Þróttur fær tvo erlenda leikmenn

Archange Nkumu í leik með KA.
Archange Nkumu í leik með KA. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Þróttur Reykjavík hefur styrkt sig fyrir átökin í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar en liðið samdi við tvo erlenda leikmenn á dögunum. Archange Nkumu kemur til félagsins frá Haringey Borough en hann þekkir vel til hér á landi eftir að hafa spilað með KA á árunum 2015 til ársins 2018.

Nkumu á að baki 28 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað átta mörk en hann er enskur miðjumaður sem er fæddur árið 1993. Þá samdi Portúgalinn Rafael Victor einnig við Þróttara á dögunum en hann er stæðilegur framherji sem kemur til félagsins Oleiros í heimalandi sínu en hann er fæddur árið 1996.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka