Leikur Fram og Breiðabliks flautaður af (myndskeið)

Af varamannabekk Breiðabliks í kvöld.
Af varamannabekk Breiðabliks í kvöld. Ljósmynd/Twitter-síða Breiðabliks

Nú rétt í þessu var ákveðið að flauta leik Fram og Breiðabliks af í Lengjubikar karla í knattspyrnu vegna veðurs, en liðin áttust við á Framvellinum í Úlfarsárdal.

Staðan var þá 1:0 fyrir Breiðablik, en Höskuldur Gunnlaugsson hafði komið Blikum yfir snemma í síðari hálfleik. Vegna mikillar ofankomu og hvassviðris ákvað dómari leiksins, Gunnar Jarl Jónsson, fyrst að gera hlé á leiknum á 70. mínútu áður en hann var endanlega flautaður af.

Eins og sjá má hér að neðan voru aðstæður til knattspyrnu hreint ekki boðlegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert