Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner greindi frá því í athugasemd á Instagram-síðu sinni að hún hefði látið fjarlægja fyllinguna úr vörum sínum. Jenner hefur verið þekkt fyrir stórar varir sínar, sem prýða meðal annars snyrtivörulínu hennar, Kylie Cosmetics. Kylie hefur látið sprauta í varir sínar síðan hún var 15 ára gömul, en hún verður 21 árs í ágúst.