Næstkomandi föstudag, þann 20. október, er bleiki dagurinn þar sem öll eru hvött til að klæðast bleikum lit og sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Óskalista vikunnar prýða því tíu einstaklega fallegir bleikir hlutir sem þú vissir ekki að þú þyrftir inn í líf þitt fyrr en núna!
Þessi fallega peysa frá danska fatahönnuðinum Stine Goya ætti að hitta beint í mark enda eru litatónar og mynstur peysunnar einkar sjarmerandi.
Fataskápar landsmanna eru misjafnlega litaglaðir, en sumir eru einfaldlega bara hrifnari af jarðtónum. Þá er tilvalið að fá sér litríkari fylgihluti til að poppa upp útlitið, en þessi skærbleiki trefill fellur fullkomlega inn í það hlutverk.
Rok og rigning hefur einkennt vikuna og skapað fullkomnar aðstæður fyrir kósíheit. Þetta fallega kerti býr til notalega stemningu um leið og það lætur húsið ilma fáránlega vel.
Hlý og falleg húfa er ómissandi í alla fataskápa, að minnsta kosti hér á klakanum. Þessi húfa er frá danska hönnunarmerkinu Ganni og er hönnunin tímalaus og passar við allt.
Bleika slaufan í ár er afar falleg en á bak við hana eru gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttir. Hægt er að fá hina hefðbundnu bleiku slaufu í næluformi eða festa kaup á Sparislaufunni sem er þrædd upp á gullhúðaða og demantsskorna keðju.
Náttfötin frá Teklu hafa áður ratað á óskalistann enda þægileg flík sem hægt er að nota bæði á daginn og nóttunni. Þau koma í afar fallegum bleikum lit sem er fullkominn í október!
Það þarf ekki að vera flókið að bæta smá bleikum töfrum inn á heimilið. Handklæðin frá Hay eru fullkomin inn á hvaða baðherbergi sem er!
Það er eitthvað sérstakt við það að hreyfa sig í nýjum íþróttafötum, ekki síst ef þau eru litrík og birta upp skammdegið. Þetta fallega sett gerir akkúrat það!
Marga dreymir um að eignast góðan hitabursta og ekki skemmir fyrir ef hann kemur með nokkrum mismunandi hausum. Hins vegar dreymir enn fleirum um akkúrat þannig hitabursta, nema í fallega bleikum lit – hér er hann!
Varaolíur geta gert kraftaverk í kuldanum, en þær gefa vörunum ekki bara ómótstæðilegan gljáa heldur næra þær varirnar í leiðinni.