð enda allt verklegt legið vel fyrir henni. Hún æfði með nokkrum flokkum og komst upp með að æfa fimm tíma á dag.

„Mér var svo boðið að æfa með systurfélagi Ármanns, Björk í Hafnarfirði, og ef ég átti ekki peninga í strætó þá fór ég á línuskautum úr Vesturbænum á æfingu,“ segir hún. 

Allt í einu fór fólk að hrósa henni fyrir útlit og hversu mikið hún hafði grennst. Á þeim tíma hugsaði hún ekkert um mataræði en æfði mikið og gleymdi oft að borða. Hún hugsaði með sér að hún yrði samþykkt ef hún yrði loksins grönn. Í ofanálag fór hún að lita á sér hárið dökkt. 

„Þar hófst baráttan við átröskun. Ég svelti mig og fann að ég gat stjórnað því að borða ekki, varð fíkin í að finna til hungurs,“ segir hún. 

Má drekka þrjá bjóra?

Í níunda bekk var henni tvisvar boðið í partý þar sem hún drakk tvo bjóra í bæði skiptin og fannst það æðislegt, það losaði aðeins um en hún drakk þó ekki meira. Hún mætti ekki í skólann allan þann vetur.

„Ég ætlaði að fara í frístundaheimilið, Frostaskjól, einu sinni, en strákur í skólanum ári eldri en ég bannaði mér að koma inn. Vinkona mín sem þekkti hann ætlaði svo með mér en hann sagði bara nei hún má ekki koma, ljótt fólk má ekki koma hingað. Þessi sami strákur fór svo að senda mér skilaboð á Instagram þegar ég var í fitness að segja hvað ég væri flott. Ég skil ekki, ætli fólk átti sig ekki á að þetta hafi áhrif á mann?“

Aðspurð hvort hún hafi fengið afsökunarbeiðni frá fólki sem kom illa fram við hana öll þessi ár og lagði hana í einelti segir hún svo ekki vera.

„Nei, ég hef ekki fengið það, sumar stelpur sem voru andstyggilegar hafa reynt að adda mér á Facebook og ég hef orðið mjög hissa og hugsað með mér hvort þær muni ekki hvernig þær komu fram,“ segir Magga. 

Magga er í dag með greiningu, hún er á einhverfurófi og útskýrir það margt fyrir henni.

„Ég fór á djammið á Spáni með bróður mínum, hann keypti bjór og sagði þú tekur næsta og ég hugsaði okei það virkar þá svoleiðis. Hann keypti svo aftur og ég sagði má ég fá þriðja? Ég hafði áður bara drukkið tvo og hélt að það væri bara þannig en eftir þetta skipti voru ófá skipti sem enduðu í blackout.“

Missti trú á sér eftir góðan árangur!

Magga segir frá ferlinum í fitness og hvernig hann samtvinnaðist við anorexiu, bulimiu og fleira ásamt alkahólisma.

Þegar kom að því að hætta keppni var Magga svo veik að hún var lífshættulega veik. Áður hafði hún þó náð ótrúlegum árangri í fitness út um allan heim.

„Ég missti trú á þessu eftir að mér var sagt að ég þyrfti að hitta einn dómara ein, segja honum hvað ég væri þakklát fyrir hann, hvað hann væri æðislegur og fá að pósa ein fyrir hann á bikiní til að eiga möguleika.“

Í dag lifir Magga góðu og einföldu lífi í bata frá alkahólisma og átröskunum. Hún lifir fyrir það að hjálpa öðrum og vera til staðar fyrir fjölskylduna sína og vini auk þess að þjálfa.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál