McAusland ræðir við Grindavík

Marc McAusland er hugsanlega á leið til Grindavíkur.
Marc McAusland er hugsanlega á leið til Grindavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skoski knattspyrnumaðurinn Marc McAusland er í viðræðum við Grindavík um að ganga til liðs við félagið fyrir átökin í úrvalsdeild karla í sumar en það er fótbolti.net sem greinir frá þessu. McAusland hefur leikið með Keflavík, frá árinu 2016, og verið fyrirliði liðsins.

Varnarmaðurinn spilaði 19 leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni, síðasta sumar, en Keflavík féll úr deildinni síðasta sumar og mun því leika í 1. deildinni í sumar. Grindavík endaði í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð en Srdjan Tufegdzic tók við liðinu í haust af Óla Stefáni Flóventssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert